14/07/2025
TAKK 😄🌿
Náttúrubarnahátíð á Ströndum 2025 fór fram núna síðustu helgi á Sauðfjársetrinu í Sævangi þar sem Náttúrubarnaskólinn hefur aðsetur! Veðurgaldurinn heppnaðist stórkostlega, þátttakan var frábær og mikil gleði ríkti á hátíðarsvæðinu 🌱
Náttúrubarnaskólanum langar að þakka þeim sem koma að hátíðinni en það er auðvitað hellingur af fólki sem kemur að því að halda svona hátíð 🎉 Starfsfólk, stjórn, makar þeirra, sjálfboðaliðar, fjölskylda og aðrir aðstandendur og velunnarar Sauðfjársetur á Ströndum eiga miklar þakkir skilið fyrir allt, aðstoðina við skipulagninguna, ráðleggingar, lán og hinu og þessu, uppstillingar og tilfæringar, að elda dýrindis veitingar, standa vaktina í eldhúsinu, grillinu, afgreiðslunni og á hátíðarsvæðinu um helgina 💪 Það er alveg á hreinu að það er ómögulegt að halda Náttúrubarnahátíð án alls þessa frábæra fólks!
Við viljum líka þakka öllu listafólkinu og öllum sem voru með atriði, smiðjur, stöðvar og viðburði kærlega fyrir, þau gera hátíðina auðvitað að því sem hún er og þetta var allt saman svo skemmtilegt, spennandi, fróðlegt og áhugavert ☀️
Við þökkum Árnastofnun, Fine Foods og Ferðaþjónustunni á Kirkjubóli kærlega fyrir samstarfið í ár og styrktaraðilum okkar fyrir stuðninginn Uppbyggingarsjóði Vestfjarða, Barnamenningarsjóði Íslands og Orkubúi Vestfjarða! Þessir styrkir gera okkur mögulegt að hafa frítt á hátíðina, sem er okkur svo mikilvægt 🥰
Okkur langar líka að þakka öllum sem komu kærlega fyrir komuna á hátíðina og öll fallegu orðin. Það eru bestu gestirnir sem heimsækja Náttúrubarnahátíðina ❤️