07/05/2026
Athygli göngugarpa og annarra vegfarenda er vakin á því að grafist hefur undan veginum mitt á milli suðurenda Böggvisbrautar og Böggvisstaða, á svokölluðum Böggvisstaðahring.
Ræsisrör undir veginum hefur líklega lagst saman og því safnast vatn ofan við veginn sem hefur svo grafið undan honum.
Í fyrramálið verður gamla ræsisrörið grafið upp og nýtt sett niður í staðinn. Göngu- og hjólaleiðin verður því lokuð frá 8:00 og þangað til verki er lokið. Fram að því eru allir hvattir til að fara varlega þarna um.