Náttúrufræðistofnun

Náttúrufræðistofnun Náttúrufræðistofnun er ríkisstofnun og heyrir til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Varð til 1.júlí 2024 við sameiningu NÍ, LMÍ og RAMÝ

Starfsstöðvarnar Náttúrufræðistofnunar Íslands eru fimm. Höfuðstöðvar eru á Akranesi en þar að auki eru starfsstöðvar í Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Borgum á Akureyri, á Mývatni og á Breiðdalsvík. Starfssviði Náttúrufræðistofnunar Íslands má skipta í þrjá meginflokka:

• Að skrá, varðveita, flokka og kortleggja lífríki og jarðmyndanir landsins og skrá upplýsingar um þessa þætti í gagnagrunna.
• Að vakta náttúru landsins, meta verndargildi náttúruminja og leiðbeina um hóflega nýtingu náttúruauðlinda
• Að afla, taka við og miðla upplýsingum um íslenska náttúru.

------------

Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja efni sem er meiðandi eða óviðeigandi á annan hátt. Ummæli eða athugasemdir á síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands sem falla ekki að skilyrðum Facebook (www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa eða hvatningu til refsiverðrar háttsemi verða fjarlægð af síðunni. Hver sá sem skrifar ummæli eða athugasemd á síðu stofnunarinnar gerir það á eigin ábyrgð. Myndir sem hér er að finna er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi Náttúrufræðistofnunar Íslands. Vinsamlegast athugið að starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands fylgist ekki með síðunni eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki unnt að tryggja að spurningum á síðunni verði svarað strax.

Í gær kom út grein í tímaritinu Conservation Letters sem fjallar um ferðir og dreifingu sjófugla í Atlantshafi og aðligg...
17/09/2026

Í gær kom út grein í tímaritinu Conservation Letters sem fjallar um ferðir og dreifingu sjófugla í Atlantshafi og aðliggjandi höfum og hvernig nýta megi upplýsingar um ferðir þeirra við val og afmörkun verndarsvæða í hafi.

Ingvar Atli Sigurðsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, er meðal höfunda greinarinnar og lagði til ferilgögn um skrofu sem nýtt voru í rannsókninni.

Út er komin grein í tímaritinu Conservation Letters sem fjallar um ferðir og dreifingu sjófugla í Atlantshafi og aðliggjandi höfum og hvernig nýta megi upplýsingar um ferðir þeirra við val og afmörkun verndarsvæða í hafi.

16/09/2026

Í dag, 16. september, er dagur íslenskrar náttúru.

Í tilefni dagsins birtum við myndband sem sýnir lítið brot af fjölbreyttri náttúru Íslands.

Náttúrufræðistofnun rannsakar náttúru Íslands, kortleggur landið og aflar landfræðilegra grunnupplýsinga. Með skráningu og vöktun fylgjumst við með breytingum og byggjum upp þekkingu sem styður við vernd náttúrunnar, sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og upplýsta ákvarðanatöku.

Njótum náttúrunnar og göngum vel um hana, alla daga ársins 🍀

Tímaritið „Biological Invasions“ auglýsir eftir greinum í nýtt sérhefti sem ber heitið „Biological Invasions in Iceland“...
08/09/2026

Tímaritið „Biological Invasions“ auglýsir eftir greinum í nýtt sérhefti sem ber heitið „Biological Invasions in Iceland“. Heftið er framhald af þeirri vinnu sem hófst á alþjóðlegri vinnustofu um framandi tegundir á Íslandi sem haldin var í Hafnarfirði í mars.

Við höfum nýlega fengið gagnlegar ábendingar um nýja fundarstaði framandi plantna, meðal annars lúpínu á Dynjandisheiði ...
07/09/2026

Við höfum nýlega fengið gagnlegar ábendingar um nýja fundarstaði framandi plantna, meðal annars lúpínu á Dynjandisheiði og Breiðamerkursandi og stormþul í Melasveit og á Seltjarnarnesi.

Eitt af meginhlutverkum okkar er að fylgjast með útbreiðslu framandi og ágengra tegunda og ábendingar frá almenningi hjálpa okkur mikið við þá vinnu.

Ef þú sérð plöntu sem virðist óvenjuleg eða ný á svæðinu skaltu endilega senda okkur mynd og upplýsingar um staðsetningu, helst GPS-hnit. Við værum mjög þakklát fyrir slíkar ábendingar!

Myndir:
Lúpína á Dynjandisheiði. Ljósm. Náttúruverndarstofnun
Stormþulur í Melasveit. Ljósm. Áslaug Jónsdóttir

Út er komin grein í vísindatímaritinu Geophysical Research Letters þar sem fjallað er um hvernig segulmælingar úr dróna ...
04/09/2026

Út er komin grein í vísindatímaritinu Geophysical Research Letters þar sem fjallað er um hvernig segulmælingar úr dróna og á jörðu niðri voru nýttar til að kortleggja sprungur og holrúm undir yfirborði í Grindavík á umbrotatímabilinu 2023–2025.

Robert A. Askew og Birgir Vilhelm Óskarsson, jarðfræðingar, og Sydney Gunnarson, sérfræðingur fjarkönnunar, hjá Náttúrufræðistofnun eru meðal höfunda greinarinnar.

Út er komin grein í vísindatímaritinu Geophysical Research Letters þar sem fjallað er um hvernig segulmælingar úr dróna og á jörðu niðri voru nýttar til að kortleggja sprungur og holrúm undir yfirborði í Grindavík á umbrotatímabilinu 2023–2025.

Langar og samfelldar gagnaraðir um skordýr eru fágætar, einkum á norðlægum slóðum. Nýverið birtist vísindagrein um ranns...
03/09/2026

Langar og samfelldar gagnaraðir um skordýr eru fágætar, einkum á norðlægum slóðum. Nýverið birtist vísindagrein um rannsókn sem byggist á 30 ára vöktun fiðrilda á sunnanverðu Íslandi (1995–2024). 🦋

Höfundar greinarinnar eru Matthías Alfreðsson og Erling Ólafsson, skordýrafræðingar hjá Náttúrufræðistofnun, og Sigurður Björn Alfreðsson, sjálfstætt starfandi rannsakandi.

Ný vísindagrein um þrjátíu ára vöktun fiðrilda á sunnanverðu Íslandi hefur verið birt í tímaritinu Journal of Insect Conservation. Rannsóknin byggist á samræmdri söfnun í ljósgildrur á árunum 1995–2024 og er fyrsta heildstæða greiningin á svo löngum og samfelldum vöktuna...

Address

Smiðjuvöllum 28
Akranes
300

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+3545900500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúrufræðistofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share