Almannarómur

  • Home
  • Almannarómur

Almannarómur Miðstöð máltækni Stjórn Almannaróms 2024-2025 skipa:
Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður. Magnúsdóttir


Framkvæmdastjóri Almannaróms
Lilja Dögg Jónsdóttir

Björgvin Ingi Ólafsson
Magga Dóra Ragnarsdóttir
Páll Ásgeir Guðmundsson
Snævar Ívarsson
Sverrir Norland


Varamenn í stjórn eru:
Birna Ósk Einarsdóttir
Pétur Þ. Óskarsson
Ragnheiður H.

Almannarómur var stofnaður árið 2014 með það að markmiði að tryggja íslenskunni stað í stafrænni framtíð.Með framförum í...
22/06/2026

Almannarómur var stofnaður árið 2014 með það að markmiði að tryggja íslenskunni stað í stafrænni framtíð.

Með framförum í tækni á liðnum árum, og þá ekki síst tilkomu stórra mállíkana, hefur gervigreind skipað sér stærra pláss í heiminum öllum og hefur orðið æ íburðarmeiri í starfsemi Almannaróms.

Við erum því í dag bæði miðstöð máltækni og gervigreindar, bæði af því að tæknin hefur drifið okkur þangað en ekki síður af því við sjáum þörf fyrir að vinna markvisst að ábyrgri hagnýtingu og þróun gervigreindar, með íslenskar þarfir og menningu að leiðarljósi.

Þannig byggjum við á grunninum sem við búum að úr máltækni en vinnum nú einnig á öllum sviðum gervigreindar til stuðnings fyrir íslenskt samfélag.

Með breyttum högum okkar var þörf á nýrri ásýnd, sem gerir nýrri og metnaðarfullri stefnu okkar skil. Almannarómur sækir fram fyrir hönd Íslands í stafrænum heimi og allir okkar snertifletir þurfa að miðla því á skýran og aðgengilegan máta.

Heimasíðan okkar var því einnig byggð upp frá grunni, bæði útlits- og efnislega. Meginhlutverk síðunnar er að auka skilning og þekkingu á verkefnum Almannaróms en ekki síður að máltækni, lausnir fyrir íslensku í tækni og ýmis verkefni sem styðja við þróun og hagnýtingu gervigreindar á Íslandi séu gerða skiljanleg og aðgengileg fyrir breiðari hóp.

Sjá meira á www. almannaromur.is

Við þökkum Gangverk, og þá sérstaklega Ástrós Ásmundsdóttir og Önnu Berglindi Finnsdóttir, fyrir vel unnið verk og ánægjulegt samstarf.

Norræn vinnustofa um gervigreindarvistkerfið – vertu með!Almannarómur í samstarfi við Nordic AI Union og Haaga-Helia Uni...
01/04/2026

Norræn vinnustofa um gervigreindarvistkerfið – vertu með!

Almannarómur í samstarfi við Nordic AI Union og Haaga-Helia University of Applied Sciences býður til norrænar vinnustofunni um gervigreindarvistkerfið í Reykjavík dagana 7. og 8. apríl 2026.

Á þessum tveggja daga viðburði koma saman fulltrúar frá opinberum aðilum, fyrirtækjum, rannsakendum og öðrum lykilaðilum víðs vegar af Norðurlanda- og Eystrasalts­svæðinu til að skoða meðal annars:

- Stuðningskerfi fyrir nýsköpun í gervigreind
- Regluverk, regluvörslu og gervigreindarlöggjöf ESB (AI Act)
- Samstarf innan vistkerfisins, stefnumótun og sameiginlegar áskoranir
- Tengslamyndun með leiðandi hagsmunaaðilum á svæðinu

Staðsetning: Gróska, Vísindagarðar Háskóla Íslands (salur: Fenjamýri)
Dagsetningar: 7. og 8. apríl 2026
Skráning og dagskrá:

This link will take you to a page that’s not on LinkedIn

Hey Google, talarðu íslensku?Raddstýring er mikilvægur hluti af íslensku í tækni og þar með áherslum okkar hjá Almannaró...
11/02/2026

Hey Google, talarðu íslensku?

Raddstýring er mikilvægur hluti af íslensku í tækni og þar með áherslum okkar hjá Almannarómi.

Í samstarfi við ÖBÍ bjóðum við til opins fundar um stöðuna á raddstýrðri íslensku í snjalltækni. Þar ætlar m.a. Lilja Dögg Jónsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms ásamt fleirum að ræða um stöðuna, tækifærin og næstu skref í átt að tækni sem skilur og svarar á íslensku.

16. febrúar kl. 15:00 í Sigtúni 42 – öll velkomin!
ÖBÍ réttindasamtök

Microsoft styrkir íslenskt máltækniverkefniÍslenskt máltækniverkefni á vegum Háskóla Íslands í samvinnu við Almannaróm e...
27/01/2026

Microsoft styrkir íslenskt máltækniverkefni

Íslenskt máltækniverkefni á vegum Háskóla Íslands í samvinnu við Almannaróm er eitt ellefu evrópskra verkefna sem hlutu svokallaðan Microsoft AI for Good LINGUA-styrkinn, sem veittur var þann 20. janúar síðastliðinn.

Verkefnið hlaut um 6 milljón króna styrk og þótti sérstaklega áhugavert samkvæmt dómnefnd, sem tók fram að verkefnið væri ekki bara tæknilega sterkt heldur hefði það mikla burði til að styðja við aukið jafnrétti í máltækni minni tungumála. Fyrir verkefninu fer Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Meira um þessa spennandi frétt á heimasíðunni okkar, hlekkur í athugasemd.

Háskóli Íslands Almannarómur Microsoft

Áhugavert málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið verður haldið miðvikudaginn 28. janúar í Eddu frá klukkan 16:00-17:30.V...
26/01/2026

Áhugavert málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið verður haldið miðvikudaginn 28. janúar í Eddu frá klukkan 16:00-17:30.
Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta.
Sjáumst þar!

Við tilkynnum með stolti að Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, hefur fyrir hönd Almannaróms tekið...
19/12/2025

Við tilkynnum með stolti að Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, hefur fyrir hönd Almannaróms tekið við stöðu stjórnarformanns nýrrar gervigreindarmiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, Nordics AI
Við hlökkum til samstarfsins!

Við minnum á styrkveitingu úr sjóðnum Skerf en lokaumsóknardagur er 8. desember nk. Sjóður þessi styrkir verkefni sem fe...
02/12/2025

Við minnum á styrkveitingu úr sjóðnum Skerf en lokaumsóknardagur er 8. desember nk. Sjóður þessi styrkir verkefni sem fela í sér innleiðingu og/eða hag­nýtingu á íslenskri máltækni.

Ef þú rekur eða starfar hjá fyrirtæki eða stofnun sem hefur áhuga á að hagnýta eða innleiða íslenska máltækni þá er þessi sjóður fyrir þig.
Við hvetjum áhugasama til að kynna sér málið á meðfylgjandi hlekk. https://almannaromur.is/skerfur
Spurningar eða athugasemdir? Sendu okkur línu á [email protected]

Skerfur er sjóður sem styrkir verkefni sem fela í sér innleiðingu og/eða hag­nýtingu á íslenskri máltækni, í samræmi við áætlun um íslenska máltækni 2.0.

Heimildasöfnun - leggðu íslenskunni liðÍ dag, 19. nóvember, hefst næsti fasi í átaksverkefni okkar og Árnastofnunar „Þín...
19/11/2025

Heimildasöfnun - leggðu íslenskunni lið

Í dag, 19. nóvember, hefst næsti fasi í átaksverkefni okkar og Árnastofnunar „Þín íslenska er málið“ - sjá nánar á meðfylgjandi hlekk.

Nú leitum við til fyrirtækja og stofnana og óskum eftir að þau deili með okkur heimildum (textagögnum) fyrir Risamálheild Árnastofnunar. Heimildirnar verða bútaðar niður og nýtast til að auka við orðaforða atvinnulífsins í máltæknilausnum. Gögnin skulu ekki teljast viðkvæm og vera á íslensku.

Þegar hafa um 40 fyrirtæki og stofnanir skráð sig í söfnunina og ákveðið að veita Almannarómi og Árnastofnun heimildir sem verða nýttar til þess að byggja upp máltækni fyrir íslensku. Þar má nefna stórfyrirtæki á borð við: Íslandsbanka, Advania, Festi, Heima, Deloitte, Icelandair og Húsasmiðjuna. Merki allra sem þegar hafa skráð sig til leiks má finna á heimasíðu átaksins.

Við hvetjum öll fyrirtæki og stofnanir landsins til að taka þátt og leggja íslenskunni lið.

Þín íslenska er málið!

„Þín íslenska er málið“ er heimildasöfnun um íslenskunotkun fyrirtækja og stofnana landsins. Hér að neðan er heimildagátt þar sem þú getur lagt til textagögn frá þínu fyrirtæki eða stofnun. Athugið að gögnin mega vera af öllum helstu skráargerðum og skulu ekki teljast ...

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Almannarómur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

  • Want your organization to be the top-listed Government Service?

Share