Menningarhúsið Berg

Menningarhúsið Berg Í Bergi eru haldnir tónleikar, ráðstefnur, fundir, kvikmyndasýningar, veislur, afmæli og í raun mannfagnaðir af öllu tagi.

Húsið er opið virka daga 11:00 - 17:00
og laugardaga 13:00 - 16:00

Menningarhúsið Berg er staðsett í hjarta Dalvíkur og er glæsileg umgjörð utan um hverskonar menningarstarfsemi. Í Bergi er einnig bókasafn bæjarins og kaffi- og veitingarhúsið Hóllinn. Bókasafn Dalvíkurbyggðar er gott safn, þar er hægt að setjast niður eða á kaffihús fá sér kaffi og lesa bók, skoða dagblöð dagsins eða tímarit viku

nnar. Héraðsskjalasafn Svarfdæla er í Kjallara Bergs og þar er margt að skoða og þar er einnig hægt að setjast niður við rannsóknar eða ritgerðarvinnu.

Myndir frá dásamlegum tónleikum Blood Harmony í síðustu viku
28/05/2026

Myndir frá dásamlegum tónleikum Blood Harmony í síðustu viku

Frábært listafólk heimsækir Dalvík á morgun, fimmtudag, kl 20
27/05/2026

Frábært listafólk heimsækir Dalvík á morgun, fimmtudag, kl 20

Salka kvennakór var með afar vel sótta og sérstaklega fallega tónleika hjá okkur um daginn.
26/05/2026

Salka kvennakór var með afar vel sótta og sérstaklega fallega tónleika hjá okkur um daginn.

Blood Harmony - útgáfutónleikar í Bergi kl. 20 í kvöldÍ kvöld er loks komið að því að systkinin Örn, Ösp og Björk í hljó...
20/05/2026

Blood Harmony - útgáfutónleikar í Bergi kl. 20 í kvöld

Í kvöld er loks komið að því að systkinin Örn, Ösp og Björk í hljómsveitinni Blood Harmony fagni útgáfu plötu sinnar með tónleikum í heimabyggð! Þau munu leika lög af plötunni í heild sinni, auk ábreiðna af lögum sem eru í miklu uppáhaldi hjá þeim.
Á tónleikunum fá þau til liðs við sig Sigmar Þór Matthíasson á bassa og Þorvald Þór Þorvaldsson á slagverk.
Miðaverð er 7500 kr og verða miðar seldir í hurð.
FORSALA verður í afgreiðslu Bókasafnsins á opnunartímum safnsins. Forsöluverð er 6500 en henni lýkur kl 17:00 þann 21.maí.

Platan, sem bæði kemur út á vínyl og CD, verður til sölu að tónleikum loknum.

Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Dalvíkurbyggðar

FÖNDUR OG HANDVERKSSÝNINGÞað er bjartur og fallegur dagur á Dalvík. Í Menningarhúsinu Bergi og á Bókasafninu er margt um...
19/05/2026

FÖNDUR OG HANDVERKSSÝNING
Það er bjartur og fallegur dagur á Dalvík. Í Menningarhúsinu Bergi og á Bókasafninu er margt um að vera.

------

Föndur - Origami á Bókasafninu kl. 15-16.30

Þar er hægt að læra að brjóta origami trönu (fugl)
úr fallegum pappír.

------

Handverkssýning í salnum kl. 14-17

Tómstundastarf eldri borgara og öryrkja í
Dalvíkurbyggð

Opnun sýningar Guðbjargar Ringsted - Blómlegt, heppnaðist einstaklega vel enda sýningin gullfalleg. Hún verður opin á op...
18/05/2026

Opnun sýningar Guðbjargar Ringsted - Blómlegt, heppnaðist einstaklega vel enda sýningin gullfalleg.

Hún verður opin á opnunartíma bókasafnsins, til kl. 17 á virkum dögum og 16 á laugardögum, til 4. júní nk.

Í kvöld kl. 20!
15/05/2026

Í kvöld kl. 20!

Sumarið kemur með Sölkunum! Árlegir vortónleikar Sölku kvennakórs á föstudag, 15. maí, kl. 20.

Að vanda er lagaval fjölbreytt í skemmtilegum útsetningum.

Stjórnandi: Mathias Spoerry
Undirleikur: Hörður Kristjánsson
Kynnir: Þórey Dögg Jónsdóttir

Miðaverð 5000 kr

Sýning á verkum eldri borgara og öryrkja í Dalvíkurbyggð 19. maí
14/05/2026

Sýning á verkum eldri borgara og öryrkja í Dalvíkurbyggð 19. maí

Address

Goðabraut
Dalvík
620

Opening Hours

Monday 11:00 - 17:00
Tuesday 11:00 - 16:00
Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 13:00 - 16:00

Telephone

+3544604931

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningarhúsið Berg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Menningarhúsið Berg:

Share