Flensborgarskólinn í Hafnarfirði

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er ríkisrekinn framhaldsskóli sem starfar eftir áfangakerfi.

Skólinn býður upp á fjölbreytt nám en stærstur hluti nemenda stundar nám á bóknámsbrautum til stúdentsprófs

04/09/2026
Treyjudagurinn er á morgun og við hvetjum nemendur og starfsfólk til að mæta í sinni uppáhalds treyju⭐Markmið dagsins er...
03/09/2026

Treyjudagurinn er á morgun og við hvetjum nemendur og starfsfólk til að mæta í sinni uppáhalds treyju⭐
Markmið dagsins er að sýna börnum sem glíma við krabbamein að þau standa ekki ein💙

Fyrir börn með krabbamein.

Metnaðarfull vinna í matreiðsluáfanga!Matreiðslukennsla fer vel af stað. Nemendur eru í óðaönn við að setja sig inn í ve...
01/09/2026

Metnaðarfull vinna í matreiðsluáfanga!

Matreiðslukennsla fer vel af stað. Nemendur eru í óðaönn við að setja sig inn í verklag matreiðslumeistarans Ara Freys Valdimarssonar í eldamennskunni. Í dag spreyttu þau sig á vorrúllum sem eins og myndir sýna voru framúrskarandi glæsilegar. Í síðustu var ítalskt þema og í þessari asískt. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í næstu viku en þá er íslenskt þema með pönnukökum, kleinum og bleikju💛

Daði Þór tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands í gær. Styrkir eru veittir nýnemum við...
01/09/2026

Daði Þór tók við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla Íslands í gær. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum. Daði Þór var dúx skólans við brautskráningu í vor og fékk fjöldann allan af verðlaunum, m.a. fyrir að halda úti jafningjaveri í stærðfræði þangað sem nemendur skólans gátu leitað eftir aðstoð. Hann gerði sér einnig lítið fyrir og sigraði Efnafræðikeppni Íslands fyrr á árinu en auk þess er Daði Þór afrekssundmaður hjá SH.

Til hamingju með styrkinn, Daði Þór!

Í gær tók Daði Þór Friðriksson, stúdent frá Flensborgarskólanum síðan í vor, við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.

Vel heppnaður nýnemadagur í gær💛🎉
28/08/2026

Vel heppnaður nýnemadagur í gær💛🎉

Vantar þig hlutastarf og viltu slást í hópinn? Endilega hafðu samband😊
11/08/2026

Vantar þig hlutastarf og viltu slást í hópinn? Endilega hafðu samband😊

09/06/2026

Útskrift frá Flensborgarskólanum vorið 2026💛

Fimm drengir með hæstu einkunnir FlensborgarskólansFlensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í dag 101 nemenda og úts...
29/05/2026

Fimm drengir með hæstu einkunnir Flensborgarskólans

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í dag 101 nemenda og útskrifuðust þau af fjórum brautum skólans; 6 af félagsvísindabraut, 13 af raunvísindabraut, 16 af viðskipta- og hagfræðibraut og 61 af opinni braut. Fimm nemendur luku námi á starfsbraut. Yfir helmingur þeirra lauk einnig námi af einu af eftirtöldum sviðum skólans; félagslífssviði, listasviði, tæknisviði og íþróttaafrekssviði.

Hæstu einkunn hlaut Daði Þór Friðriksson með 9,66 en hann hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Daði Þór hlaut einnig styrk frá Rio Tinto fyrir góðan árangur í raungreinum, verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í spænsku og íþróttaafreksgreinum en Daði Þór er afreksmaður í sundi. Hann hlaut viðurkenningu frá stærðfræðafélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði og þá hlaut hann viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands sem veitt eru nemendum sem sýna afburða árangur í efnafræði en Daði Þór gerði sér lítið fyrir og sigraði landskeppni framhaldsskólanna í greininni fyrr á árinu.

Adam Ernir Níelsson varð semidúx Flensborgarskólans með einkunnina 9,26. Adam Ernir hlaut Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og í íþrótt sinni, frjálsum íþróttum. Hann fékk einnig verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku og spænsku.

Það er sérstakt fagnarefni að þessu sinni að fimm vaskir drengir skipa hóp þeirra nýstúdenta sem luku prófi með yfir 9 í meðaleinkunn. Mátti vart sjá mun á einkunnum þeirra, enda afburðarnámsmenn allir og frábærar fyrirmyndir.
Þá voru fimm nýnemar, þær Anna Heiða Óskarsdóttir, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir, Ebba Guðríður Ægisdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir og Júlía Gunnarsdóttir Haarde, verðlaunaðir fyrir frábæran námsárangur á fyrsta námsári.

Nýstúdínan Steiney Lilja Einarsdóttir söng við athöfnina og Emilía Ósk Grétarsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Emilía Ósk minntist áranna í Flensborg með hlýju og hrósaði metnaðarfullu skólastarfi, góðum kennurum og góðum anda. Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari, kallaði í sínu ávarpi, eftir auknu samtali um helstu áskoranirnar á framhaldsskólastiginu og markvissri stefnumótun á sviði framfara, þ.m.t. nýtingu og þróunar gervigreindar. Skólameistari treystir á að hlustað sé á fagfólk í framhaldsskólum landsins enda velferð og aukin stoðþjónusta á skólastiginu framfaramál samfélagsins alls.

Til hamingju nýstúdentar!⭐️

Skólameistari undirritar námsferla nemenda í undirbúningi fyrir brautskráningu sem fer fram við hátíðlega athöfn á morgu...
27/05/2026

Skólameistari undirritar námsferla nemenda í undirbúningi fyrir brautskráningu sem fer fram við hátíðlega athöfn á morgun kl. 14.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll🎉

Efnafræðikennari skólans til margra ára, Hildur Einarsdóttir, var í skemmtilegu viðtali við Morgunblaðið nýlega en viðta...
11/05/2026

Efnafræðikennari skólans til margra ára, Hildur Einarsdóttir, var í skemmtilegu viðtali við Morgunblaðið nýlega en viðtalið birtist í sunnudagsblaðinu um helgina💛

Address

Hringbraut 10
Hafnarfjörður
220HAFNARFIRÐI

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

+3545650400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flensborgarskólinn í Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Flensborgarskólinn í Hafnarfirði:

Shortcuts

Share