Lögreglan á Vestfjörðum

Lögreglan á Vestfjörðum Lögreglan á Vestfjörðum sinnir löggæslu á svæðinu norðan Bæjarhrepps og Dalabyggðar. Lögreglustöðvar í umdæminu eru á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur það sem meginmarkmið að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa, starfa og fara um umdæmið. Innlegg eða athugasemdir á síðu lögreglunnar á Vestfjörðum sem falla ekki að skilyrðum Facebook (sjá hér: www.facebook.com/terms.php?ref=pf) eða fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, innihalda ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verður þegar í stað eytt. Innlegg sem sett eru inn af öðrum aðilum eru sett þar inn á ábyrgð viðkomandi einstaklings eða lögaðila. Myndir sem hér er að finna úr starfi lögreglunnar er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti eða sambærilegum miðlum nema með leyfi lögreglunnar á Vestfjörðum. VINSAMLEGAST LESIÐ ÞETTA ÁÐUR EN INNLEGG ER SETT Á SÍÐU LÖGREGLUNNAR Á VESTFJÖRÐUM.

1. HVERNIG ER UMSJÓN MEÐ ÞESSARI SÍÐU HÁTTAÐ? Vinsamlegast athugið að lögreglan á Vestfjörðum fylgist ekki með þessari síðu eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn. Þeir sem sjá um uppfærslu hennar sinna því samhliða öðrum störfum innan lögreglunnar. Svör við spurningum eða ábendingum kalla oftar en ekki á nánari skoðun. Því er ekki hægt að tryggja að svör verði sett inn strax við spurningum sem settar eru inn á síðuna. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112. Lögreglumenn á starfsstöðinni á Ísafirði eru á sólarhringsvöktum, alla daga ársins. Lögreglumenn á Hólmavík og Patreksfirði eru á bakvöktum utan reglulegra vakta. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við sólarhringsvaktina á Ísafirði í síma 444-0400. Sömuleiðis er hægt að koma ábendingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Einnig má benda á fíkniefnasímann, 800-5005, þar sem gjaldfrjálst og nafnlaust er unnt að koma á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.

2. HVAÐ Á EKKI HEIMA Á ÞESSARI SÍÐU? Vinsamlegast athugið að Facebook er ekki rétti staðurinn til að setja inn upplýsingar um tiltekin brot, tiltekin mál, grunsemdir um afbrot eða brotamenn eða kvartanir, til dæmis kvartanir um störf tiltekinna starfsmanna lögreglu. Síðuna má ekki nota sem tilkynningasíðu um tapað/fundið eða stolna muni. Slíkum hlutum er rétt að koma á framfæri við lögreglu í gegnum síma, með bréfi eða tölvupósti eða með því að mæta á einhverja af þeim þremur lögreglustöðvum sem eru í umdæminu, Hólmavík, Ísafirði eða Patreksfirði. Hér eru upplýsingar um það hvernig best er að ná sambandi við lögregluna á Vestfjörðum eftir tilefni hverju sinni: http://www.logreglan.is/logreglan/umdaemin/vestfirdir/

Ef þú vilt beina fyrirspurn til lögreglunnar í gegnum tölvupóst þá er unnt að gera það beint á lögregluvefnum, www.logreglan.is. Netfang lögreglustjóra er [email protected]

3. HVAR FINN ÉG MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR FRÁ LÖGREGLUNNI OG SAMSTARFSAÐILUM HENNAR?

Á lögregluvefnum er að finna margvíslegar upplýsingar um starfsemi lögreglunnar, forvarnir o.fl. Lögregluvefurinn er á slóðinni www.logreglan.is

Hér má finna lista yfir algengar spurningar:
http://www.logreglan.is/adstod/algengar-spurningar/

Hér má finna eyðublöð:
http://www.logreglan.is/adstod/eydublod/

26/06/2026

Öryggi í umferðinni er á ábyrgð okkar allra.

Í gær hafði lögreglan á Vestfjörðum afskipti af nokkrum ökumönnum sem sýndu af sér áhættuhegðun.

3 ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma, án handfrjáls búnaðar.
3 ökumenn voru kærðir fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða.
11 ökumenn og farþegar voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti.

Lögreglan á Vestfjörðum minnir á þá hættu sem ökumenn eru að taka með því að tala í síma án handfrjáls búnaðar og öllum ætti að vera ljóst að öryggisbelti eru lífsnauðsynleg og ætti að vera ófrjávíknanlegur vani að "smella". Þá er alltaf mikilvægt að stilla hraða í hóf og fylgja umferðarreglunum.

Tryggjum öryggi okkar og allra annarra í umferðinni.

https://island.is/auglysingar-um-abyrga-hegdun-i-umferdinni

Gleðilega hátíð 🇮🇸
17/06/2026

Gleðilega hátíð 🇮🇸

15/06/2026

Ef þarf að kalla eftir aðstoð í gegnum Neyðarlínuna.

Við tökum heilshugar undir með ábendingu sem okkar fólk í lögreglunni á Norðurlandi vestra sendi frá sér.

Tíu voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum síðastliðna viku. Sá sem hraðast ók mældist á...
08/06/2026

Tíu voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum síðastliðna viku. Sá sem hraðast ók mældist á 127 km hraða á klst. Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu og fyrir að nota farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.
Þá hafði lögreglan afstkipti af nokkrum börnum sem voru á rafhlaupahjólum, ýmist þar sem þau höfðu ekki náð lágmarksaldri til að stjórna slíkum hjólum, voru með farþega á hjólunum eða ekki með hjálm. Lágmarksaldur til að stjórna slíkum hjólum er 13 ár.

Ekið var á sauðfé í nokkrum tilvikumí vikunni. Ökumönnum er bent á að lausaganga sauðfjár er almennt ekki bönnuð á Vestfjörðum nema innan þéttbýlis og því nokkuð um að sauðfé haldi sig við vegi.

Lögreglu barst tilkynning um innbrot í hesthús í Skutulsfirði og er málið til rannsóknar.
Einnig barst tilkynning um lágflug yfir friðlýstu æðarvarpi á sunnanverðum Vestfjörðum. Slíkt er óheimilt á þessum árstíma og er málið til rannsóknar.

Hátíðarhöld voru víða á Vestfjörðum um helgina í tengslum við sjómannadaginn. Skemmtanalíf var fjölmennt víða en fór að mestu vel fram. Ein minniháttar líkamsárás átti sér stað í Bolungarvík aðfaranótt sjómannadags en að öðru leyti var ekki um stór vandamál að ræða.

Á meðfylgjandi mynd gefur að líta næturvaktina á Ísafirði aðfaranótt sjómannadags en í þetta sinn vildi svo skemmtilega til að vaktin var að öllu leyti skipuð konum. Slíkt gerist ekki hverjum degi þrátt fyrir nokkuð hátt hlutfall kvenna sem starfa hjá embættinu og því við hæfi að smella í eina sjálfu eins og það kallast á okkar ástkæra móðurmáli.

Að gefnu tilefni viljum við vara fólk við þessum skilaboðum sem margir eru að fá til sín. Varist að ýta á hlekki sem kom...
03/06/2026

Að gefnu tilefni viljum við vara fólk við þessum skilaboðum sem margir eru að fá til sín. Varist að ýta á hlekki sem koma í skilaboðum, það er alltaf áhætta og ein algengasta leiðin til þess að svíkja fé út úr grunlausu fólki.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina. Um er að ræða skilaboð sem sögð eru vera frá umferðarlögreglunni og fólki bent á að ýta á hlekk til að greiða sekt. Aldrei hafa borist jafn margar tilkynningar til lögreglu vegna netbrotatilrauna á jafn skömmum tíma og má því ætla að um mjög umfangsmiklar tilraunir sé að ræða.

Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is

Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.

03/06/2026

Nagladekk.

Nú ætti enginn að þurfa að aka um á nagladekkjum. Enda er sumarið komið. Eigendur og ökumenn ökutækja eru hvattir til að taka nagladekkin undan bílum sínum og setja sumardekkin undir.

02/06/2026

Hópslysaæfing Ísafjarðarflugvelli.

Síðastliðin laugardag, 30. maí 2026, stóð ISAVIA og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fyrir reglulegri æfingu við viðbrögðum við hópslysi á flugvellinum í Skutulsfirði.

Þó æfingin hafi tekið aðeins part úr degi var undirbúningurinn mun lengri, enda þiggja viðbragðsaðilar upprifjunarnámskeið, skrifborðsæfingar og fleira er nauðsynlegur þáttur í slíkum æfingum.

Æfingin þótti takast mjög vel, en tilgangurinn er sá að samhæfa viðbragð ólíkra viðbragðseininga þannig að nauðsynleg aðstoð berist fljótt og örugglega og öll meðferð slasaðra og annarra sem hlut eiga að máli sé fagleg.

Öllum viðbragðsaðilum sem tóku þátt í æfingunni og ekki síður leikurunum eru færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna.

Varúð  hætta á ferð! ! !
31/05/2026

Varúð hætta á ferð! ! !

Akbraut Pollgötu, frá Pollgötublokk (gatnamót Pollgata/Skipagata) og Suðurgötu, að kyndistöð Orkubús Vestfjarða (gatnamót Suðurgata/Mjósund) er mjög hál.

Lögreglan á Vestfjörðum vill minna á að samkvæmt 21. gr. lögreglusamþykktar Ísafjarðarbæjar er óheimilt að leggja vörubi...
28/05/2026

Lögreglan á Vestfjörðum vill minna á að samkvæmt 21. gr. lögreglusamþykktar Ísafjarðarbæjar er óheimilt að leggja vörubifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri í íbúðarhverfum.
Eigendum og stjórnendum slíkra ökutækja er bent á þetta og mun lögregla hafa eftirlit með slíkum lagningum á næstunni.

Lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar er hér fyrir fróðleiksþyrsta.

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Address

Hafnarstræti 1
Ísafjörður
400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan á Vestfjörðum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan á Vestfjörðum:

Shortcuts

Share