05/02/2026
Aðildarflokkar Í-listans ákváðu í gærkvöld að slíta samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf til komandi sveitarstjórnarkosninga.
Ekki náðist full samstaða um uppstillingu framboðslistans. Þrátt fyrir góðan vilja og málefnalegt samtal reyndist ekki unnt að samræma ólíkar áherslur. Aðilar skilja í sátt og með gagnkvæmri virðingu, þakka fyrir það samstarf sem átt hefur sér stað og óska hver öðrum velfarnaðar í komandi verkefnum.
Valur Richter,
formaður uppstillingarnefndar Í-listans