10/02/2026
Byrja við Tehúsið. Tökum þátt í 112 deginjm og verum vakandi fyrir slysum.
112 dagurinn er á morgun 11.febrúar. Viðbragðsaðilar á Héraði ætla að sameinast í hópakstri í tilefni dagsins. Farið verður frá planinu við Tehúsið á Egilsstöðum kl 17:00 og ekinn hringur um Fellabæ og Egilsstaði undir bláum ljósum. Að loknum akstri kl 17:30 verður stöðvað við Tehúsið þar sem bílar og búnaður verður til sýnis.