Lækur Athvarf Hafnarfirði

Lækur Athvarf Hafnarfirði Lækur er athvarf fyrir einstaklinga sem vilja rjúfa félagslega einangrun. Hér eru allir velkomnir 18. ára og eldri. Hlökkum til að sjá þig!

Hér er alltaf heitt á könnunni og hádegismatur á billegu verði. Margt í boði yfir daginn sjá stundatöflu hér efst á síðunni. Athvarfið Lækur er fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið með starfsemi Lækjar er að draga úr félagslegi eingangur auka lífsgæði og efla félags og líkamlegan vellíðan.



Í Læk er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. s.s snyrtivörugerð, leikfimi, listsköpun og handverk. Á staðnum er tölvuaðstaða þvotta og baðaðstaða. Lögð er áhersla á heimilislegt og rólegt umhverfi í góðum félagsskap. Þannig á að vera gott að koma og slaka á eða taka þátt í dagskránni. Í boði er morgunverður, hádegisverður og kaffi gegn vægu gjaldi. Hvorki þarf tilvísun né lækna eða annarra til að mæta á staðinn. Hér eru allir á jafningagrundvelli og almenn virðing fyrir náunganum í hávegum höfð.

14/09/2026
💛 Gulur dagur – 10. september 💛Á morgun fimmtudaginn 10. september er Gulur dagur – dagur til að staldra aðeins við, lít...
09/09/2026

💛 Gulur dagur – 10. september 💛

Á morgun fimmtudaginn 10. september er Gulur dagur – dagur til að staldra aðeins við, líta í kringum okkur og minna hvert annað á hvað smá hlýja, umhyggja og góð orð geta gert mikið. 💛

Gulur er litur gleðinnar, vonarinnar og birtunnar. Og stundum þarf ekki mikið til að lýsa upp daginn hjá öðrum, bros, spjall yfir kaffibolla, góð orð eða einfaldlega að gefa sér tíma fyrir hvert annað. 🌼

Við ætlum að mála Lækinn gulan og vonumst til að sem flestir taki þátt! 💛

Komdu í einhverju gulu, skelltu á þig gulu smáatriði eða komdu bara með góða skapið, allt telur!

💛 Gerum daginn aðeins bjartari saman. 💛

Nýja haustdagskráin okkar er komin í notkun. Það er viðeigandi að hún er gul að þessu sinni... 💛 Gulur dagur – 10. septe...
08/09/2026

Nýja haustdagskráin okkar er komin í notkun. Það er viðeigandi að hún er gul að þessu sinni...

💛 Gulur dagur – 10. september 💛

Á fimmtudaginn 10. september er Gulur dagur, dagur þar sem við tökum okkur smá pásu frá amstri dagsins og minnum hvert annað á mikilvægi þess að sýna hlýju, umhyggju og stuðning. 💛

Gulur litur táknar gleði, von og birtu – og stundum þarf ekki meira en bros, góð orð eða smá spjall til að gera daginn aðeins bjartari hjá öðrum.

Við ætlum því að mála Lækinn gulan og hvetjum alla til að taka þátt. 💛🌼

Komdu í einhverju gulu, með gult smáatriði eða bara með góða skapið – allt telur!

Gerum daginn aðeins bjartari saman. 💛

🍂 Þriðji september er mættur! 🍂Haustið er farið að láta aðeins á sér kræla og þá er fátt betra en eitthvað eldheitt, ilm...
03/09/2026

🍂 Þriðji september er mættur! 🍂

Haustið er farið að láta aðeins á sér kræla og þá er fátt betra en eitthvað eldheitt, ilmandi og huggulegt í hádeginu. Í dag verður á boðstólum tælensk/íslensk núðlukjúklingasúpa – algjör haustsálmatur í skál! 🍜❤️

Fyrir hádegi verður Tai Chi og kvennaleikfimin heldur sínu striki. 💪

Eftir hádegi ætlum við svo að skella okkur í myndlist í skúrnum 🎨 spennandi að sjá hvað verður skapað í dag!

Myndirnar sem fylgja eru frá síðasta vetri þegar við vorum að gera úrklippur í Nýsköpunarsetrinu.

Verið hjartanlega velkomin á Læk, við tökum vel á móti ykkur! ❤️

☀️ Sólin heldur áfram að leika við okkur hér í Hafnarfirðinum!Í dag verður rjómalöguð sveppasúpa með brauði í hádeginu🥖E...
01/09/2026

☀️ Sólin heldur áfram að leika við okkur hér í Hafnarfirðinum!

Í dag verður rjómalöguð sveppasúpa með brauði í hádeginu🥖

Eftir hádegi ætlum við í göngutúrinn okkar og svo liggur leiðin beint í Sköpun í Skúrnum, þar sem við höldum áfram með skemmtilegu verkefnin okkar. 🎨✏️

Myndin sem fylgir með í dag er af smá hluta af haustuppskerunni okkar úr garðinum🍃🍅🍂

Við hlökkum til að eiga góðan dag saman! 💛

það var veisla hjá okkur í dag. Fengum skemmtilegann forrétt í gjöf. Og einn lifandi sá var frelsinu feginn þegar allir ...
28/08/2026

það var veisla hjá okkur í dag. Fengum skemmtilegann forrétt í gjöf. Og einn lifandi sá var frelsinu feginn þegar allir voru búnir að heilsa honum :)

Ándale! Ándale! Arriba! Arriba! Það verður sannkallað föstudagsfjör í dag hér á Læk. Mexíkó súpa með með kjúlla og nacho...
28/08/2026

Ándale! Ándale! Arriba! Arriba! Það verður sannkallað föstudagsfjör í dag hér á Læk. Mexíkó súpa með með kjúlla og nachos í matinn. Pönnukökur með rjóma í kaffinu og notaleg tónlist á fóninum í allan dag. Sólin skín heiði og vísar að góðum degi!

Lækur... alltaf bongó!! 🌻🌞😎🎵🐾🇲🇽

Address

Staðarberg 6
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lækur Athvarf Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category