Orkubú Vestfjarða

Orkubú Vestfjarða Orkubú Vestfjarða ohf. Stakkanesi 1, 400 Ísafjörður
Sími: 450-3211 Tilgangur fyrirtækisins samkvæmt lögum nr. 66 31. maí 1976 er að:

1. Dreifing og sala raforku.

Virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum þar sem hagkvæmt þykir.

2. Eiga og reka vatnsorkuver og dísilraforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjun til raforkuflutnings og raforkudreifingar.

3. Eiga og reka jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.

4. Annast virkjunarrannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir eftir því sem ákveðið er hverju sinni.

5. Samkvæmt þessu nær hlutverk fyrirtækisins til alls orkuiðnaðar á Vestfjörðum, hvort heldur orkugjafinn er vatnsafl, jarðvarmi eða einhver annar. Aðalskrifstofa Orkubús Vestfjarða er á Ísafirði.

09/09/2026
12/08/2026

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að í dag verður einstakur viðburður á himni – almyrkvi á sólu, sem vonandi mun sjást vel hér á Vestfjörðum.

Öll götulýsing sem er í umsjá Orkubús Vestfjarða verður slökkt meðan á sólmyrkvanum stendur. Við vonum að það hjálpi sem flestum að njóta þessarar einstöku stundar enn betur.
Við biðjum vegfarendur um að sýna sérstaka aðgát í umferðinni á meðan götulýsingin er slökkt og aka varlega.

Við hvetjum alla til að njóta sólmyrkvans, fara varlega og muna að horfa aldrei beint í sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna.

Skrifstofur Orkubúsins loka í dag klukkan 15:00.

Njótið dagsins! ☀️

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.N...
11/08/2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.

Nýlega hefur hleðslustöðvum Orkubúsins á svæðinu fjölgað:
• Ný 200 kW hraðhleðslustöð á Patreksfirði
• Tvær nýjar 50 kW hraðhleðslustöðvar á Tálknafirði
• Ný 240 kW hraðhleðslustöð á Króksfjarðarnesi

Margir bílar lögreglu og annarra viðbragðsaðila eru rafknúnir. Við hvetjum vegfarendur því til að hafa þarfir viðbragðsaðila í huga við hleðslustöðvar og sýna þeim sérstaka tillitssemi ef aðstæður kalla á.

Við óskum öllum góðrar ferðar og hvetjum fólk til að fara varlega og njóta þessa einstaka náttúruviðburðar á Vestfjörðum.

Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð – virkjunarleyfið í höfn Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða þ. 1. júl...
07/08/2026

Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð – virkjunarleyfið í höfn

Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða þ. 1. júlí sl., virkjunarleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð. Einnig veitti stofnunin heimild til breytinga á vatnshlotum Svartagilsvatns, Efri-Kotvatna og Þjóðbrókargils.

Um er að ræða stóran áfanga í eflingu raforkukerfisins á Vestfjörðum ekki síst út frá afhendingaröryggi raforku í Strandabyggði og á Ströndum, en með virkjuninni er tryggð afhending á raforku úr tveimur áttum fyrir Hólmavík og nágrenni. Virkjunin er þannig skólabókardæmi um hvernig tryggja má afhendingaröryggi raforku, annars vegar með tengingu við flutningskerfið og hins vegar með byggingu virkjana í grennd við notendur. Afl virkjunarinnar nægir til að anna tvöföldu því hámarksálagi sem er á svæðinu í dag og getur annað raforkuþörf í Strandabyggð og Ísafjarðardjúpi jafnvel svo vikum skiptir ef upp kæmi alvarleg bilun í flutningskerfi raforku, enda tryggja uppistöðulón hennar góða miðlunargetu á vatni.

Virkjunin hefur mikinn meðbyr meðal heimamanna og annarra sem hafa kynnt sér verkefnið og mikilvægi þess fyrir samfélagið á Ströndum.

Verkefnið hefur hlotið mikinn og góðan undirbúning sem hófst með undirritun samkomulags um rannsóknir og mögulega uppbyggingu 9,9 MW virkjunar, á milli landeigenda Gilsstaða í Steingrímsfirði og Orkubús Vestfjarða í mars 2023. Umhverfismati vegna virkjunarinnar lauk í desember 2024, en sótt var um virkjunarleyfi í júlí 2025.

Virkjunarleyfið var gefið út 1. júlí sl. og er kærufrestur vegna þess nú runninn út án þess að athugasemdir hafi borist.
Undirbúningsframkvæmdir vegna virkjunarinnar eru þegar hafnar, auk þess sem unnið hefur verið markvisst að hönnun hennar. Stefnt er að því að aðalútboð vegna virkjunarframkvæmdanna sjálfra fari fram í næsta mánuði, en nú er unnið að undirbúningi umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrir virkjunina, sem komin er inn á aðalskipulag sveitarfélagsins, Strandabyggðar.

Virkjunin mun auka árlega framleiðslugetu Orkubúsins í raforku um 67% og er því mikilvægt skref í þeirri stefnu Orkubúsins að vera sjálfbært með framleiðslu þeirrar raforku sem það selur.
Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að ræsa virkjunina í September 2028, eða eftir tvö ár, en frágangur á virkjunarsvæðinu teygist fram á árið 2029.

Orkubúið er að leggja 19Kv háspennustreng frá Önundarfirði yfir í Staðardal(Súandafjörð). Nokkra myndir frá deginum.
28/07/2026

Orkubúið er að leggja 19Kv háspennustreng frá Önundarfirði yfir í Staðardal(Súandafjörð). Nokkra myndir frá deginum.

22/06/2026

Rör númer 3.

22/06/2026

Framkvæmdir hafnar við borholu í Tungudal.

Það er ennþá nóg til af varning hjá okkur. Selfie ljós, sólgleraugu, rúðusköfur,  endurskin, súkkulaði o.fl. ☺️Það er op...
09/04/2026

Það er ennþá nóg til af varning hjá okkur. Selfie ljós, sólgleraugu, rúðusköfur, endurskin, súkkulaði o.fl. ☺️
Það er opið hjá okkur hér á Stakkanesinu og þið að sjálfsögðu velkomin að kíkja við og næla ykkur í varning ☺️

Verið velkomin til okkar á Stakkanes 1 og nælið ykkur í varning. Hurðin er opin og allir velkomnir ☺️
08/04/2026

Verið velkomin til okkar á Stakkanes 1 og nælið ykkur í varning.
Hurðin er opin og allir velkomnir ☺️

Address

Stakkanes 1
Ísafjörður
400

Telephone

+3544503211

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkubú Vestfjarða posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Orkubú Vestfjarða:

Shortcuts

Share