Kvikmyndasafn Íslands

Kvikmyndasafn Íslands Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.

11/06/2026

Núna má lesa sér til um fjölbreytt og stórmerkilegt ævistarf Magnúsar Jóhannssonar á heimasíðu safnsins í ýtarlegri grein eftir Gunnþóru Halldórsdóttur. Hlekkur í athugasemdum.

Magnús Jóhannsson (1912-1997) útvarpsvirkjameistari var upphafsmaður kvikmyndavarðveislu á Íslandi og ef ekki væri fyrir hans brautryðjendastarf á því sviði væri kvikmyndaarfur þjóðarinnar sennilega mun rýrari en raunin er.

Magnús stofnaði og rak Radio & raftækjastofuna á Óðinsgötu 2 í samstarfi við Sveinbjörn Egilsson og þar unnu þeir félagarnir að tæknilegum uppfinningum, útbjuggu innanhússkallkerfi fyrirtækja, sáu um nútímavæðingu uppskriftar þingræðna á Alþingi 1950, hljóðsettu kvikmyndir og unnu kennslugögn fyrir grunnskóla svo eitthvað sé nefnt.

Árið 1966 varð hann fyrsti formaður þá nýstofnaðra Hagsmunasamtaka kvikmyndagerðarmanna (FK), en áhugi hans á náttúrunni leiddi hann á vit kvikmyndagerðar. Magnús komst fyrstur Íslendinga með mynd á kvikmyndahátíðina í Cannes árið 1954.

Meðfylgjandi er valið myndefni úr kvikmyndum og ferðum Magnúsar.

Jón Hermannsson (1939 – 2025), tæknifræðingur og kvikmyndaframleiðandi, vann alla sína starfsævi við kvikmyndagerð og kv...
05/06/2026

Jón Hermannsson (1939 – 2025), tæknifræðingur og kvikmyndaframleiðandi, vann alla sína starfsævi við kvikmyndagerð og kvikmyndaframleiðslu.

Hann hóf störf hjá Sjónvarpinu áður en það hóf útsendingar sínar og var virkur framleiðandi strax á upphafsárum hins íslenska kvikmyndavors.

Nú er aðgengilegt á heimasíðu Kvikmyndasafnsins viðtal sem Gunnþóra Halldórsdóttir, starfsmaður KVSÍ, tók við Jón í maí 2022 þar sem hann segir frá því helsta sem á daga hans dreif á langri starfsævi við kvikmyndagerð.

Hlekkur í athugasemdum.

Í dag, miðvikudaginn 3. júní, klukkan 10:15 var/er fyrirlestur um íslenska kvikmyndasögu, á vegum Kvikmyndasafns Íslands...
03/06/2026

Í dag, miðvikudaginn 3. júní, klukkan 10:15 var/er fyrirlestur um íslenska kvikmyndasögu, á vegum Kvikmyndasafns Íslands í samstarfi við deild norrænna fræða við Humboldt háskóla í Berlín. Hann fór/fer fram í stofu DOR24 3.134 og fer fram á þýsku. Gunnar Tómas Kristófersson sérfræðingur safnsins mun segja frá og sýna fjölmörg kvikmyndabrot. Ókeypis aðgangur.

📢 Vortrag zur Geschichte des isländischen Films

Wie hat sich das isländische Kino entwickelt von seinen Anfängen bis zur Gründung des isländischen Filmfonds im Jahr 1978?

Diesen spannenden Überblick bietet morgen Gunnar Tómas Kristófersson, Forschungsspezialist am Isländischen Film-Archiv sowie Lehrbeauftragter und Doktorand der isländischen Filmgeschichte an der Universität Islands 🎬

Ein spannender Vortrag für alle, die sich für die isländische Filmkultur und Filmgeschichte Islands interessieren!

🗓️ Mittwoch, 3. Juni 2026
🕒 10:15-12:00
📍 Humboldt Universität zu Berlin, DOR24 3.134

Kvikmynda- og heimildamyndagerð hefur oftar en ekki kynnt undir forvitni fólks um annars löngu gleymda atburði. Nú er sv...
02/06/2026

Kvikmynda- og heimildamyndagerð hefur oftar en ekki kynnt undir forvitni fólks um annars löngu gleymda atburði.

Nú er svo komið að hópur fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar vill eyða óvissunni um bein hans. Óskað hefur verið eftir því að bein Jónasar verði grafin upp í annað sinn til að hægt verði að skera úr um það hvort það sé í rauninni hann sem lagður var til hvílu í þjóðargrafreitnum við hlið Einars Benediktssonar þann 16. nóvember 1946 vegna lífseigra sögusagna um að svo sé jafnvel ekki raunin.

Bein hans höfðu þá verið flutt til Íslands úr ómerktri gröf frá Assistenskirkjugarðinum í Kaupmannahöfn en svo virðist sem ekki hafi allir verið á einu máli um hvar á Íslandi skyldi grafa beinin en þau voru að endingu jarðsett í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum eftir talsvert ferðalag, fyrst frá Danmörku með stuttri viðkomu á Norðurlandi.

Á vef okkar, Ísland á filmu punktur is og í Kvikmyndasafn Íslands dálknum í spilara RÚV má einmitt horfa á brot af jarðarförinni við Þingvallakirkju þann 16. nóvember árið 1946. Nokkrir af fyrirmönnum þjóðarinnar sjást þar mæta til kirkju og bera kistuna út til jarðsetningar, til að mynda Ólafur Thors, forsætisráðherra; Jónas Jónsson frá Hriflu, þingmaður Framsóknarflokksins og Sigurgeir Sigurðsson, biskup Íslands. Kvikmyndataka: Vigfús Sigurgeirsson.

Tenglar í athugasemdum.

„Það leynast töfrar í því að finna söguefni í hversdagsleikanum. Finna þar eitthvað sem kemur okkur við. Eitthvað sem ve...
01/06/2026

„Það leynast töfrar í því að finna söguefni í hversdagsleikanum. Finna þar eitthvað sem kemur okkur við. Eitthvað sem vert er að tala um og segja frá. Kvikmyndin er nefnilega galdratól, hvort sem maður er að skoða sitt nánasta umhverfi eða gera eitthvað stórt.“

Sagði Þorsteinn Jónsson leikstjóri þegar hann hlaut heiðursverðlaunin á Edduverðlaununum, sem afhent voru síðasta föstudagskvöld.

Kvikmyndasafn Íslands þakkar einnig Þorsteini Jónssyni fyrir góð kynni og verðugt framlag til menningararfsins.

Grein í athugasemdum.

Þá erum við á Kvikmyndasafninu byrjuð að spennast upp og pakka niður til þeystast vestur á Skjaldborg - Hátíð íslenskra ...
20/05/2026

Þá erum við á Kvikmyndasafninu byrjuð að spennast upp og pakka niður til þeystast vestur á Skjaldborg - Hátíð íslenskra heimildamynda

Í Skjaldborgarbíói verður sýnt úrval af bestu heimildamyndum sem framleiddar hafa verið hér á landi undanfarið ár. Efnistök heimildamyndanna sem hafa verið á dagskrá hátíðarinnar í gegn um árin hafa verið fjölbreytt en þær eru allt frá örstuttum myndum upp í myndir í fullri lengd. Það sem einnig gerir þessa hátíð að alveg einstakri upplifun er óskoruð náttúrufegurð Patreksfjarðar og einstök stemning meðal hátíðarhaldara, gesta og heimafólks.

Kvikmyndasafnið tekur þátt að vanda með kynningu á fyrri tíma heimildamyndagerð á Íslandi. Fyrir valinu að þessu sinni er Magnús Jóhannsson (1912-1997), mikilvægur en lítt þekktur frumkvöðull.

Við mælum með Skjaldborgarhátíðinni fyrir allt fólk sem hefur áhuga á bæði menningu og kvikmyndum.
Dagskrá þetta árið má lesa sér til um í fyrstu athugasemd.

Í nýjasta hefti Sögu birtist greinin „Maðurinn á bakvið flaggstöngina“ eftir Gunnar Tómas Kristófersson sérfræðing ranns...
19/05/2026

Í nýjasta hefti Sögu birtist greinin „Maðurinn á bakvið flaggstöngina“ eftir Gunnar Tómas Kristófersson sérfræðing rannsókna á Kvikmyndasafninu. Í greininni er velt vöngum yfir hinu dularfulla máli hver eða hverjir kvikmyndatökumenn næstelstu varðveittu kvikmyndarinnar af Íslandi gætu verið. Myndin sýnir komu Friðriks áttunda danakonungs til Akureyrar í ágúst árið 1907 en fyrir utan tilvist kvikmyndarinnar sjálfrar eru fáar heimildir til um gerð hennar. Í greininni eru reifaðar þrjár kenningar um gerð myndarinnar, hvort erlendir ferðamenn hafi gert hana, mögulega ferðafélagar konungs eða jafnvel Íslendingar. Farið er yfir allar þær heimildir sem fundist hafa um myndina, meðal annars dularfullt eintak hennar sem var til á Akureyri á áttunda áratugnum en finnst hvergi í dag.

Umbúðir utan um kínverska kvikmynd.Hér er yfirlit yfir marga muni sem leynast á Kvikmyndasafninu í fyrstu athugasemd.
05/05/2026

Umbúðir utan um kínverska kvikmynd.
Hér er yfirlit yfir marga muni sem leynast á Kvikmyndasafninu í fyrstu athugasemd.

15/04/2026
19. apríl er síðasta Bíótekið í Bíó Paradís  í vetur.Þrjár stórkostlegar perlur kvikmyndanna. 15:00. Hryllingsmyndin um ...
15/04/2026

19. apríl er síðasta Bíótekið í Bíó Paradís í vetur.
Þrjár stórkostlegar perlur kvikmyndanna.
15:00. Hryllingsmyndin um Frankenstein (1931). Hin heimsfræga saga um skrímsli sem okkur fer að þykja vænt um. Skrímslið sem getur ekkert gert að því gert að vera skrímsli.
17:00: Næst er það stemningsrík og táknræn hugleiðing um ofbeldi, einangrun og karlmennsku í kvikmyndinni Blóðrautt sólarlag (1977) eftir Hrafn Gunnlaugsson sem hefur verið gerð upp fyrir hvíta tjaldið af Kvikmyndasafni Íslands. Hrafn Gunnlaugsson mun sitja fyrir svörum eftir sýninguna.
19:00 Verður síðast en ekki síst, síðasta kvikmynd lita-þríleiksins: Rauður eftir Krzysztof Kieslowskis. Rauður er lokaverk og hápunktur þríleiksins þar sem örlög og tengsl ólíkra einstaklinga fléttast saman í hljóðlátri leit að samstöðu og bræðralagi.

Í Bíótekinu getur verið erfitt að ná í sæti, við viljum því hvetja fólk til að nýta sér forsölu miða: https://bioparadis.is/vidburdir/biotekid/

Address

Hvaleyrarbraut 13
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 14:00

Telephone

+3545655993

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kvikmyndasafn Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Kvikmyndasafn Íslands:

Share