25/08/2026
Sæl öll. Vegna bilunar í loftræstingu í sundlaug má búast við töluvert meiri gufu en venjulegt er í sundlauginni. Starfsmenn munu reyna að lágmarka þetta með því að hafa opið út ef þurfa þykir. Búið er að panta nýja loftræstisamstæðu en það mun taka nokkrar vikur að setja hana saman og koma henni upp, gestir eru beðnir um að sýna þessu skilning því hinn kosturinn er að loka sundlauginni.
Eins er hægt að nefna það að gufubaðið er loksins tilbúið og er væntanlegt á bryggju í Reykjavík næstu daga. Vonandi lýkur uppsetningu þess nú í september.
Að lokum, vegna óviðráðanlegra orsaka mun íþróttamiðstöðin loka kl 14:00, laugardaginn 29.
Forstöðumaður