31/08/2026
Ein nótt segir ekki alltaf alla söguna um kæfisvefn barna
Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Niðurstöðurnar vekja athygli á því að mæling yfir eina nótt gefur ekki alltaf nægilega góða mynd af alvarleika kæfisvefns hjá einstaka barni.
Rannsóknin, sem jafnframt var hluti af meistaraverkefni Ingibjargar Ingólfsdóttur, var birt 19. ágúst sl. í vísindatímaritinu Frontiers in Sleep. Höfundar greinarinnar eru Hannes Petersen, læknir á SAk, Sólveig Magnúsdóttir, læknir MyCardio Denver, Ingibjörg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur á SAk, Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar SAk, Gróa Björk Jóhannesdóttir, forstöðulæknir barnadeildar SAk, Hugi Hilmisson, tölfræðingur MyCardio Denver, Magnús Birkisson læknir og Erla Hallgrímsdóttir læknir.
Nánar má fræðast um rannsóknina hér:
Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Niðurstöðurnar vekja athygli á því að mæling yfir eina nótt gefur ek...