Glerárskóli

Glerárskóli Þetta er fésbókarsíða Glerárskóla, sem miðlar upplýsingum af heimasíðu skólans.

Glerárskóli tekur þátt í Göngum í skólann.Verkefnið Göngum í skólann er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Emb...
04/09/2026

Glerárskóli tekur þátt í Göngum í skólann.

Verkefnið Göngum í skólann er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, Mennta- og
menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.
Glerárskóli hefur verið skráður til leiks og við hvetjum nemendur og starfsfólk til að taka virkan þátt.
Glerárskóli hefur áður tekið þátt í Göngum í skólann þar sem unnið hefur verið með ýmsa þætti er tengjast umhverfi, umferð og hreyfingu og hefur árangur okkar verið mjög góður.

Göngum í skólann verður sett mánudaginn 7. september.
Við í Glerárskóla ætlum að taka þátt með skráningum í skólanum á hverjum virkum degi frá 7. september til og með 18. september 2026. Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast hér http://www.gongumiskolann.is

Allir nemendur koma heim í dag með endurskinsmerki tengt átakinu og hvetjum við alla til að nota það nú þegar skammdegið tekur við. Einnig hafa forráðamenn fengi póst um lista til að skrá sig á gangbrautarvörslu á meðan átakið er.

Glerárskóli tekur þátt í Treyjudeginum.Treyjudagurinn er föstudagurinn 4. september og þann dag hvetjum við nemendur og ...
02/09/2026

Glerárskóli tekur þátt í Treyjudeginum.

Treyjudagurinn er föstudagurinn 4. september og þann dag hvetjum við nemendur og starfsfólk
Glerárskóla til að klæðast uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein. Með Treyjudeginum bætist Ísland í hópinn.

Á Treyjudaginn klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni og sýnir þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra stuðning í verki.
Það skiptir ekki máli hvaða liði við höldum með, á Treyjudaginn erum við öll í sama liði fyrir börn með krabbamein.
Nánari upplýsingar um Treyjudaginn má finna hér.
https://treyjudagur.is/

Vel heppnaður útivistardagur.Í dag var útivistardagur hjá nemendum og starfsfólki Glerárskóla. Þó það hafi verið dálítið...
02/09/2026

Vel heppnaður útivistardagur.

Í dag var útivistardagur hjá nemendum og starfsfólki Glerárskóla. Þó það hafi verið dálítið þungbúið
yfir í morgun létti til þegar leið á daginn og við fengum gott útivistarveður. Unglingastigið gekk upp
að Hraunsvatni, miðstigið upp í Fálkafell, Gamla og þaðan yfir í Kjarnaskóg og yngsta stigið fór m.a. í Lystigarðinn, Sílabás og Krossanesborgir auk þess sem þau nýttu nærumhverfi skólans.

Dagurinn gekk vel, var skemmtilegur og það voru ánægðir og sælir nemendur sem skiluðu sér til baka í skólann að lokinni útivist dagsins.

Fleiri myndir eru á heimasíðu skólans https://glerarskoli.is/

Útivistardagur þriðjudaginn 1. september.Á morgun, þriðjudaginn 1. september 2026, verða nemendur og starfsfólk Glerársk...
31/08/2026

Útivistardagur þriðjudaginn 1. september.

Á morgun, þriðjudaginn 1. september 2026, verða nemendur og starfsfólk Glerárskóla á ferð og flugi úti um víðan völl vegna útivistardags Glerárskóla. Skóli verður þann daginn frá 8:15 til 13:15 hjá öllum nemendum og Frístund er opin að skóla loknum fyrir skráða nemendur í 1. – 4. bekk.

Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri, vel útbúnir til útivistar og með gott nesti.
Allar nánari upplýsingar hafa foreldra/forráðamanna fengið í tölvupósti.

1. bekkur fær nestisbox að gjöf.Þá er skólinn okkar farinn að iða af lífi og fjöri eftir að nemendur komu aftur til star...
28/08/2026

1. bekkur fær nestisbox að gjöf.

Þá er skólinn okkar farinn að iða af lífi og fjöri eftir að nemendur komu aftur til starfa eftir sumarfrí.

Fyrsta skóladag 1. bekkinga í skólanum var þeim öllum færð nestisbox að gjöf en það er foreldrafélag Glerárskóla sem gefur nestisboxin.
Um leið og við bjóðum 1. bekkinga velkomin í Glerárskóla þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir þessa gjöf.

Loksins er nýja og glæsilega skólalóðin okkar tilbúin.Í gær, á fyrsta skóladegi skólaársins 2026–2027, vígðum við nýju s...
26/08/2026

Loksins er nýja og glæsilega skólalóðin okkar tilbúin.

Í gær, á fyrsta skóladegi skólaársins 2026–2027, vígðum við nýju skólalóðina okkar formlega.
Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.

Nemendur hafa beðið spenntir en þolinmóðir á meðan framkvæmdirnar stóðu yfir og nú er biðin loks á enda.
Afraksturinn er ein flottasta skólalóð landsins og erum við afskaplega ánægð og stolt af þessu nýja og glæsilega umhverfi. Við hlökkum til að sjá skólalóðina okkar iða af lífi, leik og gleði.

Að sjálfsögðu héldum við formlega vígsluathöfn og klipptum á borða, eins og hefð er fyrir þegar ný og stór mannvirki eru tekin formlega í notkun. Það voru yngsti og elsti nemandi skólans sem fengu það verkefni að klippa á borðann og opna skólalóðina formlega.

Við erum einstaklega stolt af nýju skólalóðinni okkar og hlökkum til að sjá hana verða að vettvangi leikja, samveru og sköpunar fyrir nemendur okkar um ókomin ár.

Sjá fleiri myndir á heimasíðu skólans https://glerarskoli.is/

19/08/2026

Skólasetning Glerárskóla.

Mánudaginn 24. ágúst verður Glerárskóli settur í íþróttasal skólans eða í austurgryfju (fer ef veðri).

Skólasetning verður sem hér segir:
2.-4. bekkur kl. 9:00
5.-7. bekkur kl. 10:00
8.-10. bekkur kl. 11:00

Að skólasetningu lokinni ganga nemendur með umsjónarkennurum í stofur þar sem þeir fá allar helstu upplýsingar um skólastarfið.

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir til viðtals 24. ágúst 2026.
Forráðamenn fá tölvupóst um viðtalstíma.

Skólastarf hjá 1.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst 2026.

13/06/2026
Þriðjudaginn 9. júní fóru fram skólaslit og útskrift 10. bekkjar í Glerárskóla.Nemendur á yngsta- og miðstigi komu saman...
11/06/2026

Þriðjudaginn 9. júní fóru fram skólaslit og útskrift 10. bekkjar í Glerárskóla.

Nemendur á yngsta- og miðstigi komu saman til skólaslita um morguninn í blíðskaparveðri. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra, stýrði athöfninni og ræddi meðal annars um mikilvægi lesturs, góðra samskipta og þess að leggja sig ávallt fram við að gera sitt besta. Að loknum skólaslitum fóru nemendur til umsjónarkennara sinna ásamt foreldrum og forráðamönnum þar sem þeir fengu afhentan vitnisburð skólaársins.

Skólaslit unglingastigs og útskrift 10. bekkinga fóru fram í Glerárkirkju síðdegis. Eyrún Skúladóttir skólastjóri fór yfir liðið skólaár og sagði frá því faglega og metnaðarfulla starfi sem fram fer innan veggja Glerárskóla á hverjum degi.

Fannar Breki Kárason, sem útskrifaðist úr Glerárskóla fyrir fimm árum, flutti ávarp þar sem hann hvatti útskriftarnema til þrautseigju og ræddi mikilvægi þess að halda áfram, prófa sig áfram og læra af reynslunni.

Fyrir hönd útskriftarnema fluttu Ísabella Jóhannsdóttir, Una Björk Viðarsdóttir og Hrafn Leví Þórðarson ávarp þar sem þau rifjuðu upp skólagöngu síðustu tíu ára á skemmtilegan og líflegan hátt. Þá ávörpuðu Arna Ýr Guðmundsdóttir og Ragnar Logi Búason, umsjónarkennarar 10. bekkjar, útskriftarhópinn við mikla kátínu og gleði viðstaddra.

Við skólaslitin voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Elva Ósk Jónsdóttir og Maísól Anna Kristínardóttir Guðmundsdóttir hlutu viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í 8. bekk, Sara Millý Heiðarsdóttir fyrir bestan námsárangur í 9. bekk og Jökull Máni Kárason og Una Björk Viðarsdóttir fyrir bestan námsárangur í 10. bekk. Amanda Sól Davíðsdóttir hlaut viðurkenningu frá danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi árangur í dönsku.

Ísabella Jóhannsdóttir hlaut viðurkenningu frá Foreldrafélagi Glerárskóla fyrir að vera góður félagi. Verðlaunin eru veitt árlega nemanda sem stuðlar að samkennd, virðingu og umhyggju í samskiptum við aðra. Viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsmála hlaut Hrafn Leví Þórðarson.

Í ár voru Sölluverðlaunin veitt í fyrsta sinn. Þau eru veitt nemendum sem skara fram úr fyrir gott viðmót, kurteisi, góða umgengni og almenna góðmennsku. Að þessu sinni hlutu Alvilda Guðrún Ólafsdóttir og Sveinn Ármann Lárusson verðlaunin.

Útskrift nemenda er ávallt stór áfangi og mikilvæg tímamót. Við horfum stolt á þann árangur sem nemendur okkar hafa náð og þökkum þeim fyrir samfylgdina í gegnum árin.

08/06/2026

Skólaslit í Glerárskóla fara fram þriðjudaginn 9. júní 2026. Nemendur mæta á mismunandi tímum eftir bekkjum og hefst sumarfrí að loknum skólaslitum.

Nemendur í 1.–7. bekk mæta í heimastofur þar sem umsjónarkennarar taka á móti þeim. Þaðan verður gengið í röð í íþróttasal eða út í gryfjuna austan við skólann, eftir því sem veður leyfir, þar sem formleg skólaslit fara fram. Að athöfn lokinni fara nemendur aftur í heimastofur þar sem vitnisburður er afhentur.

Skólaslit 8.–10. bekkjar verða í Glerárkirkju sama dag kl. 17:00. Að lokinni athöfn er 10. bekk, ásamt forráðamönnum og starfsfólki, boðið í kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.

Tímasetningar skólaslita:
Kl. 8:15 – 1.–4. bekkur
Kl. 9:15 – 5.–7. bekkur
Kl. 17:00 – 8.–10. bekkur

Address

V/Höfðahlíð
Akureyri
603

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Glerárskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Glerárskóli:

Shortcuts

Share

Category