15/09/2026
Svakalega lestrarkeppin hefst í dag og stendur til 6. október. Grunnskólinn okkar er skráður til leiks og snýst keppnin um að lesa sem mest. Allur lestur á keppnistímabilinu er skráður.
Við hvetjum alla foreldra, ömmur og afa, frændur og frænkur til að taka þátt og styðja við krakkana með lestri, lesið með börnunum heima, lesið fyrir þau og lesum sjálf okkur til gamans, því við erum jú fyrirmyndir barnanna.
Grundfirðingar eru keppnisfólk og nú förum við alla leið í þessari keppni! 📚