Samfylkingin í Garðabæ

Samfylkingin í Garðabæ Svæðisfélag Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesi Við í Samfylkingunni viljum tryggja að öll börn hafi jafnan aðgang að íþróttum og öðru tómstundastarfi.

Við viljum að gjaldskrár verði endurskoðaðar og að hvatapeningar verði hækkaðir.

Þrátt fyrir lágt útsvar eru þjónustugjöld barnafjölskyldna í Garðabæ mun hærri en gengur og gerist á höfuðborgarsvæðinu, þessu vill Samfylkingin breyta. Við viljum gera almenningssamgöngur að raunhæfum kosti fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Fjölga þarf ferðum strætó á kvöldin og um helgar og tryggja þarf betri stræt

ótengingar milli hverfa og sveitarfélaga. Við viljum að Garðbæingar geti ræktað sín áhugamál án þess að þurfa að leita til annarra sveitarfélaga. Að við getum notið opnu grænu svæðanna í bænum, t.d. byggja strandblaksvöll og brettagarða. Sem og æfingarhúsnæði fyrir hljómsveitir og listamenn bæjarins verði tryggt.. Við í Samfylkingunni viljum stytta biðlista á félagslegu húsnæði í bænum. Samfylkingin vill að átak verði gert í endurnýjun gatna og gangstíga í eldri hverfum og að haldið verði áfram með vinnu við tengingar sveitafélaga með göngu- og hjólastígum.

18/05/2026

Aðalfundur Samfylkingarinnar í Garðabæ verður haldinn mánudaginn 1.júní n.k. kl.20.00.

Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Skýrslur nefnda sem starfa á vegum félagsins.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar; formanns, 4 aðalmanna og 3 til vara.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
7. Ákvörðun árgjalds.
8. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð.
9. Önnur mál

Tekið er við framboðum til stjórnar á netfangið [email protected]

Tillögum að lagabreytingum skal skilað til stjórnar eigi síðar en 25.maí n.k..

Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.

Stjórn Samfylkingarinnar í Garðabæ.

Kæru GarðbæingarOkkar bestu þakkir fyrir stuðninginn í kosningunum s.l. laugardag og takk öll sem við hittum og heyrðum ...
18/05/2026

Kæru Garðbæingar

Okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn í kosningunum s.l. laugardag og takk öll sem við hittum og heyrðum í til að ræða málefni sem varða daglegt líf og framtíð íbúanna og sveitarfélagsins.

Samfylkingin fékk 11,5% atkvæða og á því að nýju fulltrúa í bæjarstjórn Garðabæjar. Það er sigur í okkar augum og við göngum bjartsýn inn í nýtt kjörtímabil. Okkar bæjarfulltrúi, Kjartan Atli Kjartansson, mun standa vörð um jöfnuð, réttlæti og velsæld í okkar samfélagi í samræmi við þá stefnuskrá sem Samfylkingin kynnti fyrir kosningar.

Við höfum mikinn metnað fyrir samfélagið okkar og ætlum að vinna af heilindum og krafti að hagsmunum íbúanna og sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Framboðslistinn var skipaður einvala liði sem er tilbúið og hefur þegar brett upp ermar til að taka þátt í bæjarmálastarfi Samfylkingarinnar. Það eru fjölmörg tækifæri til jákvæðra breytinga í þágu íbúa í Garðabæ, hlökkum til samstarfsins við ykkur öll ! Takk, takk 🌹🌹

Takk fyrir ómetanlegan stuðning öll sem eitt 🌹
16/05/2026

Takk fyrir ómetanlegan stuðning öll sem eitt 🌹

16/05/2026

Kæru landsmenn, nú styttist heldur betur í stóru stundina, kosningar á morgun um allt land!

Sýndu stuðning og uppfærðu prófílmyndina þína með ramma Samfylkingarinnar. 🌹

Hlekkur á ramma í athugasemd👇

Hefur þú kynnt þér áherslur okkar í Urriðaholtinu? Þú finnur hlekk á helstu stefnumál okkar fyrir Urriðaholtið í fyrstu ...
14/05/2026

Hefur þú kynnt þér áherslur okkar í Urriðaholtinu? Þú finnur hlekk á helstu stefnumál okkar fyrir Urriðaholtið í fyrstu athugasemd 🌹

Kíkið til okkar á laugardaginn 🌹
14/05/2026

Kíkið til okkar á laugardaginn 🌹

14/05/2026

Byggjum upp fyrir eldri Garðbæinga 🌹

14/05/2026

Kjartan Atli Kjartansson boðar stórátak í málefnum barnafjölskyldna í Garðabæ - úr oddvitaumræðum á RÚV 🌹

Address

Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samfylkingin í Garðabæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samfylkingin í Garðabæ:

Share