Strandabandalagið

Strandabandalagið Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Strandabandalagið, Political organisation, Hólmavík.

Strandabandalagið er stjórnmálaafl í Strandabyggð, skapað og stutt af fólki sem hefur óbilandi trú á samfélaginu og tækifæri Srandabyggðar til að vera leiðandi þjónustukjarni á Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum.

Allt að gerast á Kópnesbraut! Húsbyggingar framundan.  Áfram Strandabyggð!
02/09/2026

Allt að gerast á Kópnesbraut! Húsbyggingar framundan.

Áfram Strandabyggð!

Kæru íbúar Strandabyggðar,Síðasta kjörtímabil var tímabil uppbyggingar og framfara í Strandabyggð.  Nú eru á borði sveit...
28/08/2026

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Síðasta kjörtímabil var tímabil uppbyggingar og framfara í Strandabyggð. Nú eru á borði sveitarstjórnar stór og mikilvæg innviðamál sem mikilvægt er að koma af stað. Þar ber hæst uppbygging íbúðahverfis í Brandsskjólum, uppbygging hótels og innviða á Jakobínutúni, áframhaldandi vinna við fráveitu og vatnsveitu o.s.frv.

Strandabandalagið hefur ýtt á eftir framgangi þessara mála og nú liggur fyrir að framkvæmdir við gatnagerð í Brandsskjólum hefjast í október. Eins liggur nú fyrir að nýr sveitarstjóri mun á næstunni halda áfram með vinnu við uppbyggingarsamning við Hótel Strandir ehf. Allt er þetta því í rétta átt og Strandabandalagið fagnar samstöðu innan sveitarstjórnar um þessa uppbyggingu.

Áfram Strandabyggð!

Sveitarstjórnarfundur 11.8.26 - ráðning sveitarstjóra, bókun StrandabandalagsinsKæru íbúar Strandabyggðar, í dag var hal...
11/08/2026

Sveitarstjórnarfundur 11.8.26 - ráðning sveitarstjóra, bókun Strandabandalagsins

Kæru íbúar Strandabyggðar, í dag var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Þar var meðal annars lagður fram samningur um ráðningu nýs sveitarstjóra. Við vísum í fundargerð fundarins og upptöku af honum sem birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, en hér er bókun Strandabandalagsins varðandi ráðningu sveitarstjóra.

"Bókun Strandabandalagsins vegna ráðningar sveitarstjóra á sveitarstjórnarfundi 11.8.2026

„Í sveitarstjórnarlögum segir m.a. um ráðningu sveitarstjóra: „VI. kafli. Framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélaga.
54. gr. Ráðning framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn ræður framkvæmdastjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélags. Heimilt er tveimur sveitarfélögum eða fleiri að ráða sameiginlegan framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin“. Þetta fyrirkomulag er einnig undirstrikað í Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Strandabyggðar.

Það er því alveg ljóst að það er á ábyrgð sveitarstjórnar að ráða sveitarstjóra. Nú hefur það gerst að meirihluti sveitarstjórnar Strandabyggðar, hefur gengið frá ráðningarsamningi við einstakling um starf sveitarstjóra, án alls samráðs við minnihlutann. Þrátt fyrir ítrekað tal um „samtal“ og „samvinnu“ af hálfu Vegvísis í kosningabaráttunni, virðist skorta verulega á efndir þeirra loforða. Þessi ráðning sveitarstjóra er annað dæmið á skömmum tíma, þar sem ekkert samráð er haft við minnihlutann. Hið fyrra var umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu, sem tekin var fyrir á sveitarstjórnarfundi 1393, þann 7.7. sl. Bæði þessi mál eru sett fram sem mál sveitarstjórnar, en án aðkomu minnihlutans.

Strandabandalagið óskar nýráðnum sveitarstjóra til hamingju með sérlega spennandi starf, enda óvenju mörg áhugaverð og viðamikil innviðamál sem bíða, eftir afkastamikið síðasta kjörtímabil undir forystu Strandabandalagsins. Strandabandalagið mun styðja sveitarstjóra í hans störfum í hvívetna eins og efni standa til.

Strandabandalagið getur hins vegar ekki annað en setið hjá í þessu máli, líkt og hinu fyrra, þar sem ekki er hægt að skrifa undir og ábyrgjast mál í nafni sveitarstjórnar sem Strandabandalagið hafði enga aðkomu að. Það er ákvörðunartakinn sem ber ábyrgðina“.

Kveðja
Þorgeir Pálsson,
fh Strandabandalagsins

Kæru íbúar Strandabyggðar,Það er mikið gleðiefni fyrir Strandabyggð að sjá þetta mikilvæga skref í uppbyggingu Kvíslatun...
07/08/2026

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Það er mikið gleðiefni fyrir Strandabyggð að sjá þetta mikilvæga skref í uppbyggingu Kvíslatunguvirkjunnar. Strandabandalagið beitti sér af krafti fyrir þessari framkvæmd á síðasta kjörtímabili og nú fögnum við þessum áfanga.

Gert er ráð fyrir að virkjunin verði tekin í gagnið eftir tvö ár. Afl virkjunarinnar nægir til að anna tvöföldu hámarksálagi í Strandabyggð og á Ströndum.

Dear citizens of Strandabyggð, Strandabandalagið greets you and we hope you are enjoying summer. We have been quiet sinc...
06/07/2026

Dear citizens of Strandabyggð,

Strandabandalagið greets you and we hope you are enjoying summer. We have been quiet since the municipality elections in May, but now is the time to inform you about the situation and our main focus points as a minority party in the municipality board of Strandabyggð. It is clear that our role must be, as before, to work on the overall interests of the citizens of Strandabyggð. In that work we build on the good foundations we laid as the majority party in the last term, which the current majority seems to be supporting. Strandabyggð has never had as many large infrastructure- and development projects on the table as now, and every responsible municipality board would want to continue such projects. Brandskjól the new housing area, a new hotel building and structure agreement with Hotel Strandir ehf, summerhouse area in Skeljavík, renovating and reconstruction of waist- and water system, to mention but a few examples. We feel nothing else but that the municipality board is consistent in continuing the structure laid down by the Strandabandalagið in the last term.

During the last few weeks, the municipality board has been working on finding representatives for all the committees and boards, that we have in our community structure, that will operate for the next four years. That work has gone well. A new municipal government has also processed several issues that have been on the agenda, including a report by Deloitte on the cost of the municipality in the publication of the book Byggðasaga Stranda, which is a comprehensive summary of the development of Strandabyggð. There still seems to be a lot unclear, although the direct cost of the municipality has been clarified. The overall cost however before and after the municipality took over the project, runs in tens of millions and it is clear that many things could be explained better to our citizens.

Recently, a group of Swedish kids and their supervisors visited us and this project is a part of ERASMUS student exchange project that Strandabyggð now participates in for the second time in a short time. And later this month our kids are going to visit Sweden. It has been fun to receive these kids, show them our specialities and what we think is most important around Holmavik. However, people have different view on what is interesting to see, and therefore it is good to get a visitor view to point out to us all the valuables we have, in the environment, nature and ourselves. That is where our wealth and value lies. Management of this student exchange on our behalf has Sjöfn Sæmundsdóttir, recreation officer of Strandabyggð, and dose a very good job.

Best regards, on behalf of Strandabandalagið, Þorgeir Pálsson

Kæru íbúar Strandabyggðar, Strandabandalagið heilsar ykkur með óskir um gott sumar. Við höfum lítið haft okkur í frammi ...
03/07/2026

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Strandabandalagið heilsar ykkur með óskir um gott sumar. Við höfum lítið haft okkur í frammi eftir kosningar, en nú er kominn tími til að upplýsa ykkur um stöðu mála og okkar áherslur sem minnihluti í sveitarstjórn Strandabyggðar.

Það er ljóst að okkar hlutverk verður nú sem fyrr, að vinna að hagsmunamálum Strandabyggðar. Í þeirri vinnu byggjum við á þeim góða grunni sem við lögðum sem meirihluti á síðasta kjörtímabili, sem núverandi meirihluti virðist ætla að styðja við. Það hafa sjaldan eða aldrei legið jafn mörg stór innviða- og uppbyggingarverkefni fyrir Strandabyggð en nú er, og hver ábyrg sveitarstjórn vill að sjálfsögðu halda slíkum verkefnum áfram. Brandsskjól, hótelbygging og uppbyggingarsamnigur við Hótel Strandir ehf, sumarhúsahverfi í Skeljavík, endurnýjun og uppbygging fráveitu og vatnsveitu o.s.frv, svo helstu dæmi séu tekin. Við skynjum ekki annað en að sveitarstjórn Strandabyggðar sé samstíga í að halda áfram þeirri uppbyggingu sem Strandabandalagið lagði grunninn að á síðasta kjörtímabili.

Undanfarið hefur verið unnið að því að manna nefndir og ráð og formgera þá stjórnsýslu sem mun starfa næstu fjögur árin. Sú vinna hefur gengið vel. Ný sveitarstjórn hefur einnig afgreidd nokkur mál sem hafa verið í vinnslu og má þar nefna skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte um kostnað sveitarfélagsins við útgáfu bókarinnar Byggðasaga Stranda. Þar virðist margt enn óljóst, þó beinn kostnaður sveitarfélagsins frá því verkefnið var tekið yfir af Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda, liggi fyrir. Kostnaður í heildina fyrir og eftir yfirtöku sveitarfélagsins, hleypur á tugum milljóna og ljóst að margt mætti skýra betur fyrir íbúum. Verður gerð nánar grein fyrir þessu síðar.

Í síðustu viku var hér í heimsókn hópur sænskra krakka ásamt umsjónarmönnum og er þetta verkefni liður í ERASMUS nemendaskipta verkefni sem Strandabyggð tekur nú þátt í í annað sinn á stuttum tíma. Í þessum mánuði fara okkar ungmenni í sambærilega heimsókn til Svíþjóðar. Það hefur verið gaman að taka á móti þessum krökkum, sýna þeim okkar sérkenni og það sem við teljum hvað markverðast í kring um okkur. Það er síðan eins og gengur, að sumum þykir hvað merkilegast það sem við sjáum varla, og því er gott að fá þetta gestsauga til að benda okkur á öll verðmætin sem við eigum, í umhverfinu, náttúrunni og okkur sjálfum. Þar liggur okkar auður. Umsjón með þessum nemendaskiptum fyrir okkar hönd hefur Sjöfn Sæmundsdóttir, tómstundafulltrúi Strandabyggðar og ferst það vel úr hendi.

Kærar kveðjur og góða helgi,
Fh Strandabandalagsins, Þorgeir Pálsson

Strandabandalagið óskar Vegvísi til hamingju með árangurinn í kosningunum. Við óskum Vegvísi einnig góðs gengis í að inn...
17/05/2026

Strandabandalagið óskar Vegvísi til hamingju með árangurinn í kosningunum. Við óskum Vegvísi einnig góðs gengis í að innleiða og halda áfram með þau mörgu, mikilvægu framfaramál sem nú liggja fyrir. Þau skipta framtíð Strandabyggðar öllu máli. Áfram veginn!

Góðan og gleðilegan kosningadag, kæru íbúar Strandabyggðar,Fyrir fjórum árum fagnaði Strandabandalagið góðum kosningasig...
16/05/2026

Góðan og gleðilegan kosningadag, kæru íbúar Strandabyggðar,

Fyrir fjórum árum fagnaði Strandabandalagið góðum kosningasigri á Café Riis, efri hæð. Við ætlum að hittast þar í dag um kl 18.30 eiga góða stund saman, sama hver niðurstaða kosningana verður. Allir velkomnir!

Kveðja, Strandabandalagið

15/05/2026

Áfram Strandabandalagið - Áfram Strandabyggð!
X - T, 16 maí 2026

Sterk forysta Strandabandalagsins!
15/05/2026

Sterk forysta Strandabandalagsins!

Address

Hólmavík
510

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Strandabandalagið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Strandabandalagið:

Shortcuts

Share