01/05/2026
Boðað er til stofnfundar Auðar, félags Sjálfstæðiskvenna í Garðabæ, 6. maí kl. 19:30 í sal GKG.
Á fundinum verður stjórn félagsins skipuð og mótuð stefna fyrir öflugt og sýnilegt starf kvenna innan Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Þetta er tækifæri til að hafa áhrif frá fyrsta degi – allar konur eru hvattar til að mæta.
Kvennagleði Garðabæjar hefst að loknum fundi þar sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ bjóða í kvennakokteil ásamt léttum veitingum og ljúfum tónum.
Sjáumst sem flestar!