Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði

Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði BUJaH er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og er opin öllum sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu. Komdu og vertu með! nóvember 2013

I. II. III.

Lög Bersans

Samþykkt á aðalfundi 22. Heiti, heimili og markmið.

1. grein.
• Nafn félagsins er Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði (skammst. BUJaH) og kennitala þess er 700301-3970. Félagið er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Heimili þess og varnarþing er í Hafnarfirði.

2. grein.
• Félagið er opinn og lýðræðislegur vettvangur fyrir skapandi umræður og félagsstarf ungs jafn

aðar- og félagshyggjufólks í Hafnarfirði.
• Félagið hefur það að markmiði að efla nýsköpun og frumkvæði ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks með því að stofna til víðtækra skoðanaskipta, umræðna og málefnavinnu, einkum í málaflokkum sem varða líf ungs fólks í Hafnarfirði, sem byggja á grunnhugmyndum jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti og bræðralag.
• Félagið hefur það markmið að auka samskipti og samkennd ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks í Hafnarfirði með öflugu félagsstarfi og útgáfustarfsemi. Félagið aðhyllist lýðræðislegt þjóðskipulag byggt á virkri þátttöku almennings, valddreifingu, fyllstu mannréttindum og félagslegu réttlæti. Aðild að Ungum jafnaðarmönnum í Hafnarfirði.

3. grein.
• Aðild að félaginu getur átt allt ungt fólk á aldrinum 16-35 sem vill vinna að framgangi félagshyggju og jafnaðarstefnu og gangast undir lög þessi. Til að öðlast aðild þarf viðkomandi að skrá fullt nafn og kennitölu á til þess gert eyðublað. Félögum í BUJaH er ekki skylt að greiða félagsgjöld. Þó er öllum heimilt að greiða til félagsins þá upphæð sem þeim sýnist. Búseta í Hafnarfirði er ekki skilyrði fyrir aðild að Bersanum.

4. grein.
• Aðilar að félaginu verða sjálkrafa félagar Ungra jafnaðarmanna og Samfylkingarinnar.
• BUJaH skal leitast við að eiga minnst einn fulltrúa í stjórn Samfylkingarfélags Hafnarfjarðar, Samfylkingarfélags Suðvesturkjördæmis, Ungra jafnaðarmanna í Suðvesturkjördæmi og Ungra jafnaðarmanna. Aðalfundur.

5. grein.
• Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum BUJaH. Aðalfund skal halda árlega og skal leitast við að halda hann fyrir aðalfundi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og Ungra jafnaðarmanna í Suðvesturkjördæmi.

6. grein.
• Stjórn BUJaH skal boða til aðalfundar með minnst viku fyrirvara. Hver félagsmaður skal boðaður til aðalfundar skriflega eða fundurinn boðaður með auglýsingu á vef tengdum félaginu eða í fjölmiðlum. Í bréfum til félagsmanna eða auglýsingu komi fram dagsetning, fundarstaður og dagskrá fundarins. Aukaaðalfund skal halda ef tveir af hverjum þremur stjórnarmönnum eða fimmtungur félagsmanna telur ástæðu til, og sitja þeir embættismenn sem þar eru kosnir fram að næsta reglulega landsþingi. Aukaaðalfund skal halda með sama hætti og venjulegan aðalfund. Félagsmenn hafa rétt til að sitja aðalfund með fullum réttindum.

7. grein.
• Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:

Setning.
1. Kosning fundarstjóra, sbr. 1. mgr. 8. gr. þessara laga, og ritara.
2. Skýrsla stjórnar og umræður. Formaður BUJaH hefur umsjón með þessum lið.
3. Skýrsla gjaldkera og umræður, samþykkt reikninga.Gjaldkeri BUJaH hefur umsjón með þessum lið.
5. Lagabreytingar. Formaður hefur umsjón með þessum lið.
6. Skemmtiatriði. Menningarfulltrúi hefur umsjón með þessum lið.
7. Umræða og afgreiðsla ályktana.
8. Kynning á frambjóðendum.
9. Kosning í embætti: Stjórn: Formaður, varaformaður, ritari,
gjaldkeri, og tveir til fjórir meðstjórnendur.
10. Val á heiðursfélaga/félögum ársins.
11. Hátíðarræða gests aðalfundar. Fundarslit.

8. grein.
• Að jafnaði skal Katrín Júlíusdóttir, fædd 23. nóvember 1974, stýra aðalfundi BUJaH sé þess einhver kostur.

• Úrslitum mála á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða. Fundarstjóri sér um framkvæmd kosninga á aðalfundi. Framboð skulu hafa borist fundarstjóra fyrir 6. dagskrárlið aðalfundar. Öllum frambjóðendum skal gefinn kostur á að kynna sig og sín stefnumál áður en til kosninga í embætti kemur. Berist ekki mótframboð í embætti er sjálfkjörið í það embætti.

• Við kosningar eru þeir réttkjörnir sem flest atkvæði fá. Verði atkvæði jöfn í framboðskosningum ræður hlutkesti og skal fundarstjóri framkvæma það. Allar kosningar á aðalfundi verða að vera skriflegar sé þess sérstaklega óskað. Kosið er í öll embætti félagsins til eins árs í senn nema annað sé tekið fram.

9. grein.
• Aðalfundur telst vera löglegur sé löglega til hans boðað og að honum staðið. IV. Stjórn.

10. grein.
• Stjórn fer með æðsta vald félagsins milli félagsfunda.

11. grein.
• Í stjórn sitja formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, og tveir til fjórir meðstjórnendur. Losni embætti varaformanns, gjaldkera, ritara eða meðstjórnenda getur stjórn BUJaH skipað í embættið til næsta aðalfundar.

12. grein.
• Að jafnaði skulu stjórnarfundir vera opnir öllum sem aðhyllast markmið félagsins og hafa viðstaddir þá málfrelsis- og tillögurétt, en ekki kosningarétt. Æskilegt er að stjórn fundi minnst tvisvar í mánuði. Formaður boðar til þeirra og stýrir þeim nema annað sé ákveðið. Falli atkvæði stjórnar jafnt ræður atkvæði formanns. Stjórnarfundi skal að jafnaði boða með tveggja sólarhringa fyrirvara. Óski meira en helmingur stjórnar eftir fundi ber að halda hann innan viku frá því formanni berst slík ósk skriflega.

13. grein.
• Enginn getur skuldbundið félagið fjárhagslega án skriflegs samþykkis gjaldkera og formanns. Allar meiriháttar fjárhagslegar skuldbindingar skulu kynntar rækilega á félagsfundum.

14. grein.
• Stjórn sér um daglegan rekstur félagsins, framkvæmd ályktana aðalfunda og tengsl við móður-, systur- og dótturfélög. Formaður er oddviti stjórnar og sér um framkvæmdir á ákvörðunum stjórnar nema annað sé tekið fram. Hann er jafnframt talsmaður félagsins út á við og innan Samfylkingarinnar. Gjaldkeri er fjárhirslumaður félagsins og sér um öll fjármál þess í samráði við formann, sbr. 13. grein þessara laga, og stjórn. Varaformaður er staðgengill formanns og tekur við því starfi í forföllum formanns. Ritari skal rita fundargerðir á öllum fundum félagsins ásamt því að hafa umsjón með félagatali BUJaH. Allir félagar Bersans hafa kjörgengi til stjórnar félagsins. Stjórn hefur heimild til að skipa verkefnisstjóra. V. Félagsfundir.

15. grein.
• Félagsfundir fara með æðsta vald félagsins milli aðalfunda, allir félagar hafa setu- og kosningarétt.

16. grein.
• Leitast skal við að halda félagsfundi reglulega og sem oftast. Félagsfundir skulu vera opnir öllum félagsmönnum. Félagsfundir eru umræðugrundvöllur BUJaH og hafa rétt til að álykta í nafni félagsins í anda jafnaðarstefnunar og þeirrar stefnu sem ákveðin er á aðalfundi. VIII. Lagabreytingar.

17. grein.
• Lögum þessum er aðeins hægt að breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu berast formanni minnst fjórum dögum fyrir aðalfund. Formaður skal þá halda fund með lagabreytinganefnd sem gerir svo tillögur um lagabreytingar fyrir aðalfund. Tvo þriðju hluta atkvæða á aðalfundi þarf til að lagabreytingatillögur fái samþykki. IX. Gildistaka.

18. grein.
• Lög þessi öðlast þegar gildi.

🌹🙌
23/10/2024

🌹🙌

Ef þú vilt þú vera með okkur í að skapa framtíð Íslands þá hvetjum við þig til að hafa samband!

Sæl öll!Hér að neðan er skráningarform fyrir landsfund Samfylkingarinnar. Þau sem hafa áhuga eru beðin um að skrá sig hé...
13/09/2022

Sæl öll!
Hér að neðan er skráningarform fyrir landsfund Samfylkingarinnar. Þau sem hafa áhuga eru beðin um að skrá sig hér að neðan. 🌹

Ég undirritaður óska eftir því að vera fulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði á landsfundi Samfylkingarinnar Jafnaðarmannaflokks Íslands 2022. Listinn verður borinn saman við félagaskrá og lagður fyrir félagsfund 26. september til samþykktar.

Öflug stjórn Ungs Jafnaðarfólks kosin á landsþingi í gær🌹
28/08/2022

Öflug stjórn Ungs Jafnaðarfólks kosin á landsþingi í gær🌹

Arnór Heiðar Benónýsson var í dag kjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks á landsþingi samtakanna og tekur við embættinu af Rögnu Sigurðardóttur. Á þinginu var einnig kjörið í bæði framkvæmdastjórn og miðstjórn samtakanna.

Við þökkum kærlega fyrir frábæra mætingu í vöfflukaffi Bersans 17. júní! Það var mikið um gleði, spjall og auðvitað fögn...
18/06/2022

Við þökkum kærlega fyrir frábæra mætingu í vöfflukaffi Bersans 17. júní!

Það var mikið um gleði, spjall og auðvitað fögnuð á þessum hátíðardegi 🇮🇸

Hér koma nokkrar myndir eftir Kristínu Söru, sjálfboðaliða í vöfflukaffinu og meðstjórnanda Bersans

Gunnar Þór Sigurjónsson var kjörinn formaður Bersans - UJ í Hafnarfirði á aðalfundi félagsins 6. maí 💥📢 ,,Ég ætla ekki a...
28/05/2021

Gunnar Þór Sigurjónsson var kjörinn formaður Bersans - UJ í Hafnarfirði á aðalfundi félagsins 6. maí 💥

📢 ,,Ég ætla ekki að horfa á meðan ójöfnuður eykst. Ég ætla að berja hnefanum í borðið og berjast fyrir jöfnuði og betra samfélagi"

Í nýkjörinni stjórn Bersans sitja:
👉 Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður
👉 Gauti Skúlason ritari
👉 Kolbrún Lára Kjartansdóttir meðstjórnandi
👉 Sigurður Ingi Ricardo Guðmundsson meðstjórnandi

Bersinn, ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði, skorar á bæjarstjórn að gera betur.Nú undirbúa íslendingar sig eins og flesta...
22/05/2021

Bersinn, ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði, skorar á bæjarstjórn að gera betur.

Nú undirbúa íslendingar sig eins og flestar evrópuþjóðir undir það að poppa og njóta Eurovision í kvöld. Það gerum við meðvituð um þá staðreynd að Ísrael er meðal þátttökuþjóða — við ætlum því að sitja í okkar örugga umhverfi og skemmta okkur fjarri hörmunga, þrátt fyrir að hundruðir hafi fallið í Palestínu síðustu daga. Á meðan mæður syrgja myrtu börnin sín, á meðan sprengjubrot eru fjarlægð og blóðið þornar, þá gerum við lítið annað en hugsa um okkur sjálf. Þetta skeytingarleysi okkar sást vel á dögunum, þegar ungum flóttamönnum frá Palestínu var hent út á götuna hér í Bæjarhrauni, allslausum.

Sannleikurinn er sá að það er allt of auðvelt að friða samviskuna með því að skipta út prófile myndum og lýsa yfir andstöðu við þá stríðsglæpi sem hafa átt sér stað. Það er sérstaklega auðvelt þegar við í raun höfum enga aðstöðu til að bjóða fram raunverulega hjálparhönd. Hælisleitendur og flóttafólk býr við slæmar aðstæður í Hafnarfirði, rétt eins og í öðrum sveitarfélögum. Yfirfull húsnæðin eru til skammar og í raun svo slæm að meirihlutanum í Hafnarfirði fannst besti kosturinn í stöðunni vera að hunsa hjálparköll frá Flóttamannahjálp Sameinuþjóðanna. Það var til dæmis gert þegar óskað var eftir því að taka á móti börnum frá Le**os, börnum sem búa við hræðilegar aðstæður. Málinu var frestað og tafið á meðan aðstæður versna og við gerum ekki neitt.

Því sitjum við nú og fylgjumst með fréttum af því þegar saklausar fjölskyldur eru sprengdar og myrtar. Við vitum að samfélag eins og Hafnarfjörður er fullfært um að bjóða fram aðstoð til þeirra sem eiga um sárt að binda, en til þess þarf vilja. Viljann til að gera betur og hjálpa þeim sem minna mega sín. Við skorum því á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að gera betur í þessum málaflokki svo Hafnfirðingar þurfi ekki að skammast sín fyrir að standa aðgerðarlausir á hliðarlínunni á meðan hjálparköllin berast ítrekað.

Address

Strandgata 43
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði:

Share