22/08/2024
Ferðafólk athugið// Attention travellers (english below)
Undanfarinn sólarhring hefur mikið snjóað á Snæfellsöræfum og frá því í morgun hefur verið slydda og súld á svæðinu. Landverðir hafa kannað aðstæður á vegi 909 bæði frá afleggjara og að skála og frá skála inn að jökli. Talsverður snjór og bleyta er á veginum inn að skálanum og er hann fær fjallabílum og mælum við ekki með að jepplingar keyri inn á svæðið. Veginum inn að jökli hefur verið lokað tímabundið vegna ófærðar. Sjá myndir að neðan.
Eins viljum við vekja athygli á því að snjór er á vegi 902 inn að Kverkfjöllum en frá Kverkhnjúkaskarðinu inn að Sigurðarskála er hvít jörð og ekki er mælt með að jepplingar fari þann slóða.
Hægt er að hafa samband við landverði í Snæfelli í síma 842-4367 og landverði í Kverkfjöllum í síma 842-4369 fyrir nánari upplýsingar.
--------------------------------------------------------------------
In the last 24 hours it has been snowing in the Snæfell area and today the weather has been slushy and wet. The rangers have patrolled road 909, both from the 910 to the hut and from the hut to the glacier. The road to the hut has a considerable amount of snow on it in some parts and the other parts are very wet and slushy. We advice against travelling on smaller jeeps in the area.
We have temporarily closed the road to the glacier because of the amount of snow on it. See pictures below.
There is also snow on the 902 road to Kverkfjöll, to be more exact from Kverkhnjúkaskarð to the Sigurðarskáli hut and it is not recommended that smaller jeeps travel that road.
For more information about conditions you can contact the rangers in Snæfell, telephone number +354 842-4367, and the rangers in Kverkfjöll, telephone number +354 842-4369.