Borgarbyggð

Borgarbyggð Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Borgarbyggð, Digranesgata 2, Borgarnes.

Borgarbyggð er um 4.926 ferkílómetrar að stærð, sem gerir það eitt af víðfeðmustu sveitarfélögum á Íslandi. Íbúar eru um 4300 og dreifast nokkuð jafnt í þéttbýli og dreifbýli Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag með ríka sögu, í nálægð við höfuðborgina þar sem íbúar og gestir upplifa ölfugt skólastarf, íþrótta-, menningar- og listalíf, góða þjónustu og vinalegt viðmót ásamt fjölbreyttri afþreyingu í einstakri náttúrufegurð.

💙Við erum öll í sama liði!   er í dag og af því tilefni klæðumst við okkar uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings barna ...
04/09/2026

💙Við erum öll í sama liði!

er í dag og af því tilefni klæðumst við okkar uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings barna með krabbamein og fjölskyldum þeirra 🫶

👕 Treyjudagurinn er haldinn af Börn með krabbamein, styrktarfélag og er þetta í fyrsta sinn sem dagurinn er haldinn hér á landi. Við hvetjum áhugasama til að kynna sér þetta mikilvæga málefn á treyjudagur.is 💙

03/09/2026

Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með nýbökuðum foreldrum á einstökum tímamótum✨

Aldan Borgarnesi annast utanumhald á þessu verkefni og sækja má barnapakka til þeirra 🍼

Með þessu bjóðum við nýja einstaklinga velkomna og óskum þeim og foreldrum alls hins besta með von um bjarta framtíð 🫶

Nánari upplýsingar má finna hér 👇
https://borgarbyggd.is/stofnun/aldan/sidur/forsida/barnapakki-borgarbyggdar-og-oldunnar

Kaffispjall með forseta sveitarstjórnar ☕  💡Nú gefst íbúum tækifæri til að eiga gott og uppbyggilegt spjall, viðra hugmy...
03/09/2026

Kaffispjall með forseta sveitarstjórnar ☕

💡Nú gefst íbúum tækifæri til að eiga gott og uppbyggilegt spjall, viðra hugmyndir eða koma með ábendingar.
Jovana Pavlović, forseti sveitarstjórnar, tekur vel á móti ykkur til kl. 14:00 í dag.

💬Við bendum einnig á bókunarsíðu Borgarbyggðar, þar sem hægt er að bóka fundi fram í tímann:
https://borgarbyggd.is/sidur/stjornsysla/mannaudur/vidtalstimar-starfsfolks

Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK vinna nú að endurnýjun lagna hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu en...
02/09/2026

Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK vinna nú að endurnýjun lagna hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu en ásamt því er öllu yfirborði götu og gangstétta skipt út 🦺

🛑 Lokað er á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu.
🟢Bent er á grænmerkta hjáleið sem merkt er á meðfylgjandi korti.
🟧Hótelgestum og íbúum Egilsgötu er heimilt að fylgja appelsínugulri hjáleið.

Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og er mikilvægt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.

🛠️Með framkvæmdunum er ráðist í endurnýjun mikilvægra innviða til hagsbóta fyrir íbúa og samfélagið í heild.
Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir sýnda þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.

Virkniþing Borgarbyggðar 2026 🤸‍♀️Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarf...
02/09/2026

Virkniþing Borgarbyggðar 2026 🤸‍♀️

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarfjarðar til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti. 🏛️
Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri 💫

👉 Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið að taka þátt og kynna starfsemi sína sér að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar má finna hér ⬇️
https://borgarbyggd.is/frettir/virknithing-borgarbyggdar-2026

📜Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki📜Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf ...
01/09/2026

📜Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki📜

Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu 🎭

Umsóknarfrestur er til 15. september 2026 ⏰

🔗 Nánar hér ⬇️

Nýtt ungmennaráð Borgarbyggðar fyrir starfsárið 2026-2027 hefur tekið til starfa  💫Borgarbyggð vill færa fráfarandi ungm...
31/08/2026

Nýtt ungmennaráð Borgarbyggðar fyrir starfsárið 2026-2027 hefur tekið til starfa 💫

Borgarbyggð vill færa fráfarandi ungmennaráði innilegar þakkir fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til málefna ungs fólks í sveitarfélagin 🤝

💡Ungmennaráð Borgarbyggðar gegnir mikilvægu hlutverki sem samráðsvettvangur ungs fólks og sveitarfélagsins. Hlutverk ráðsins er meðal annars að koma sjónarmiðum og tillögum ungs fólks á framfæri við sveitarstjórn og aðra stjórnendur sveitarfélagsins, gæta hagsmuna ungs fólks og stuðla að aukinni þátttöku þess í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku🫶

🔗 Hlekk á frétt er að finna í fyrstu athugasemd

Stór hópur iðkenda sækir nú æfingar í Hlöðuna og viljum við benda á að óviðkomandi akstur heim að fjölnotahúsinu er bann...
31/08/2026

Stór hópur iðkenda sækir nú æfingar í Hlöðuna og viljum við benda á að óviðkomandi akstur heim að fjölnotahúsinu er bannaður 🛑
Aðkoma að húsinu er eingöngu ætluð forgangsakstri, hreyfihömluðum og þeim sem sinna þjónustu við húsið 🦺

Við bendum á sleppistæði við rútúskýlið, einnig er hægt að leggja við íþróttahúsið 🅿️
Sýnum sérstaka aðgát þegar börn eru að koma og fara á æfingar, virðum bann við akstri að húsinu og tryggjum þannig öruggara umhverfi fyrir börnin 🤝

Til upplýsinga 💡Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB  fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026 📩Á heima...
28/08/2026

Til upplýsinga 💡

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026 📩
Á heimasíðu Borgarbyggðar má finna upplýsingar um kjörstaði, opnunartíma þeirra ásamt kosningu utan kjörfundar.
https://borgarbyggd.is/frettir/thjodaratkvaedagreidsla-um-adildarvidraedur-vid-esb

🪪 Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Hægt er að skoða það hér 👉 https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/thjodaratkvaedagreidsla-2026/

Þar kjósa íbúar Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Í ár verður kjörfundur í Kleppjárnsreykjakjördeild í nýja hluta grunnskólans. Best er þá að leggja í bílastæðin við Borgarfjarðarbraut en keyra ekki inn í portið. Hur...

🗣️ Við auglýsum eftir matráð í tímabundna stöðu (allt að einu ári) í skólamötuneyti við Grunnskóla Borgarfjarðar og leik...
28/08/2026

🗣️ Við auglýsum eftir matráð í tímabundna stöðu (allt að einu ári) í skólamötuneyti við Grunnskóla Borgarfjarðar og leikskólann Hnoðraból, Kleppjárnsreykjum 🍽️

🏫 Matráður vinnur í teymi með yfirmatráði og aðstoðarmatráði sem skipta með sér verkum við matseld og bakstur, skipulag matseðla og annarra tilfallandi verkefna.

Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2026 ✅

Nánari upplýsingar hér 👇
https://alfred.is/starf/matradur-a-kleppjarnsreykjum-i-borgarfirdi

Address

Digranesgata 2
Borgarnes
310-311-320

Opening Hours

Monday 09:30 - 15:00
Tuesday 09:30 - 15:00
Wednesday 09:30 - 15:00
Thursday 09:30 - 15:00
Friday 09:30 - 14:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Borgarbyggð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share