Á-listinn Rangárþingi ytra

Á-listinn Rangárþingi ytra Við stöndum fyrir ábyrga fjármálastjórn, aukin lífsgæði, fjölbreytt atvinnulíf, sterkar menntastofnanir og opna stjórnsýslu.

Við stuðlum að innviðauppbyggingu í þágu öryggis og hagkvæmni fyrir alla íbúa, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli.

Stjórn Odda bs. hefur samþykkt reglur um afnot af nýja hátíðarsalnum í skólabyggingunni á Hellu. Salurinn verður sameigi...
11/09/2026

Stjórn Odda bs. hefur samþykkt reglur um afnot af nýja hátíðarsalnum í skólabyggingunni á Hellu. Salurinn verður sameiginlegt rými Grunnskólans á Hellu, Heklukots og Tónlistarskóla Rangæinga en verður jafnframt hægt að nýta fyrir menningarstarf, fundi, fræðslu, tónleika og sýningar.

Með reglunum er tryggt að þetta glæsilega nýja rými nýtist bæði skólastarfinu og samfélaginu vel.

"Virkjun holunnar mun auka rekstraröryggi Rangárveitna. Komi upp bilun í eldri holunum getur nýja holan meðal annars nýs...
04/09/2026

"Virkjun holunnar mun auka rekstraröryggi Rangárveitna. Komi upp bilun í eldri holunum getur nýja holan meðal annars nýst sem varaafl.

Til þess að hægt verði að flytja aukið magn af heitu vatni frá Kaldárholti til íbúa á svæðinu þarf þó einnig að auka flutningsgetu veitukerfisins, meðal annars með sverari lögnum. Slíkar framkvæmdir eru umfangsmeiri og taka lengri tíma."

Virkjun holunnar mun auka rekstraröryggi Rangárveitna.

Til hamingju Guðni! 🤾‍♂️Guðni Ingvarsson frá Skarði í Landsveit, Rangárþingi ytra, hefur verið tekinn inn í heiðurshöll ...
25/08/2026

Til hamingju Guðni! 🤾‍♂️

Guðni Ingvarsson frá Skarði í Landsveit, Rangárþingi ytra, hefur verið tekinn inn í heiðurshöll Selfoss handbolta. Guðni hefur átt glæsilegan feril, leikið 195 leiki fyrir Selfoss og varð Íslandsmeistari með félaginu.

Frábær viðurkenning fyrir öflugan íþróttamann. Innilega til hamingju Guðni! 💪

Guðni Ingvarsson var tekinn inn í heiðurshöll Selfoss handbolta í fyrradag á upphitunarkvöldi tímabilsins sem haldið var á þéttsetnu Sviðinu. Guðni er þar með sjöundi maðurinn sem hlýtur þessa nafnbót, en þar komast eingöngu þeir einstaklingar sem hafa spilað með félaginu ...

NATO stendur fyrir æfingum á Hellu flugvelli 23. – 29. ágúst n.k. þar sem m.a. C-130 Juliet vél bandaríska flotans flutn...
22/08/2026

NATO stendur fyrir æfingum á Hellu flugvelli 23. – 29. ágúst n.k. þar sem m.a. C-130 Juliet vél bandaríska flotans flutningavél verður lent á flugvellinum allt að 10x á dag ásamt því að fallhlífastökkvarar munu æfa.

Viðbúið er að íbúar verði varir við flugumferð og fallhlífastökkvara 23.-29. ágúst.

Vegna vinnu Landsnets við háspennuvirkið á Hellu verður rafmagnslaust í Rangárþingi Ytra aðfaranótt 25. ágúst 2026 frá k...
21/08/2026

Vegna vinnu Landsnets við háspennuvirkið á Hellu verður rafmagnslaust í Rangárþingi Ytra aðfaranótt 25. ágúst 2026 frá kl 00:10 - 04:10. https://www.rarik.is/tilkynningar

Bókun Húsakynna bs. vegna framkvæmda við Laugalandsskóla: "Stjórn Húsakynna bs. fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds vi...
20/08/2026

Bókun Húsakynna bs. vegna framkvæmda við Laugalandsskóla:

"Stjórn Húsakynna bs. fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds við eldra skólahúsnæði á Laugalandi.

Framkvæmdir við fyrsta áfanga endurbóta hafa reynst umfangsmeiri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og er fyrirséð að kostnaður við áfangann verði umfram fjárhagsáætlun. Við framkvæmd verksins hefur komið í ljós að ástand hússins var að ýmsu leyti verra en unnt var að sjá fyrir við gerð upphaflegrar kostnaðaráætlunar. Nauðsynlegt hefur því reynst að ráðast í viðbótarviðgerðir og endurbætur sem ekki voru hluti af upphaflegri verkáætlun en mikilvægt var að framkvæma samhliða verkinu.

Ljóst er að óska þarf eftir viðauka við fjárhagsáætlun til þess að mæta auknum kostnaði. Á næsta fundi stjórnar Húsakynna sem áætlaður er þriðjudaginn 8. september verður tekin fyrir uppfærð áætlun.

Um er að ræða fyrsta áfanga í fyrirhuguðum heildarendurbótum á húsnæðinu. Samhliða framkvæmdum hefur farið fram töluverð hönnunar- og undirbúningsvinna sem nýtist áfram við næstu áfanga og skapar betri forsendur fyrir kostnaðarmati og framkvæmd þeirra.

Stjórnin leggur áherslu á að reynslan af fyrsta áfanga verði nýtt við áframhaldandi undirbúning verkefnisins. Áður en ráðist verður í næstu áfanga verði lögð fram uppfærð heildaráætlun um framkvæmdir, áfangaskiptingu og kostnað, þar sem tekið verði mið af þeirri þekkingu á ástandi hússins sem nú liggur fyrir.

Stjórnin telur mikilvægt að nauðsynlegum endurbótum á húsnæðinu verði haldið áfram með skipulögðum hætti þannig að tryggt verði að húsnæðið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar til framtíðar."

Var ekki gaman um helgina? 🤩
18/08/2026

Var ekki gaman um helgina? 🤩

Töðugjöld 2026 fóru fram í Rangárþingi ytra dagana 11.–16. ágúst og óhætt er að segja að hátíðin hafi tekist með eindæmum vel. Veðrið lék við hátíðargesti alla dagana og góð þátttaka var í fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um sveitarfélagið. Hátíðin hófst með...

Sterkara utanumhald um skólamálin í samræmi við áherslur Á-listansReynir Jónsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri fræðs...
18/08/2026

Sterkara utanumhald um skólamálin í samræmi við áherslur Á-listans

Reynir Jónsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri fræðslumála hjá Odda bs. og tekur til starfa 1. september.

Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor lagði Á-listinn sérstaka áherslu á sterkt skólastarf og jöfn tækifæri fyrir börn. Þar lögðum við meðal annars áherslu á að hvert barn fengi þjónustu og kennslu miðað við sínar þarfir, öfluga stoðþjónustu og sérkennslu, öflugt faglegt starf og markvissa innleiðingu laga um farsæld barna.

Til þess að þær áherslur verði að veruleika þarf ekki aðeins gott skólahúsnæði heldur líka öflugt faglegt utanumhald. Markmiðið okkar er að skapa eins góða umgjörð og mögulegt er fyrir börnin okkar, starfsfólk skólanna og fjölskyldur í sveitarfélaginu.

Oddi bs. rekur leik- og grunnskóla með um 400 nemendum og rúmlega 140 starfsmönnum. Með nýju starfi verkefnastjóra fræðslumála er verið að styrkja stjórnun og samhæfingu skólamálanna, styðja betur við skólastjórnendur, efla gæðastarf og skapa meiri yfirsýn yfir þann mikilvæga málaflokk sem fræðslumálin eru.

Þetta er því eðlilegt næsta skref í þeirri uppbyggingu sem Á-listinn hefur lagt áherslu á, að góðar byggingar og öflugir innviðir fari saman við metnaðarfullt innra starf skólanna.

Við bjóðum Reyni velkominn til starfa og óskum honum velfarnaðar í mikilvægu verkefni.

Reynir Jónsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri fræðslumála hjá Odda bs. og hefur hann störf 1. september næstkomandi.

Rangárþing ytra flaggar regnbogafánanum í tilefni Hinsegin daga. 🏳️‍🌈Með því vill sveitarfélagið sýna stuðning við fjölb...
08/08/2026

Rangárþing ytra flaggar regnbogafánanum í tilefni Hinsegin daga. 🏳️‍🌈

Með því vill sveitarfélagið sýna stuðning við fjölbreytileika, jafnrétti og það mikilvæga markmið að samfélagið okkar sé gott og öruggt fyrir alla - óháð kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu eða kyneinkennum.

Gleðilega Hinsegin daga!

Address

Suðurlandsvegur 1-3
Hella
850

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Á-listinn Rangárþingi ytra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Á-listinn Rangárþingi ytra:

Shortcuts

Share