11/06/2026
🔹Alþingi samþykkti nýverið þingsályktun um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Atkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026, en utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður opin frá 27. júlí 2026.
🔹Hægt verður að kjósa í sendiráðinu og hjá ræðismönnum þar sem það á við. Nánari upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag verða kynntar þegar nær dregur.
🔹Af þessu tilefni hefur utanríkisráðuneytið opnað sérstaka upplýsingasíðu á íslensku og ensku sem verður uppfærð reglulega eftir því sem nýjar upplýsingar berast. Sendiráðið mun sömuleiðis veita frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir, en í millitíðinni hvetjum við öll til að skoða upplýsingarsíðurnar, sem eru í athugasemdum hér að neðan.