MÁTTUR MEYJA OG MANNA

MÁTTUR MEYJA OG MANNA Máttur Meyja og Manna eru stjórnmálasamtök sem hafa það að leiðarljósi að efla bolvískt samfélag.

Við hjá Mætti meyja og manna erum þakklát fyrir mikinn stuðning og fjölda atkvæða. Við tökum stolt við nýju hlutverki.
19/05/2026

Við hjá Mætti meyja og manna erum þakklát fyrir mikinn stuðning og fjölda atkvæða. Við tökum stolt við nýju hlutverki.

"Niðurstaðan er vissulega vonbrigði en við stöndum með bakið beint og full af þakklæti." segir Guðfinnur Ragnar Jóhannsson, oddviti K-listans í Bolungavík sem tapaði meirihluta sínum í bæjarstjórn Bolungavíkur til O listans, Betri Bolungarvík. "Ég vil þakka hverjum einasta íb....

Kjördagurinn nálgast 🧡Það verður veglegt með kaffinu, ís og grill á morgun!Við viljum líka nota tækifærið og þakka fyrir...
15/05/2026

Kjördagurinn nálgast 🧡
Það verður veglegt með kaffinu, ís og grill á morgun!

Við viljum líka nota tækifærið og þakka fyrir allar hlýju kveðjurnar, góðu samtölin og meðbyrinn síðustu vikur. Við finnum virkilega fyrir stuðningnum og það gefur okkur kraft 💥

Ef einhverjar spurningar vakna við lestur stefnumálanna er alltaf hægt að bjalla eða mæta til okkar í spjall.

Við opnum kosningaskrifstofuna kl. 10:00 og kaffið byrjar kl. 13:00. Kosningavakan verður fram á nótt 🧡

Sama hver úrslitin verða förum við þakklát frá þessari kosningabaráttu og munum taka því hlutverki sem okkur er falið af ábyrgð og stolti.

Sjáumst á morgun – og munið að setja X við K.

Karen Arna Hannesdóttir skipar 4. sæti á lista Máttar meyja og manna.Karen flutti til Bolungarvíkur árið 2014 og hefur l...
15/05/2026

Karen Arna Hannesdóttir skipar 4. sæti á lista Máttar meyja og manna.

Karen flutti til Bolungarvíkur árið 2014 og hefur liðið afar vel í samfélaginu síðan. Hún starfar hjá Orkubúi Vestfjarða sem rafvirki á eftirlitsdeild og leggur áherslu á dugnað, samviskusemi og að hlutirnir séu gerðir vel.

Karen á þrjú börn og telur það mikil forréttindi að ala börn upp úti á landi. Í frítíma sínum nýtur hún þess að vera úti við, sérstaklega í garðinum þar sem hún hefur mikinn áhuga á ræktun og umhirðu umhverfisins.

“Mitt hjartans mál er ásýnd bæjarins,“ segir Karen. Hún er með græna fingur og vill sjá fleiri falleg og græn svæði í bænum okkar. Að hennar mati skiptir máli að nærumhverfið sé snyrtilegt, hlýlegt og aðlaðandi fyrir íbúa og gesti.

Karen vill að sveitarfélagið sé hvetjandi og jákvætt í umhverfismálum og styðji við fegrun bæjarins. Hún vill meðal annars koma á fót umhverfisverðlaunum, til dæmis fyrir fallegasta garðinn, mestu framfarirnar og grænustu eða fallegustu götuna.

Ef þetta er það sem þú vilt sjá, þá settu X við K.

15/05/2026

Magnús og Guðfinnur ræða verkefnin sem bíða:
- Klára vinnu við göngustíg meðfram smábátahöfn og áfram yfir Sandinn og inn í Ósvör.

- Byggja upp þjónustuaðstöðu bæði í Ósvör, á Bolafjalli eða á Skálavíkurheiði.

- Bæta þjónustu við ferðamenn með upplýsingaskiltum, QR kóðum og móttökuplani við aðkomu inn í sveitarfélagið.

- Styðja hugmyndir um hýsingu náttúrugripasafnsins.

15/05/2026

Vegna umræðunnar um félagsþjónustuna í Bolungarvík.

Það hefur verið eitt af markmiðum K-lista Máttar meyja og manna á kjörtímabilinu að efla félagsþjónustuna með sérstakri áherslu á að styrkja þjónustu sem snýr að börnum og fjölskyldum þeirra.

Ráðinn var starfsmaður í félagsþjónustuna til að innleiða ný farsældarlög, lög sem byggja á því að halda betur utan um og efla velferðarþjónustu í Bolungarvík. Sá starfsmaður heldur einnig utan um málstjórn stuðningsteyma barna og þeirra fjölskyldna og leitar úrræða sem á þurfa að halda. Með tilkomu ráðningu Tómstundarfulltrúa verður enn meiri metnaður lagður í að efla starf ungmenna, halda utan um þeirra tómstundir og virkja þau til félagslegrar þátttöku.
Bolungarvík var hluti af samstarfsverkefninu „Gott að eldast“ sem var á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara, auk fjölda annarra hagaðila. Í þeirri vinnu kom fram að Bolungarvík veitir eldri íbúum Bolungarvíkur mjög góða þjónustu.

Félagsþjónustan í Bolungarvík starfar eftir félagsþjónustulögum sveitarfélaga, samþykkt á Alþingi árið 1990. Störf starfsmanna félagsþjónustunnar eru byggð á trúnaði vegna eðli þjónustunnar sem þar er veitt.

Það er stefna okkar á K-listanum að halda áfram að efla félagsþjónustuna. Leggja áherslu á skilvirkni og samfellu í þjónustu, snemmtækan stuðning, samvinnu á milli stofnana og kerfa og gott aðgengi allra að þjónustu með velferð barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.

Það er ekki okkar sýn að flytja þjónustu við bæjarbúa, eins og félagsþjónustu úr sveitarfélaginu. Það er skynsamlegast að veita þjónustu á félagslegum forsendum í nærumhverfi notandans þar sem öryggi hans og velferð er sem best varið. Við þurfum að hafa metnað til að veita slíka þjónustu í sveitarfélaginu.
Starfsfólk félagsþjónustu Bolungarvíkurkaupstaðar er alltaf til í samtal um velferðarmál í samfélaginu, hvaða þjónusta er til staðar, forsendur hennar og hvar má bæta hana.

K-listi Máttar meyja og manna

Við ætlum að skemmta okkur í kvöld — og enda kosningabaráttuna eins og okkur einum er lagið 🧡Við fögnum saman bænum okka...
15/05/2026

Við ætlum að skemmta okkur í kvöld — og enda kosningabaráttuna eins og okkur einum er lagið 🧡

Við fögnum saman bænum okkar, afrakstri síðustu fjögurra ára, kraftinum í samfélaginu og öllum þeim tækifærum sem framundan eru.

Tónlist, fjör og gleði frá kl. 20:00 🎶

Fasteignaskattur í BolungarvíkVið höfum fengið margar fyrirspurnir um fasteignaskattinn í Bolungarvík. Afhverju hefur ha...
14/05/2026

Fasteignaskattur í Bolungarvík
Við höfum fengið margar fyrirspurnir um fasteignaskattinn í Bolungarvík. Afhverju hefur hann hækkað svona mikið á undanförnum árum og hvað höfum við í MMM gert. Skoðum aðeins betur hvað fasteignaskattur er og hvaða lög og reglur gilda um hann: Í 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 430/1995 stendur: „Leggja skal árlega fasteignaskatt á allar fasteignir sem metnar eru í fasteignamati 31. desember á næstliðnu ári samkvæmt fasteignaskrá. Stofn til álagningar fasteignaskatts á allar fasteignir skal vera fasteignamat þeirra.“ Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) sér um fasteignamat húsa á öllu landinu. Fasteignamat er verðmat á virði húss og lóðar. Forsendur þess eru meðal annars flatarmál, aldur og ástand, staðsetning og tölfræðileg gögn um kaupsamninga á landinu. Fasteignamat er endurmetið á hverju ári og fá eigendur tilkynningu í júní um áætlað fasteignamat fyrir næsta ár. Fasteignamat 2026 miðast því við verðlag fasteigna í febrúar 2025 og tekur gildi 31. desember 2025.

Í lögunum um tekjustofna sveitarfélaga segir einnig að: „Sveitarstjórn ákveður fyrir lok árs skatthlutfall næsta árs“. Tilgreint skatthlutfall skal vera:
• Allt að 0,5% af fasteignamati fyrir íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
• 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum fyrir sjúkrastofnanir, skóla, heimavistir, leikskóla, íþróttahús og bókasöfn.
• Allt að 1,32% af fasteignamati, ásamt lóðarréttindum fyrir allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Þar kemur einnig fram að sveitarstjórn er heimilt að hækka fasteignaskatta um allt að 25% hundraðshluta þá liði sem falla undir fyrsta og þriðja punktinn hér að ofan. Sé sú heimild nýtt verður hámarksálagning fasteignaskatts fyrir fyrsta punktinn 0,625% af fasteignamati og er það sú álagning sem notast var við í Bolungarvík til ársins 2024 þegar við í MMM lækkuðum þá prósentutölu niður í 0,5% af fasteignamati.

Þróun fasteignamats
Á myndinni hér að neðan sjáum við þróun fasteignamats á mínu íbúðarhúsnæði frá árinu 2019 til ársins 2026. Húsið er 111 fermetra raðhús með 30 fermetra bílskúr fyrir þá sem vilja glöggva sig á því. Árið 2019 er fasteignamatið 13,9 milljónir en stendur nú í 39,5 milljónum. Þessi hækkun á fasteignamati nemur 184,1% milli áranna 2019 og 2026. Hefðum við í MMM ekki gripið inn í árið 2024 og lækkað fasteignaálögur á íbúðarhúsnæði hefði fasteignaskatturinn á sömu eign hækkað um 246,8% á sama tímabili.

Það kemur einnig fram í 4 gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga að: „Sveitarstjórn ákveður fjölda gjalddaga fasteignaskatts fyrir upphaf árs en heimilt er sveitarstjórn að ákveða að skatturinn greiðist allur á einum gjalddaga ef álagning er undir tiltekinni fjárhæð.“ Hér í Bolungarvík eru gjalddagarnir 10 en engir gjalddagar fasteignaskatts eru í janúar og í desember.

Þróun fasteignagjaldanna
Á myndinni hér að neðan sjáum við þróun hluta fasteignagjaldanna, fasteignaskatts, vatnsskatts og holræsagjalds fyrir sömu eign og sama tímabil og rætt var um áðan. Á myndina vantar sorpgjald, sorpeyðingargjald og lóðarleigu. Lóðarleigan hækkaði um 167% og fór úr 14.420 kr. í 38.500 kr. á tímabilinu, sorpgjaldið hækkaði um 58,8% og fór úr 27.950 kr. í 44.409 kr. og sorpeyðingargjaldið hækkaði um 36,16% og fór úr 25.750 kr. í 35.060 kr. Þessar tölur eru allar sýndar sem heildartölur fyrir árið áður en þeim er deilt niður á 10 gjalddaga.
Á myndinni sést skýr sú breyting sem verður á álagningu fasteignaskatts árið 2024 þegar álagningin fer úr 0,625% í 0,5% sem er sú sama og hún er enn. Álagning vatnsskatts breytist árið 2021 þegar álagningin er lækkuð úr 0,40% í 0,30%. Árið 2022, áður en MMM tekur við meirihlutanum, er álagningin hækkuð úr 0,30% í 0,35% þar sem hún er ennþá. Álagning holræsagjalds breytist tvisvar á tímabilinu. Annarsvegar árið 2023 þegar það fer úr 0,275% í 0,2% og hinsvegar árið 2026 þegar það er lækkað enn frekar úr 0,2% í 0,14%.
Þegar öll fasteignagjöldin eru reiknuð saman á tímabilinu 2019 – 2026 fyrir sama húsnæði og nýtt er í dæmið hér að ofan sést að fasteignagjöld hafa hækkað um 116,68% (úr 234.920 kr. árið 2019 í 509.019 kr. árið 2026) á meðan fasteignamatið hefur hækkað á sama tíma um 184,17%. Prósenta fasteignaskattsálagningar hefur einnig verið lækkuð úr 0,625% í 0,5% sem skilar sér í enn minni álögum á íbúa heldur en hefði orðið. Sér það hver sá sem vill það sjá að með því að setja X við K setjum við bæði íbúa Bolungarvíkur og ábyrga meðferð fjármuna sveitarfélagsins í forgang.

Magnús Ingi Jónsson, forseti bæjarstjórnar

Framundan hjá okkur á kosningaskrifstofunni:Fimmtudagur 14. maí – Súpu­fundur kl. 18:00Hayat frá French Touch Café sér u...
13/05/2026

Framundan hjá okkur á kosningaskrifstofunni:

Fimmtudagur 14. maí – Súpu­fundur kl. 18:00
Hayat frá French Touch Café sér um súpuna af sinni einstöku hlýju og natni.
María Rut verður gestur kvöldsins – opnar spurningar, góðar umræður og notaleg stemning.

Föstudagur 15. maí – Skemmtikvöld kl. 20:00
eins og okkur einum er lagið – með lifandi tónlist og fjöri.

Góðar veitingar, opið hús og allir velkomnir að kíkja við 🧡

Minnum líka á pottinn í kvöld.

13/05/2026

Katrín Ugla fer yfir stefnumálin okkar:

- Bæta aðgengi íbúa að upplýsingum um réttindi sín varðandi félagsþjónustu.

- Koma á fót frístundastyrk fyrir eldri borgara og efla félagsstarf.

- Bæjarfélagið setji sér stefnu í málefnum eldri borgara í samstarfi við Öldungaráð.

Til hamingju!Ný heimasíða Bolungarvíkurkaupstaðar hefur verið tekin í gagnið. Síðan er ennþá í vinnslu, hægt er að senda...
08/01/2026

Til hamingju!
Ný heimasíða Bolungarvíkurkaupstaðar hefur verið tekin í gagnið. Síðan er ennþá í vinnslu, hægt er að senda tillögur á [email protected].
Með nýrri heimasíðu er ætlunin að auka aðgengi að upplýsingum, efla gagnsæi í stjórnsýslunni og auðvelda íbúum Bolungarvíkur með umsóknir til að sækja þjónustu sem sveitarfélgið veitir.

Hvet ykkur til að skoða síðuna 🧐

Vefur Bolungarvíkur er upplýsingavefur fyrir íbúa og ferðamenn.

Address

Traðarstígur 6
Bolungarvík
415

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when MÁTTUR MEYJA OG MANNA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to MÁTTUR MEYJA OG MANNA:

Share