Eskifjörður - Eskifirði

Eskifjörður - Eskifirði Síða um Eskifjörð, Eskifirði, Endilega setjið inn myndir hingað inn sem þið eigið (farið í vegginn/ o Eskifjörður er innfjörður úr Reyðarfirði norðanverðum.

Sunnan megin við hann er Vöðlavík, með sendinni strönd og malarrifi. Búið var meðfram strönd Eskifjarðar allri út að Kaganesi sem er nær undirlendislaust undir Snæfugli, þangað liggur slóði. Norðmenn stunduðu síldveiðarvið Eskifjörð upp úr 1870 og höfðu aðsetur með strandlengjunni og má víða greina leifar þeirrar atvinnustarfsemi. Námuvinnsla á silfurbergi var í Helgustaðanámu frá 17 öld, fram á fyrri hluta 20. aldar og er göngustígur þangað frá Eskifirði. Á leið þangað er Mjóeyri sem er síðasti aftökustaður á Austurlandi og þar er rekin gisti- og ferðaþjónusta. Börn og unglingar bæjarins hafa sett þar vegalengdaskilti til allra helstu staða heims. Eitt af því sem setur hlýlegan svip á Eskifjarðarkaupstað eru sjóhúsin sem standa út í fjörðinn. Sum þeirra eru lifandi söfn og frábært að heimsækja þau. Annað er Gamlabúð sem er sjóminja og atvinnuvegasafn, þar er sagan gerð lifandi og leiðsögnin frábær. Listaverkið Freska Baltasars prýðir Hraðfrystihúsið er einnig virði skoðunarferðar. Svo er Myllan og fossinn í Bleiksánni sem er upplýst árið um kring. Norðan fjarðarins gnæfa Askja og Hólmatindur sem eru einkennistákn fjarðarins.Milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar er ekið yfir Hólmaháls. Þar er völvuleiði sem vert er að skoða. Einnig er Hólmanes sem er friðlýstur fólkvangur neðan vegar. Þar eru gönguleiðir merktar og þar má finna fuglabjarg með tiltölulega auðveldu aðgengi.

Á Eskifirði er golfvöllur, ný útisundlaug, gott íþróttahús, skóli og leikskóli, Þar er einnig eitt af flottustu steinasöfnum landsins, steinasafn Sörens og Sigurborgar, heilsugæsla, lögreglustöð, og Sýslumannssetur.

29/07/2026
eiga einhverjar goða mynd af Freskunni?
04/06/2026

eiga einhverjar goða mynd af Freskunni?

Er einhver sem lumar á myndum í góðri upplausn af Freskunni sem Baltasar málaði og hékk uppi á gömlu frystigeymslunni.

Ef þið eigið góða mynd þá má senda á [email protected]

Vélarvana á úthafinu Þegar Steini Thengs sigldi á dósarlokinu frá Færeyjum til Íslandsgrein úr Austri - 15. janúar 1998 ...
18/05/2026

Vélarvana á úthafinu

Þegar Steini Thengs sigldi á dósarlokinu frá Færeyjum til Íslands

grein úr Austri - 15. janúar 1998

Sjá fulla grein hér
https://timarit.is/files/71511285

17/03/2026

Eskifjörður - Eftirprentun - Opið upplag til miðnættis 23.03.2026

Eitt af þeim bæjarstæðum sem ég hef oftast verið beðinn um að mála er Eskifjörður og í gegnum árin þegar mikið er spurt um ákveðin mótíf hef ég reynt að svara kallinu. Svo hérna er hann mættur á strigann. Eskifjörðurinn sjálfur. :)

Á miðjum Austfjörðum liggur Eskifjörður kyrr og djúpur milli fjalla þar sem sjórinn speglar litbrigði himinsins. Þorpið teygir sig meðfram firðinum þar sem húsin mynda fallega röð við ströndina og lífið mótast af nálægðinni við hafið og stórbrotna náttúruna allt um kring. Kyrrðin sem hvílir yfir firðinum gefur manni ró í hjarta þar sem land og sjór renna saman.

Yfir öllu rís svo Hólmatindur, tignarlegur og sterkur. Brattar hlíðar hans bera merki veðra og tíma, en snjórinn efst á tindinum fangar síðustu birtu dagsins. Fjallið stendur sem vörður yfir firðinum og þorpinu sem tákn um styrk og stöðugleika í landslagi Austfjarða. Saman mynda Eskifjörður og Hólmatindur landslag sem er bæði hrífandi og kyrrlátt, þar sem ótrúleg fegurð náttúrunnar nýtur sín til hins ýtrasta.

Eskifjörður er vaxandi kauptún segir Steinn Jónsson skipstjóri, fulltrúi jafnaðarmanna í hreppsnefnd Eskifjarðar grein ú...
02/01/2026

Eskifjörður er vaxandi kauptún segir Steinn Jónsson skipstjóri, fulltrúi jafnaðarmanna í hreppsnefnd Eskifjarðar

grein úr Alþýðumaðurinn - 16. marz - 1967

Áramótaball á Eskifirði 1980.. Svo er fólk að gagnrýna verð á tónleika/böll í dag ;)
31/12/2025

Áramótaball á Eskifirði 1980..

Svo er fólk að gagnrýna verð á tónleika/böll í dag ;)

Jólaball í Valhöll 2003úr Ljósmyndasafni Helga Garðars
27/12/2025

Jólaball í Valhöll 2003

úr Ljósmyndasafni Helga Garðars

Jólahald fór vel fram 1985Hér eru jólasveinar í boði JC Eskifirði. 1985
27/12/2025

Jólahald fór vel fram 1985

Hér eru jólasveinar í boði JC Eskifirði.

1985

Fréttir af jólunum Þessar ungu stúlkur úr Eskifjarðarskóla tóku sig til fyrir jólin og seldu jólakort og notuðu andvirði...
26/12/2025

Fréttir af jólunum

Þessar ungu stúlkur úr Eskifjarðarskóla tóku sig til fyrir jólin og seldu jólakort og notuðu andvirðið til að kaupa lampa sem þær gáfu dvalarheimilinu Hátúni

1983

Gleðileg jól frá Seley hf. Söltunarstöðin Askja1968
26/12/2025

Gleðileg jól frá Seley hf.
Söltunarstöðin Askja

1968

Address

Strandgata
Eskifjörður
735

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Eskifjörður - Eskifirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Eskifjörður - Eskifirði:

Shortcuts

Share