Bókasafn Grundarfjarðar

Bókasafn Grundarfjarðar Bókasafn Grundarfjarðar
🔗 menning_grundarfjordur
✉️ [email protected]
📞 sími: 438 1881 Einnig ítarlegri útlistun á reglum og safnefni. Ekkert árgjald.

Bókasafn Grundarfjarðar er í Sögumiðstöðinni að Grundargötu 35 Grundarfirði. Þar er einnig upplýsingamiðstöðin, Bæringsstofa sem er safn ljósmynda Bærings Cecilssonar og lítið minjasafn úr sögu byggðarlagsins. Bókasafnið lánar bækur, tímarit og hljóðbækur og veitir alla almenna upplýsingaþjónustu og heimildaleit. Vefsíða bókasafnsins geymir bóka- og heimildaskrár, ábendingar og tengla. Forstöðumaður er Sunna Njálsdóttir sem er eini starfsmaður bókasafnsins á veturna en starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar Grundarfjarðar þjónustar notendur bókasafnsins á sumrin. Millisafnalán 850 kr. Gjald fyrir bækur á málum nýbúa er ekkert. Internetaðgangur
Ljósrit og útprentun 80kr. hvert blað. (Réttur er áskilinn til að taka 100 kr fyrir þétta litaprentun)
Bækur og tímarit eru að jafnaði lánuð út í 30 daga, nýjar bækur viku til 14 daga í desember og fram eftir vetri. Myndbönd í 7 daga. Geisladiskar í 14 daga. Dagsektir:
Bækur og önnur gögn 20 kr á dag. Hópurinn „Gefins og gaman“, https://www.facebook.com/groups/134633680400401 er safn af ýmsu efni, skemmtun, leikjum, fróðleik o.fl.

Íbúar utan Grundarfjarðarbæjar njóta ekki sömu réttinda. Útlán þarf að semja um hverju sinni. Fólki er bent á að leita til síns bókasafns um millisafnalán þar sem því verður við komið. Nemendur FSN fá fyrirgreiðslu vegna náms. Öllum er velkomið að leita upplýsinga um byggð og bæ og verður leyst úr því eftir bestu getu.

08/09/2026
Risa stórar smásögur 2026Var að koma á bókasafnið.Í þessari bók eru 17 ungar manneskjur sem eru snillingar í því að búa ...
08/09/2026

Risa stórar smásögur 2026
Var að koma á bókasafnið.

Í þessari bók eru 17 ungar manneskjur sem eru snillingar í því að búa til sögur......Sögur eru dásamlegar. Það er ekkert betra en góð saga. Það fyrsta sem kom út úr munninum á fyrstu manneskjunni sem g*t talað af einhverju viti var saga.
Gunnar Helgason

Þessi fallega og fræðandi bók var að koma til okkar á bókasafnið.Eftirmáli, Anne Manipoud Charcot (afkomandi)....Sagan u...
08/09/2026

Þessi fallega og fræðandi bók var að koma til okkar á bókasafnið.
Eftirmáli, Anne Manipoud Charcot (afkomandi)....Sagan un Jean-Baptiste Charcot fjallar því ekki einungis um fjarlæga fortíð.
Hún varpar ljósi á samtíma okkar og nýtist okkur við að undirbúa framtíðina.
Ég er snortin yfir því að sjá hversu fallega henni er miðlað til ungu kynslóðarinnar í þessari litlu bók.
Ég vona að hún kveiki löngun barnanna til að láta sig dreyma, læra og skoða heiminn af forvitni og virðingu eins og Charcot gerði.
Og hún verði til þess að þau skilji að maður sem fór og kannaði heimskautin fyrir meira en hundrað árum getur hjálpað okkur til að hugsa enn betur um jörðina okkar.
Jean-Baptiste Charcot fórst með skipi sínu Pourquoi-Pas (Hvers vegna ekki) við Álftanes á Mýrum þann 16 september 1936 í miklum stormi með honum fórust 39 manns úr áhöfn hans en aðeins einum var bjargað.

Nýtt fyrir börn og fullorðna.Spennandi og fjölbreytt efni 📖
03/09/2026

Nýtt fyrir börn og fullorðna.
Spennandi og fjölbreytt efni 📖

Vald hinna veikur.Saga landhelgismálið, 1971-1974 Guðni Th. JóhannessonÞessi frábæra bók var að koma til okkar splunkuný...
03/09/2026

Vald hinna veikur.
Saga landhelgismálið, 1971-1974
Guðni Th. Jóhannesson

Þessi frábæra bók var að koma til okkar splunkuný úr prentun.
Frásögnin er æsileg og litríkir kappar eigast við.
Á hafi úti beita liðsmenn Landhelgisgæslunnar togvíraklippum af miklum móð, breskir togarajaxlar bölva þeim í sand og ösku og freigátukapteinar reyna að verja landa sína en fá ekki að að beita öllu afli gegn vonlausri smáþjóð.

Þessar tvær bækur voru að koma til okkar á bókasafnið 📚Nýjasta bók Satu Rämö ,,Lesandinn sogast inn í óvenjulega og gríp...
29/07/2026

Þessar tvær bækur voru að koma til okkar á bókasafnið 📚

Nýjasta bók Satu Rämö ,,Lesandinn sogast inn í óvenjulega og grípandi ráðgátu."

Pysjan hennar Freyju var að lenda á Grundarfirði og má jafnvel sjá hana við höfnina og í flæðarmálinu.
En bókina góðu má finna á bókasafninu.
Falleg, skemmtileg og fræðandi bók.
Tilvalin bók til að lesa í lestrar-sprettinum.

Þessi bók er til hjá okkur og einnig bókin sem kom á undan ,,Vatn á blómin."Justine hefur búið hjá ömmu sinni og afa síð...
18/07/2026

Þessi bók er til hjá okkur og einnig bókin sem kom á undan ,,Vatn á blómin."

Justine hefur búið hjá ömmu sinni og afa síðan foreldrar hennar létust í bílslysi. Þau eiga heima í litlum bæ í Frakklandi og Justine unnir hag sínum þar vel. Hún er ánægð í starfi á elliheimili bæjarins og nýtur þess að hlusta á sögur gamla fólksins. Þannig tengist hún Hélène Hel, næstum hundrað ára gamalli konu sem lætur sig dreyma um löngu liðinn tíma. Justine ákveður að skrifa sögu Hélène og ekki síst til að gera átakanlegum minningum hennar úr seinni heimsstyrjöld skil. Það færir henni kjark til að takast á við eigin fortíð og óuppgerð mál sem þar leynast.

Þau sem gleymast á sunnudögum er angurvær saga um ást, sorg og fortíð sem virðist aldrei alveg vera liðin. Sannkölluð veisla fyrir aðdáendur fyrri bókar Valérie Perrin, Vatn á blómin.
Kristín Jónsdóttir þýddi.

Þau sem gleymast á sunnudögum eftir Valérie Perrin er mest selda bók landsins í júnímánuði samkvæmt bóksölulista Fíbút!🥇

Angurvær saga um ást, sorg og fortíð sem virðist aldrei alveg vera liðin. Sannkölluð veisla fyrir aðdáendur fyrri bókar Valérie Perrin, Vatn á blómin 🌸

Þýðandi er Kristín Jónsdóttir ✨
Takk fyrir að lesa ❤️

Lífið er fótboltaleikur ⚽️Fyndnar, forvitnilegar og fáheyrðar sögur úr fótboltaheiminum. Höfundur Bjarni Stefán Konráðss...
02/07/2026

Lífið er fótboltaleikur ⚽️
Fyndnar, forvitnilegar og fáheyrðar sögur úr fótboltaheiminum.
Höfundur Bjarni Stefán Konráðsson

Þessi athyglisverða og skemmtilega bók var að lenda á bókasafninu 📖

Address

Grundarg*ta 35
Grundarfjörþur
350

Opening Hours

Monday 14:00 - 17:00
Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bókasafn Grundarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Bókasafn Grundarfjarðar:

Shortcuts

Share

Category