Slökkvilið Grindavíkur

Slökkvilið Grindavíkur Slökkvilið Grindavíkur
Hafnargata 13
Sími: 426-8380
Neyðarsími: 112
[email protected]
Slökkviliðsstjóri: Einar Sveinn Jónsson.

01/12/2025
24/11/2025
Farið varlega eða sko farið ekki neitt...verið bara heima!
05/02/2025

Farið varlega eða sko farið ekki neitt...verið bara heima!

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir hæ…

28/01/2025
02/12/2024

Munum reykskynjarann!

01/12/2024

Dagur reykskynjarans er í dag, 1. desember. Þetta litla en magnaða öryggistæki er það mikilvægasta af öllum tækjum heimilisins. Slökkvilið landsins og Vertu eldklár, forvarnarverkefni HMS, standa saman að eldvarnarátaki sem hefst í dag þar sem allir landsmenn eru hvatir til að huga að brunavörnum heimilisins.

Reykskynjarinn vakir yfir þér og þínu fólki. Eldurinn læðist um og lætur ekki vita af sér, en það er skerandi hljóð reykskynjarans sem vekur þig ef eldur kemur upp á heimili þínu.

Mikilvægir punktar varðandi reykskynjara:
Reykskynjarar eiga að vera í öllum rýmum heimilisins
Mikilvægt er að staðsetja þá sem næst miðju lofts
Prófið virkni reykskynjarans að lágmarki einu sinni á ári
Mikilvægt er að allir þekki flóttaleiðir á sínu heimili og að þær séu greiðfærar
Hafið slökkvitæki tiltækt á flóttaleiðinni
Á aðventunni er notalegt að eiga góða stund með fjölskyldu og vinum, þá kveikjum við oft á kertum og skreytum heimili okkar. Förum gætilega með eld og rafmagn, höfum óbrennanlegt undirlag undir kertum, staðsetjum þau ekki nálægt gardínum og munum að vökva jólatrén, séu þau lifandi grenitré, því þau eru eldfimari ef þau þorna upp. Raftæki og aðrir hitagjafar, svo sem kertaljós, arineldur og jólaseríur, eru ómissandi partur af lífi okkar flestra en geta þó snögglega snúist upp í andhverfu sína ef umgengnin er ekki örugg. Hlöðum rafmagnshjól og rafmagnstæki af ábyrgð, ekki hlaða á meðan allir eru sofandi eða þegar enginn heima.

Vertu ELDKLÁR og gakktu úr skugga um að öll raftæki og aðrir hitagjafar séu öruggir á þínu heimili.

Samkvæmt skoðanakönnun Maskínu, sem gerð var í janúar 2023, þá eru 95,7% heimila með einn eða fleiri reykskynjara, en það verða öll heimili að hafa reykskynjara.

Snillingar dagsins!
28/11/2024

Snillingar dagsins!

ATH!
26/11/2024

ATH!

Á morgun, miðvikudaginn 27. nóvember, kl 11 er fyrirhugað að prófa rýmingarflautur í Grindavík og Svartsengi. Þetta er gert til að prófa virkni fjarræsibúnaðar sem settur hefur verið við flauturnar og til að tryggja virkni búnaðar.

Sýnum ábyrgð og eflum eldvarnirÞað er auðvitað fyrst og fremst á ábyrgð fullorðinna á heimilum að sjá til þess að eldvar...
20/11/2024

Sýnum ábyrgð og eflum eldvarnir

Það er auðvitað fyrst og fremst á ábyrgð fullorðinna á heimilum að sjá til þess að eldvarnir séu í lagi en það er líka mikilvægt að þeir ræði við þá sem yngri eru um eldhættu og kenni þeim að draga úr henni. Það á ekki síst við um eldhættu sem stafar af notkun og hleðslu raf- og snjalltækja. Þar skiptir mestu að standa með öruggum hætti að hleðslu til dæmis snjallsíma og rafhlaupahjóla. Þessi tæki á ævinlega að hlaða og geyma í öruggu umhverfi þar sem síður er hætta á að eldur komi upp eða breiðist út með tilheyrandi tjóni og óþægindum. Við þekkjum alltof mörg dæmi um að verulegt tjón hafi orðið vegna þessara tækja.

Eldvarnaátakið

Slökkviliðsmenn leggja sitt af mörkum í því að fræða börn og fullorðna um eldhættu á heimilum og viðbrögð við þeim. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur um þessar mundir fyrir Eldvarnaátakinu sem fram fer í grunnskólum um allt land. Við heimsækjum krakkana í 3. bekk, ræðum við þá um eldvarnir og afhendum þeim margvíslegt fræðsluefni um þær, svo sem söguna um Loga og Glóð og handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Við ætlumst til þess að börnin fari heim með þessa nýfengnu þekkingu og ræði eldvarnir heimilisins við foreldra og forráðamenn.

Eldvarnir á heimilum

Í samtölum okkar við börnin leggjum við einkum áherslu á eftirfarandi:
• Að í íbúðinni sé nægilegur fjöldi reykskynjara til að tryggja að fjölskyldan fái viðvörun ef eldur kemur upp og tíma til að bregðast við.
• Að eldvarnateppi sé á sýnilegum stað í eldhúsi, en afar algengt er að eldur komi upp í eldhúsum.
• Að fara alltaf varlega í umgengni við opinn eld.
• Að slökkvitæki sé sýnilegt við helstu flóttaleiðir.
• Að hlaða raf- og snjalltæki aðeins með öruggum búnaði og í öruggu umhverfi.
• Að allir á heimilinu hafi að minnsta kosti tvær flóttaleiðir, þekki þær og viti hvar á að safnast saman utandyra ef yfirgefa þarf heimilið.
• Síðast en ekki síst er mikilvægt að börnin þekki neyðarnúmerið, 112. Við þekkjum mörg dæmi þess að börn hafi hjálpað með því að hringja í 112.

Hleðsla rafhlaupahjóla

Af gefnu tilefni viljum við sérstaklega benda á að þegar við hlöðum rafmagnshlaupahjól þurfum við að hafa eftirfarandi í huga:
• Ekki hlaða þegar allir eru sofandi eða enginn heima.
• Ekki hlaða skemmd hjól.
• Ekki hlaða nálægt eldfimum efnum.
• Hlaða þar sem reykskynjari er fyrir hendi.
• Hlaða á afviknum stað, til dæmis í bílskúr.
• Nota hleðslutæki sem fylgdi hjólinu.

Sýnum aðgát og ábyrgð

Með aðgát í daglegri umgengni og nauðsynlegum eldvarnabúnaði getum við dregið verulega úr líkum á að eldur komi upp og valdi tjóni á lífi og eignum. Við slökkviliðsmenn viljum því hvetja fólk eindregið til að huga að eldvörnum heimilisins. Það er ekki síst mikilvægt nú í aðdraganda aðventu og hátíðanna þegar eldhætta á heimilum eykst. Förum varlega með opinn eld, sýnum aðgát og tryggjum að á heimilinu sé fyrir hendi allur nauðsynlegur eldvarnabúnaður sem gerir okkur kleift að bregðast við ef eldur kemur upp.

Address

Hafnargata 13
Grindavík
240

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið Grindavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slökkvilið Grindavíkur:

Share

Category