28/04/2026
Sendiráðið vekur athygli á að kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 er hafin.
👉Hvar get ég kosið á Spáni:
📍 Sendiráðið í Madrid
Alla virka daga milli kl. 10:00–16:00 (athugið að sendiráðið er lokað 1. og 15. maí)
📍 Orihuela Costa – Real Club de Golf Campoamor: Avenida Conde de Barcelona, 03189, Orihuela-Costa (Alicante)
6. og 7. maí milli kl. 10:00–17:00
👉Einnig er hægt að bóka tíma í vegabréf og nafnskírteini: http://tiny.cc/bokunvegabref
📍 Gran Canaria - Skrifstofa ræðismanns: Calle Miguel de Cervantes, 2, 35002, Las Palmas de Gran Canaria
5. maí milli kl. 9:00-13:00
📍 Tenerife - Calle Fernando Díaz Cutillas, 6, 38108, La Laguna, Santa Cruz de Tenerife
7. maí milli kl. 9:00-13:00
Ræðismenn Íslands í Barcelona, Sevilla, Mallorca, Valencia, Bilbao og Vigo taka einnig á móti kjósendum eftir samkomulagi– vinsamlega hafið samband. Hlekkur með tengiliðaupplýsingum má finna í athugasemd.
Við vekjum athygli á að í sveitarstjórnarkosningum byggist kosningaréttur á lögheimili á Íslandi. Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár: https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/
Við vekjum líka athygli á því að kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
Síðasti dagur til að kjósa utan kjörfundar er 15. maí 2026.
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í komandi kosningum.