Samfylkingin í Hafnarfirði

Samfylkingin í Hafnarfirði XS - Sterkari saman!

"Við getum flest verið sammála um markmiðið. Við viljum öll skóla þar sem börn fá tækifæri til að læra, dafna og njóta s...
09/06/2026

"Við getum flest verið sammála um markmiðið. Við viljum öll skóla þar sem börn fá tækifæri til að læra, dafna og njóta sín. Leiðin þangað verður ekki fundin með því að halda áfram sömu umræðum og undanfarin ár. Hún krefst þess að við forgangsröðum, endurhugsum og vinnum saman. 👩‍🏫

Bíllinn er fastur í skaflinum. Spurningin snýst ekki lengur um hvernig hann festist heldur hvort við séum tilbúin að vinna saman að því að losa hann." 🤝

Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur, varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í fræðsluráði, skrifar um mikilvægi lausnamiðaðrar nálgunar í umræðu um skólamál. Í stað þess að leita sökudólga eigum við að ræða lausnir sem byggja á samvinnu ríkis, sveitarfélaga, skóla, foreldra og fagfólks. 🌹

Grein í fyrstu aths. 👇

Samfylkingin, Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur undirrituðu í dag málefnasamning nýs meirihluta í Hafnarfirði fyrir kjörtím...
26/05/2026

Samfylkingin, Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur undirrituðu í dag málefnasamning nýs meirihluta í Hafnarfirði fyrir kjörtímabilið 2026-2030. 🤝

Við erfiðar aðstæður er mikilvægt að kjörnir fulltrúar taki höndum saman um ábyrga stjórnun bæjarfélagsins. Það hefur Samfylkingin nú gert í samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Viðreisn og myndað nýjan meirihluta á breiðum grunni og víðtækri sátt sem hefur tæplega 60% atkvæða á bakvið sig. 📊🤝

Nýr meirihluti leggur áherslu á traustan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins og vandaða stjórnsýslu og ráðist verður í rekstrar- og stjórnsýsluúttekt til að efla stjórnsýsluna og tryggja betri nýtingu fjármuna bæjarbúa. 🔍

Fjöldi baráttumála Samfylkingarinnar náðist í gegn í þessum meirihlutaviðræðum:

- Frítt í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri frá og með 1. janúar 2027. 🚌
- Frístundastyrkur hækkar um 10 þús. kr. þann 1. janúar nk. og verður 75 þús. kr. á ári. 💶
- Hafin verður uppbygging lífsgæðakjarna fyrir eldra fólk við Sólvang og lokið verður við uppbyggingu hjúkrunarheimila í Hamranesi, Hrafnistu og í Vatnshlíð. 🏡
- Aðgengi að sérfræðingum í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar verður aukið. 🏫
- Dregið verður úr álagi í leik- og grunnskólakerfinu með markvissum aðgerðum. 📉
- Unnið verði að úrbótum á Flóttamannavegi sem tryggja öryggi og aukið flæði umferðar og hefja samtal við nágrannasveitarfélögin um ofanbyggðaveg. 🚧
- Farið verður fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins m.t.t. fjármögnunar og tímasetninga verkefna innan Hafnarfjarðar með það að markmiði að ná fram mikilvægum úrbótum samgöngum í Hafnarfirði. 🚦
- Auk fjölda annarra mála.

Fulltrúar Samfylkingarinnar lýsa yfir mikilli ánægju með málefnasamninginn enda ljóst að baráttumál og áherslur Samfylkingarinnar eru þar mjög áberandi. Samfylkingin mun hér eftir sem hingað til vinna að fjölbreyttum framfaramálum í þágu Hafnfirðinga og nú munum við láta verkin tala í meirihluta! ✊🌟

Sterkari saman 🌹
Samfylkingin í Hafnarfirði 🌹

Áhugasamir geta kynnt sér málefnasamning meirihlutans hér:
chrome-extensio://efaidnbmnnnibpcajpcglclefindmkaj/https://samfylkingin.cdn.prismic.io/samfylkingin/ahgqkbK9tuLqEN_E_260526AthygliHafnarfjordurV3.pdf

26/05/2026

Við minnum á félagsfund í dag, 26. maí, kl. 17:00 á Strandgötu 43. Fundarboð hefur þegar verið sent út í tölvupósti á félaga.

Kveðja,
stjórn Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Þakkir til bæjarbúa 🙏Niðurstöður kosninganna á laugardaginn voru okkur jafnaðarfólki vonbrigði. Við erum hins vegar afar...
18/05/2026

Þakkir til bæjarbúa 🙏

Niðurstöður kosninganna á laugardaginn voru okkur jafnaðarfólki vonbrigði. Við erum hins vegar afar stolt af vinnu okkar á síðasta kjörtímabili og okkar öflugu kosningabaráttu. Við þökkum okkar öflugu framboðs- og stuðningssveit sem lagði sig alla fram í baráttunni sem og þökkum við öllum þeim sem studdu okkur í kosningunum. Einnig þökkum við kjósendum og öllum bæjarbúum fyrir öll samtölin um hagsmunamál bæjarins.

Við aðal- og varamenn í bæjarstjórn, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Elín Anna Baldursdóttir og Stefán Már Gunnlaugsson mætum samhent til leiks og hlökkum til vinnunnar framundan í samstarfi við okkar öflugu meðframbjóðendur, stjórn og stuðningssveit. Hildur Rós Guðbjargardóttir, sem skipaði 2. sætið á framboðslista okkar tekur nú við sem oddviti okkar nú þegar Guðmundur Árni Stefánsson hefur ákveðið að taka ekki sæti í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili.

Samfylkingin í Hafnarfirði þakkar Guðmundi Árna Stefánssyni fyrir allt hans frábæra starf fyrir Samfylkinguna og sérstaklega í Hafnarfirði nú þegar hann hefur ákveðið að stíga af sviðinu. Hann á stóran sess í sögu jafnaðarmanna og þá ekki síst í sögu jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Við munum gera betur grein fyrir þeirri sögu síðar.

Við jafnaðarmenn mætum glaðbeitt til leiks á komandi kjörtímabili og höldum áfram að vinna að hagsmunum Hafnarfjarðar og Hafnfirðinga með okkar skýru stefnuskrá og jafnaðarstefnuna að leiðarljósi. Því geta bæjarbúar treyst!

Við erum sterkari saman! 🌹

Kæru Hafnfirðingar, gleðilegan kjördag 🗳 Takk fyrir frábærar viðtökur í kosningabaráttunni 🤝 Fjöldi heimsókna til fyrirt...
16/05/2026

Kæru Hafnfirðingar, gleðilegan kjördag 🗳

Takk fyrir frábærar viðtökur í kosningabaráttunni 🤝 Fjöldi heimsókna til fyrirtækja og einstaklinga er að baki, samtal jafnaðarmanna við Hafnfirðinga er virkt og saman tryggjum við breytingar 🌹

Kosningakaffi verður á Strandgötu 43 frá kl. 10:00 til 18:00 í dag ☕. Kosningavaka hefst síðan kl. 21:00 á Strandgötunni og kl. 23:00 færist gleðin yfir á Fjörukrána 🎉.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Guðmundur Árni Stefánsson oddviti okkar tók þátt í oddvitaáskorun á Vísir.is. Þar fór hann yfir lífið og tilveruna, fyrr...
15/05/2026

Guðmundur Árni Stefánsson oddviti okkar tók þátt í oddvitaáskorun á Vísir.is. Þar fór hann yfir lífið og tilveruna, fyrri störf og margt fleira. Guðmundur sagði m.a. „Jafnaðarstefnan er ekki bara stjórnmálastefna heldur lífsstefna, sem snýst um þrjú megingildi í lífinu: Jafnrétti allra, frelsi fólks til að njóta lífsins og samstöðu samfélagsins með þeim sem hjálp þurfa.“ 🌹

Sjá krækju á frétt í fyrstu athugasemd 👇

15/05/2026

Vota por Samfylkingin 🌹

15/05/2026

Samfylkingin بل تصويطً الي 🌹

Address

Strandgata 43
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samfylkingin í Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samfylkingin í Hafnarfirði:

Share