16/06/2026
Ljóð á flugi er sýning sem Minjasafn Austurlands og Héraðsskjalasafn Austfirðinga hafa sett upp í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní. Hér hjálpa söfnin tuttugu ljóðum úr safnkosti skjalasafnsins að hefja sig til flugs. Ljóðin eru eftir tuttugu ljóðskáld frá Austurlandi og leitast var við að velja ljóð eftir minna þekkt skáld og sem ekki hafa komið út á bók. Ljóðin eru til í skjalasafninu, ýmist í handritum eða vélritum skáldanna sjálfra eða einhverra sem skrifuðu þau hjá sér og varðveittu. Minjasafnið verður opið frá 11-17 á þjóðhátíðardaginn og aðgangur er ókeypis 🇮🇸🇮🇸🇮🇸