17/05/2026
Vá! Við erum hreinlega enn að ná okkur niður á jörðina eftir úrslit næturinnar.
Þvílíkt ferðalag sem við erum búin að upplifa með ykkur síðustu vikur. Það eru forréttindi að fá að bjóða sig fram til forystu í sveitastjórn Norðurþings. Síðustu vikur höfum við farið víða, hitt ótrúlegan fjölda fólks um allt sveitarfélagið og fundið samhljóm, trú og von en fyrst og fremst höfum við fengið að kynnast kraftinum sem býr í íbúum Norðurþings. Þennan kraft hlökkum við til að virkja á næstu fjórum árum.
Árangurinn sem við höfum nú uppskorið verður ekki til í tómarúmi. Á bak við okkur hefur staðið stór hópur fólks sem hefur með jafnaðarmennskuna að vopni og trú á verkefnið unnið hörðum höndum með okkur í baráttunni. Sjálfboðaliðar sem hafa unnið gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf í aðdraganda kosninganna. Án ykkar hefði þessi árangur aldrei verið mögulegur. Takk frá hjartarótum, öll sem hafa lagt hönd á plóg.
Síðast en ekki síst, ástarþakkir,- kjósendur fyrir traustið sem þið hafið sýnt okkur. Við erum bæði klökk og bljúg. Við lofum að næstu fjögur árin munum við leggja okkur öll fram fyrir alla íbúa Norðurþings.
Því saman erum við sterkari!
Kjartan Páll, Rebekka og Ísak