10/06/2026
Ferjan Baldur er rekin með þeim skilmála að geta gegnt hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar þörf krefur. Þegar Baldur fer tímabundið úr siglingum um Breiðafjörð er gert ráð fyrir að afleysingaskip sinni nauðsynlegri þjónustu við Flatey.
Særún annast siglingar til Flateyjar í júní á meðan Baldur siglir milli lands og Vestmannaeyja. Særún mun flytja farþega, vörur, neysluvatn og annan nauðsynlegan farm til eyjarinnar. Báturinn hefur leyfi til að flytja 115 farþega.
Sjá frétt:
Ríkið styrkir rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs yfir vetrartímann til að bæta samgöngur fyrir íbúa og atvinnulíf á Vestfjörðum þegar vetrarfærð er erfið. Yfir sumartímann er reksturinn hins vegar á ábyrgð rekstraraðila og fer fram á markaðslegum forsendum. Flutningsaði...