Skagabyggð

Skagabyggð Skagabyggð er sveitarfélag í Austur Húnavatnssýsu

18/10/2024

Sorpmál
Búið er að segja upp karaleigu hjá Íslenska Gámafélaginu á Sauðárkrók þannig nú þurfa íbúar að skila heimilisúrgangi sem ekki er sóttur eða jarðgerður heima á móttöku Húnabyggðar að Efstubraut 5.

Opnunartími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 15:00-17:30, laugardagar kl. 13:00-17:00

11/10/2024

ÍBÚAR FYRRUM SKAGABYGGÐAR ATHUGIÐ

Þjóðlendumál: eyjar og sker

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur fyrir hönd íslenska ríkisins afhent óbyggðanefnd endurskoðaðar þjóðlendukröfur vegna eyja og skerja umhverfis landið. Kröfulýsingarnar og upplýsingar um málsmeðferðina er að finna á vefsíðu óbyggðanefndar. Þar er m.a. að finna samantekt lögmanna ríkisins um endurskoðunina.

Einnig hefur verið sett upp kortasjá um kröfurnar. Í henni er grá þekja yfir svæðum sem eru undanskilin kröfugerð ríkisins en blár borði er utan um eyjar og sker sem kröfur ríkisins taka til. Kortasjáin byggist m.a. á bestu fyrirliggjandi upplýsingum um fjörumörk en í kröfugerð ríkisins er gerður fyrirvari um að ekki sé útilokað að stórstraumsfjara nái lengra og að viðbótarupplýsingar þar að lútandi kunni að hafa áhrif á afmörkun, sbr. nánari upplýsingar á vefsíðu óbyggðanefndar.

Óbyggðanefnd kallar eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og hefur nú framlengt kröfulýsingarfrest þeirra til 13. janúar 2025.

— — —

Forsaga málsins og framhald málsmeðferðar
Upphaflega lýsti fjármála- og efnahagsráðherra þjóðlendukröfum vegna eyja og skerja í febrúar 2024 og landeigendum var þá veittur frestur til að lýsa gagnkröfum. Í apríl tilkynnti ráðherra óbyggðanefnd að ákveðið hefði verið að taka kröfugerð ríkisins til endurskoðunar. Óbyggðanefnd hefur síðan þá framlengt kröfulýsingarfrest landeigenda nokkrum sinnum, m.a. í því skyni að tryggja landeigendum nægan tíma að því loknu til að bregðast við endurskoðuðum kröfum ríkisins og eftir atvikum lýsa gagnkröfum. Sá frestur hefur nú verið framlengdur enn frekar, þ.e. til 13. janúar 2025.

Rannsókn óbyggðanefnd á málunum er hafin en hún felur m.a. í sér umfangsmikla og kerfisbundna gagnaöflun í samvinnu við sérfræðinga á Þjóðskjalasafni Íslands. Leiði rannsókn nefndarinnar í ljós að einhver kunni að telja til eignarréttinda án þess að hafa lýst kröfu innan fyrrgreinds frests verður viðkomandi gefinn kostur á að gerast aðili máls, sbr. 3. mgr. 13. gr. þjóðlendulaga.

Eftir að gagnaöflun lýkur og framkomin gögn hafa verið rannsökuð til hlítar úrskurðar óbyggðanefnd um kröfur málsaðila. Ef svæði sem ríkið hefur gert þjóðlendukröfur til reynast samkvæmt rannsókn óbyggðanefndar vera eignarlönd er kröfum ríkisins þar hafnað. Svæði sem reynast utan eignarlanda eru hins vegar úrskurðuð þjóðlendur. Ef óbein eignarréttindi reynast til staðar innan þjóðlendna er jafnframt úrskurðað um þau.

Nánari upplýsingar um málsmeðferð eru á vefsíðu óbyggðanefndar:

Almennar upplýsingar um málsmeðferð: https://obyggdanefnd.is/malsmedferd/
Upplýsingar um svæði sem eru til meðferðar hverju sinni og ýmislegt sem varðar málsmeðferð þar: https://obyggdanefnd.is/til_medferdar/

Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar veita Sigmar Aron Ómarsson, framkvæmdastjóri óbyggðanefndar, og Erna Erlingsdóttir skrifstofustjóri:

[email protected]
sími: 563 7000

Til meðferðar Sjá einnig Upplýsingar um málsmeðferð. Yfirlitskort Yfirlitskort – svæðaskipting og staða þjóðlendumála á landinu öllu (apríl 2023). Svæði 12 Eyjar og sker Kort sem sýnir afmörkun svæðis 12. Kortasjá um kröfur á svæði 12. Endurskoðaðar kröfur fjármála...

12/09/2024

Tilkynning:

Við verðum að tryggja að ekki komist vatn í pappatunnurnar okkar.

Öllum pappír 740kg sem safnað var síðast var hent þar sem hann var ýmist blautur og/eða myglaður. Þetta gerir 299.907 kr í tapaðar endurgreiðslur frá Úrvinnslusjóði sem deilast bara á okkur íbúana í fyrrum Skagabyggð.

Samkvæmt upplýsingum frá ÍGF var einnig vatn í botni margra tunna sem síðan helltist inn í bílinn þannig sá pappír sem var e.t.v. í lagi var eyðilagður þannig.

Við verðum að gera betur því lögum samkvæmt þá ber íbúum að greiða allan kostnað við sorphirðu en endurgjald Úrvinnslusjóðs á að koma á móti, því munar verulega um þetta.

Gangnaseðill Vindhælinga hefur verið leiðréttur, í fyrri útgáfu vantaði gangnamenn í göngurnar Hvammshlíðarland og Læki,...
27/08/2024

Gangnaseðill Vindhælinga hefur verið leiðréttur, í fyrri útgáfu vantaði gangnamenn í göngurnar Hvammshlíðarland og Læki, það hefur nú verið leiðrétt.

Gangnaseðlar fjallskiladeilda Skagamanna og Vindhælinga í Skagabyggð á fjallskilanefndarfundi Skagabyggðar í Skagbyggð 20.08.2024, sérstök athygli er vakin

22/08/2024

Gangnaseðlar fjallskiladeilda Skagamanna og Vindhælinga í Skagabyggð á fjallskilanefndarfundi Skagabyggðar í Skagbyggð 20.08.2024, sérstök athygli er vakin

Sveitarstjórnarfundur Húnabyggðar haldinn í Skagabúð í dag, í kjölfarið var Kálfshamarsvík skoðuð.
13/08/2024

Sveitarstjórnarfundur Húnabyggðar haldinn í Skagabúð í dag, í kjölfarið var Kálfshamarsvík skoðuð.

31/07/2024

Pistill frá fráfarandi oddvita

08/07/2024

Starf fræðslustjóra í Austur Húnavatnssýslu er laust til umsóknar

03/07/2024

Tilkynna þarf um áframhaldandi þátttöku í varmadæluverkefninu fyrir 9.júlí 2024

27/06/2024

Vinna við fornleifauppgröft í viku þrjú á Höfnum á Skaga gekk vel en þar hafa fornleifafræðingar og starfsmenn Byggðasafns Skagfirðinga unnið við björgunar

25/06/2024

Úthlutun styrkja í Styrkvegi 2024

22/06/2024

Address

Kambakot
Blönduós
541

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 12:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skagabyggð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Skagabyggð:

Share

Category