Tvö heimili

Tvö heimili Tvö heimili - ráðgjöf og sáttamiðlun fyrir fjölskyldur á tveimur heimilum.

04/03/2024
Það er eðlilegt að takast á og vera ósammála. Að verða reið, sár og vonsvikin. Ágreiningur og átök hafa bein áhrif á lík...
06/09/2023

Það er eðlilegt að takast á og vera ósammála. Að verða reið, sár og vonsvikin. Ágreiningur og átök hafa bein áhrif á líkamsstarfsemi okkar. Adrenalín og streituhormónið cortisol spila þar stóran þátt. Mandlan í heilanum spýtir þeim um æðarnar og virkjar sympatíska taugakerfið, frjósa eða flýja. Vöðvarnir spennast upp, öndun verður grynnri, blóðflæðið fer í útlimi en ekki í aðra mikilvæga líkamsstarfsemi eins og meltingu og rökhugsun víkur fyrir viðbrögðum.

Í langvarandi ágreiningi getur lítið þurfti til að kveikja á streituviðbragðinu. Skilaboð á messenger, tölvupóstur, símtal og skiptidagar geta valdið mikilli vanlíðan í hversdagslegu lífi foreldris með barn á tveimur heimilum. Langvarandi streituálag getur valdið svefnleysi, verkjum, bólgum, skertri matarlyst, einbeitingu og bældu ónæmiskerfi. Foreldrar í langvarandi ágreiningi finna oft líkamlega til gagnvart hinu foreldrinu s.s. ógleði.

Lífsgæði foreldris í þessum aðstæðum skerðast. Erfiðara verður að vera til og njóta lífsins. Álag á foreldri hefur neikvæð áhrif á foreldrafærni þess. Uppi situr barnið með foreldra sem tala ekki saman og líður illa.

Það eru til leiðir úr þessu ástandi, finnum þær saman 🤍

Ragnheiður hjá Tveimur heimilum var svo lánsöm að fá að koma í podcast um ættleiðingar hjá  og fjalla þar um tengsl, áfö...
26/04/2023

Ragnheiður hjá Tveimur heimilum var svo lánsöm að fá að koma í podcast um ættleiðingar hjá og fjalla þar um tengsl, áföll og líðan barna á tveimur heimilum 💚

Aðstæður barna á tveimur heimilum eru okkur hjartans mál. Því langar okkur að ná til lykilfólksins í lífi barna, starfsf...
25/01/2023

Aðstæður barna á tveimur heimilum eru okkur hjartans mál.

Því langar okkur að ná til lykilfólksins í lífi barna, starfsfólk leik og grunnskóla með fræðslu um hvernig þarfir barna á tveimur heimilum geta birtst innan skólakerfisins.

Börn á tveimur heimilum búa oft við flóknari aðstæður en önnur börn. Þau þurfa oft að taka meiri ábyrgð en jafnaldrar sínir og fást við aðstæður sem eru fyrir ofan þroskalega getu þeirra. Segja má að þau hafi sértækar þarfir sem mikilvægt er að taka tillit til.


Skólinn er einn helsti vettvangurinn fyrir geðrækt barna, þroska þeirra og félags- og tilfinningafærni. Rannsóknir sýna að börn sem reynt hafa skilnað foreldra sinna og/eða búa á tveimur heimilum geta haft sértækari þarfir en önnur börn. Birtingarmyndir þess geta verið tengdar ...

Eftir skilnað hefst tímabil breyttra aðstæðna, forsenda og samskipta. Þrátt fyrir að parsambandi ljúki heldur foreldrasa...
03/10/2022

Eftir skilnað hefst tímabil breyttra aðstæðna, forsenda og samskipta. Þrátt fyrir að parsambandi ljúki heldur foreldrasambandið áfram. Oft er það flóknari viðureignar en parsambandið var. Setjist niður, ræðið framtíðarsýn, hlutverk og ábyrgð. Reynið að sjá fyrir ykkur loka markmiðið: Hamingjusamt barn, andlega og líkamlega vel nært, öruggt og sátt í tilverunni 🤍

Námskeiðið fjallar um líðan barna sem búa á tveimur heimilum, það álag sem því fyrirkomulagi fylgir gjarnan og hvaða áhr...
13/07/2022

Námskeiðið fjallar um líðan barna sem búa á tveimur heimilum, það álag sem því fyrirkomulagi fylgir gjarnan og hvaða áhrif skilnaður eða sambúðarslit foreldra getur haft á þroska, aðlögun og afdrif viðkomandi barna. Lögð er áhersla á að þeir sem námskeiðið sitja þekki þau áhrif sem skilnaður kann að hafa á börn og að þau kynnist gagnlegum nálgunum og hagnýtum aðferðum svo mæta megi börnum í þessum aðstæðum með hætti sem stuðlar að stöðugleika, fyrirsjáanleika og vellíðan barnsins innan skólakerfisins.

Á námskeiðinu verður stuðst við fræðilega og faglega nálgun á viðfangsefnið. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, umræðu og hópavinnu þátttakenda og á bæði faglegri og persónulegri reynslu kennara, niðurstöðum rannsókna ásamt raunverulegum dæmum úr faglegu starfi leik- og grunnskólakennara.

Kennarar námskeiðsins eru Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir og Davíð Alexander Östergaard. Ragnheiður er félagsráðgjafi M.A, stofnandi Tveggja heimila og sérfræðingur í málefnum barna hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Davíð er stuðningsfulltrúi á vegum Reykjavíkurborgar, hefur lokið B.A. í uppeldis- og menntunarfræði, er nemandi á meistarastigi í sérhæfingu á foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf og er jafnframt aðstoðarkennari hjá HÍ. Bæði eru þau skilnaðarráðgjafar hjá SES-Pro og foreldrar barna á tveimur heimilum.

Sjá nánar á heimasíðu

https://tvoheimili.is/namskeid/namskeid-fyrir-leik-og-grunnskola/

Fær barnið þitt fullt hús stiga í þessu bingói?💯✔️❤️
15/06/2022

Fær barnið þitt fullt hús stiga í þessu bingói?💯✔️❤️

Börn sem flakka á milli tveggja heimila búa við töluvert flóknari aðstæður en börn sem búa á einu heimili. Ekki aðeins á...
01/06/2022

Börn sem flakka á milli tveggja heimila búa við töluvert flóknari aðstæður en börn sem búa á einu heimili. Ekki aðeins á praktískan hátt s.s. muna eftir dóti, mismunandi reglur, gildi og viðmið heldur við hverja breytingu á milli heimilanna verður til núningur í tilfinningalífi barnsins sem skapar spennu í taugakerfi þess.
Fyrst og fremst er það orkufrekt að aftengja sig foreldri sem barnið er að fara frá og tengja sig við það foreldri sem er að taka við. Þau eru líka að takast á við að hætta að vera á öðru heimilinu og byrja að vera á hinu. Að skipta um heimili felur í sér að skipta hálfpartinn um gír í vinnsluminninnu. Hætta hegða sér á ákveðinn hátt og lesa í aðstæður á öðru heimilinu og breyta daglegum venjum líkt og hentar á hinu heimilinu. Það væri eins og fyrir okkur að skipta um vinnustað aðra hverja viku. Á hvorum staðnum væru ákveðnar óskrifaðar reglur sem við þyrftum að læra og aflæra við hvert skipti sem við færum á milli staða.

Börn sem flakka á milli tveggja heimila eru sífellt að koma og fara og á það ekki aðeins við um skiptidaginn sjálfann. Því andlegur undirbúningur fyrir skiptin getur tekið 1 - 3 daga. Þau þurfa að kveðja raunveruleikann sem þau búa við þá stundina og búa sig undir breytingar á umhverfi og aðstæðum. Safna saman dótinu sínu, hugsunum og því sjálfi sem þau tengja við núverandi aðstæður. Kveðja og koma í nýjan raunveruleika, tengja aftur sjálfið við heimilið, umhverfi, fjölskyldugerð og foreldri. Koma sér fyrir, aðlagast og vera.

Svörun barnsins við þessum aðstæðum getur falið í sér spennu sem barnið þarf útrás fyrir, líklega með erfiðri hegðun.

Mikilvægt er að bregðast við þörf barnsins á spennulosun með tilfinningalegu rými og svörun sem gefur barninu til kynna að það sé elskað þrátt fyrir erfiða hegðun. Undirbúðu barnið fyrir skiptin og hjálpaðu því að yfirfæra sig andlega til hins foreldrisins með því að eiga í samskiptum við það foreldri og með því að skapa samfellda umönnun í lífi barnsins á milli heimila. Á skiptideginum sjálfum er mikilvægt að skapa “tengitíma” barns og foreldris sem er að taka við barninu. Slíkur tími þarf að einkennast af næði, umhyggju og tengslamyndnandi aðthöfnum.

Að veifa rauða hjartaspilinu ♥️Í öllum samböndum og samskiptum eru líkur á ágreiningi. Við erum jú lifandi verur með til...
26/05/2022

Að veifa rauða hjartaspilinu ♥️

Í öllum samböndum og samskiptum eru líkur á ágreiningi. Við erum jú lifandi verur með tilfinningar, skoðanir og sjónarmið sem við drögum frá okkar eigin reynslu og sýn á heiminn. Samband fráskildra foreldra er þar engin undantekning. Rétt eins og hjón deila um uppeldisaðferðir og þarfir barna sinna gera foreldrar á tveimur heimilum það líka. Ágreiningurinn getur þó orðið flóknari viðureignar þegar ekki er ást í spilinu og mögulega eimir af gremju og biturð í hjartanu eftir skilnaðinn. Léttvæg áttök geta þannig orðið eins og olía á eld fyrri átaka og rifrilda.

Eitt af þeim verkfærum sem foreldrar geta nýtt sér þegar upp kemur ágreiningur er það sem getur kallast “rauða spjaldið” “handbremsan” en ég við nota hugtakið “rauða hjartaspilið.”

Rauða hjartaspilinu má veifa þegar spenna er komin í samskiptin og samtalið og felur í sér mörk sett af umhyggju fyrir barninu og forseldrasambandinu.

Foreldrar ákveða þá fyrirfram hvert fyrirkomulagi er í kjölfar þess að spilinu sé veifað. Það gæti verið að fá leyfi til að leggja á í símtalinu eða ganga burt úr samtali og losna úr ágreiningsaðstæðum. Taka umræðuna aftur upp síðar með ákveðnu fyrirkomulagi t.d. með því að gefa hvort öðru tækifæri á að segja sína hlið og hlusta á meðan hitt tjáir sig. Temja sér það að bregðast ekki samstundis við orðum og skoðunum hins heldur staldra við og jafnvel biðja um leyfi til að fá að velta þeim fyrir sér í einhverja daga. Gangi það svo ekki upp að ræða málin sjálf gæti verið gagnlegt að fá þriðja aðila með í samtalið með ráðgjöf og stuðning við samskiptin.

Hvenær getur barn byrjað að fara í umgengni?Stutta svarið er: þegar foreldrar eru tilbúnir til þess og treysta hvort öðr...
18/05/2022

Hvenær getur barn byrjað að fara í umgengni?

Stutta svarið er: þegar foreldrar eru tilbúnir til þess og treysta hvort öðru fyrir umönnun barnsins 🙏🏼

Langa svarið er hér: https://tvoheimili.is/umgengni-ungra-barna/

Address

Hellisgata 29
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tvö heimili posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category