02/09/2026
Úr myndasafni SSA – Seyðisfjörður 2009
Átti Austurland að verða eitt sveitarfélag?
Það var ein af stóru spurningunum á 43. aðalfundi SSA, sem haldinn var í Herðubreið á Seyðisfirði dagana 25.–26. september 2009.
Árið eftir bankahrunið voru sveitarfélög landsins undir miklum fjárhagslegum þrýstingi og framundan var niðurskurður hjá ríki og sveitarfélögum. Á fundinum var þó ekki aðeins rætt um hvernig mætti verjast samdrættinum heldur hvernig Austurland gæti sótt fram. Yfirskrift hluta dagskrárinnar var einmitt Austurland, landshluti í sókn.
Stærsta samþykkt fundarins sneri þó að sveitarfélögunum sjálfum. Samþykkt var samhljóða að fela stjórn SSA að skipa starfshóp til að skoða hugsanlega sameiningu allra sveitarfélaganna á starfssvæði SSA í eitt sveitarfélag. Í samþykktinni var verkefnið kallað „ótvírætt tímamótaverkefni, sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi“.
Hugmyndin kom ekki úr tómarúmi. Á fundinum var einnig rætt um framtíðarskipulag SSA og aukið samstarf sambandsins og stoðstofnana á Austurlandi. Markmiðið var meðal annars að draga úr skörun, nýta betur sameiginlega krafta og einfalda stjórnsýslu. Þarna má sjá upphaf þeirrar vinnu við aukið samstarf SSA og stoðstofnana sem hélt áfram næstu árin og lauk með stofnun Austurbrúar árið 2012.
Þorvaldur Jóhannsson, þáverandi framkvæmdastjóri SSA, rifjaði síðar upp í grein í Morgunblaðinu að hugmyndir um sterkari sameiginlega stjórnsýslu á Austurlandi ættu sér miklu lengri sögu. Fjórðungsþing Austfirðinga hafði þegar um miðja síðustu öld lagt til að Íslandi yrði skipt í s*x fylki og Austurland yrði eitt þeirra. Árið 1950 voru sveitarfélög á Austurlandi 34 en árið 2009 voru þau níu.
Jarðgöng voru að sjálfsögðu líka á dagskrá. SSA ítrekaði að næstu jarðgöng á Austurlandi ættu að vera Norðfjarðargöng, Vopnafjarðargöng og Seyðisfjarðargöng. Norðfjarðargöng voru jafnframt skilgreind sem fyrsti hluti svokallaðra Miðfjarðaganga, framtíðarsýnar um jarðgangatengingu frá Eskifirði um Norðfjörð, Mjóafjörð og Seyðisfjörð til Héraðs.
Heiðursgestur fundarins var Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði, fyrrverandi bæjarstjóri og formaður SSA. Björn Hafþór Guðmundsson, formaður SSA, fór yfir langan feril Jónasar í ávarpi við hátíðarkvöldverðinn – með þeim létta brag að Austurglugginn birti síðar úrdrátt úr ræðunni undir fyrirsögninni: „Jónas er verulega ábyrgur fyrir bankahruninu.“
Meðfylgjandi myndir eru frá aðalfundinum á Seyðisfirði árið 2009 en í tilefni af 60 ára afmæli SSA í haust höfum við verið að gramsa í myndasafninu og rifja upp brot úr sögu samstarfs sveitarfélaga á Austurlandi.