E-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

E-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi E-listinn býður sig fram til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næst komandi. Hérna er hægt að fylgjast með verkum listans og hvað hann stendur fyrir.

Kveðja frá E-listanumÁgætu kjósendur í Skeiða-og Gnúpverjahreppi, í dag göngum við til kosninga og ákveðum hverjum við t...
16/05/2026

Kveðja frá E-listanum

Ágætu kjósendur í Skeiða-og Gnúpverjahreppi, í dag göngum við til kosninga og ákveðum hverjum við treystum til að stjórna sveitarfélaginu næstu fjögur árin. Undanfarnar vikur höfum við sem stöndum að E-listanum reynt að koma okkar stefnumálum á framfæri bæði með því að halda opna fundi og einnig höfum við reynt að hitta fólk og eiga við það spjall. Við höfum reynt að ganga fram af hófsemi í okkar málflutningi og reynt að áreita fólk ekki úr hófi fram. Við vitum að í okkar sveitarfélagi býr skynsamt fólk sem er vel fært um að kynna sér málin og taka sínar ákvarðanir út frá því. Hver sem úrslit kosninganna verða vonum við að þeim loknum snúum við bökum saman og verðum samstíga í því að byggja hér upp samfélag sem snýst um að huga að velferð íbúanna.

Með sumarkveðju frá okkur sem skipum E-listann.

Gunnar Örn Marteinsson

15/05/2026
Upplýsingar varðandi fundinn í kvöld.ATH ekki verður hægt að koma spurningum fram á fundinum í kvöld öðurvísi enn í gegn...
12/05/2026

Upplýsingar varðandi fundinn í kvöld.

ATH ekki verður hægt að koma spurningum fram á fundinum í kvöld öðurvísi enn í gegnum www.slido.com og slá in kóðan 1614650. Búið er að opna fyrir spurningar og verður hægt að koma með spurningar þar inn þangað til að fundur er búinn í kvöld.
Þar er hægt að koma með spurningar undir nafni eða nafnlausar. Hægt er síðan að like-a spurningar sem hafa komið fram ef þið viljið auka vægi þeirra spurningar.

Slido is an easy to use Q&A and polling platform. Increase engagement at your meetings, events, and conferences.

Gunnar Örn Marteinsson situr í efsta sæti E-lista.Hann hefur langa reynslu í sveitarstjórnarmálum og hefur alla tíð lagt...
09/05/2026

Gunnar Örn Marteinsson situr í efsta sæti E-lista.
Hann hefur langa reynslu í sveitarstjórnarmálum og hefur alla tíð lagt áherslu á að sveitarfélagið sé rekið með það fyrir augum að það þjónusti íbúana eins vel og kostur er og þær fjárfestingar sem ráðist er í þjóni sem best í þeim tilgangi. Gunnar var um nokkurra ára skeið oddviti sveitarfélagsins, öll þau ár var sveitarfélagið rekið með hagnaði. Helstu framkvæmdir sem ráðist var í á þeim tíma var að koma af stað verkefni sem fól í sér að koma ljósleiðara inn á hvert heimili í sveitarfélaginu íbúum að kostnaðarlausu, en Skeiða- og Gnúpverjahreppur var eitt fyrsta sveitarfélag á landinu til að ráðast í slíkt verkefni. Hann á tvö börn og tvo stjúpbörn og barnabörnin eru orðin fjögur. Gunnar hefur gaman af sauðfjárrækt og hestamennsku enda var eitt af hans störfum í mörg ár að fara með ferðamenn á hestum um hálendið.

Umhverfisstefna og framtíðarsýnLjúka þarf loftslagsstefnu sveitarfélagsins og móta skýra umhverfisstefnu fyrir sveitarfé...
08/05/2026

Umhverfisstefna og framtíðarsýn

Ljúka þarf loftslagsstefnu sveitarfélagsins og móta skýra umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið í heild. Þar þarf að vanda til verka og taka mið af líffræðilegri fjölbreytni, sjálfbærri nýtingu lands og þeirri ábyrgð sem sveitarfélagið ber gagnvart komandi kynslóðum.
Ákvarðanir um landnotkun, skipulag og þróun sveitarfélagsins eiga að byggjast á langtímahugsun, vistkerfisnálgun og virðingu fyrir náttúrunni. Þannig má nýta tækifærin án þess að ganga á þau verðmæti sem gera sveitina sérstaka.
Hlutverk sveitarstjórnafulltrúa í umhverfismálum er að gæta almannahagsmuna, móta skýra stefnu, tryggja lögmæta og vandaða málsmeðferð og sjá til þess að náttúra, vatn, loftslag og landnýting hafi raunverulegt vægi í ákvörðunum sveitarfélagsins

Þjórsárskóli. Þjórsárskóli hefur farið í gegnum miklar breytingar á síðasta kjörtímabili og verður heildstæður skóli á n...
08/05/2026

Þjórsárskóli.

Þjórsárskóli hefur farið í gegnum miklar breytingar á síðasta kjörtímabili og verður heildstæður skóli á næsta skólaári. Halda þarf áfram með þá vegferð og sjá til þess að skólinn verði áfram í góðu samstarfi við skólana í uppsveitum til að efla félagslíf krakkana.

Í þeirri uppsveiflu sem skólinn er að ganga í gegnum þarf að passa að þær ákvarðanir sem teknar eru séu gerðar í góðu samstarfi og samskiptum við stjórnendur og starfsfólk. Þekking og reynsla þeirra sem starfa daglega innan skólans er dýrmæt og nauðsynleg til að tryggja vandaða ákvarðanatöku.

Okkur finnst mikilvægt að mynduð sé stefna um unglingastigið með það að leiðarljósi að styðja við ungmennin okkar í samfélaginu, auðga tengslanet þeirra meðal jafnaldra í uppsveitum og styrkja sjálfstæði þeirra í námi og starfi.
Okkur finnst kjörið tækifæri að nýta nýja íþróttahúsið í að bjóða unglingum í nágrannasveitarfélögum upp á samstarf.
Það þarf að huga að stækkun á skólanum í framtíðinni en þangað til viljum við nýta þann húsakost sem þegar er til staðar í sveitarfélaginu undir skólastarf. Þannig getum við tekið á móti þessari fjölgun barna til einhverra ára. Þannig fáum við betri nýtingu á núverandi fermetra sem sveitarfélagið hefur og hægt að fara í stækkun á skólanum í fyllingu tímans.

Við viljum efla okkar tómstunda og æskulýðsmál með nýtingu félagsmiðstöðvar og íþróttahús sem og í samstarfi við nálægð sveitarfélög.

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir skipar 2. Sæti listans. Hún er fædd og uppalin á Skeiðháholti og starfar þar á búi foreldra s...
08/05/2026

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir skipar 2. Sæti listans.
Hún er fædd og uppalin á Skeiðháholti og starfar þar á búi foreldra sinna. Hún er búsett í Brautarholti ásamt unnusta sínum Hilmari og tveimur dætrum. Hennar helsta yndi er fjölskyldan, búskapurinn og að lifa og hrærast í íslenskri náttúru.
Ingibjörg er með B.A.-próf í frönskum fræðum og B.Sc.-próf í líffræði frá Háskóla Íslands. Hún leggur áherslu á að náttúra og líffræðileg fjölbreytni fái raunverulegt vægi í ákvörðunum sveitarfélagsins. Uppbygging á að fara fram af skynsemi, með hag komandi kynslóða að leiðarljósi, vera vel rökstudd og ekki ganga á þau verðmæti sem gera sveitina okkar sérstaka.

FramkvæmdirNú þegar hafa verið teknar ákveðnar varðandi framkvæmdir hjá sveitarfélaginu á þessu ári og gerðar fjárhagsáæ...
07/05/2026

Framkvæmdir

Nú þegar hafa verið teknar ákveðnar varðandi framkvæmdir hjá sveitarfélaginu á þessu ári og gerðar fjárhagsáætlanir í tengslum við þær. Ekki liggur fyrir hvernig þær áætlanir standast og hver skuldastaða sveitarfélagsins verður að þeim loknum en í okkar huga mega skuldirnar ekki aukast meir. Fjárhagsáætlun 2026-2029 gerði ráð fyrir að skuldahlutfall færi á þessu ári í 90 % en það hlutfall þarf að lækka á næstu árum.

Við munum klára þær framkvæmdir sem ákveðnar hafa verið varðandi íþróttahús og svæðið í kring verður lagað og komið í ásættanlegt form. Það er mjög brýnt að fara í lagfæringar á leikskólalóðinni og verður það eitt af þeim áhersluatriðum sem við munum ráðast í sem fyrst. Langt er síðan fjárfest var í vatnsrörum sem nota á til að endurnýja kaldavatnslagnir úr Vörðufelli í Brautarholt annars vegar og hins vegar frá Steinsholti í Árnes. Við teljum að það væri góð hugmynd að plægja þær niður þannig að þær fari að þjóna tilgangi sínum. Uppi hafa verið áform um breytingar á sorphirðumálum. Við munum setjast yfir skipulagið á þeim málum og hvernig þeim áætlunum sem gerðar hafa verið verði sem best komið í framkvæmd. Átak verði gert í að laga umhverfið í Árnesi og Brautarholti. Hvað varðar húsnæði í eigu sveitarfélagsins eru næst á dagskrá lagfæringar á félagsheimilinu í Árnesi. Skoðað verður með hvaða hætti áhaldahús sveitarfélagsins virkar sem best til að þjóna því hlutverki sem því er ætlað.

Þegar við höfum komið okkur inn í rekstur sveitarfélagsins og komið hefur endanlega í ljós kostnaður við þær framkvæmdir sem nú er unnið að munum við taka ákvarðanir um næstu skref.

Address

Árnes
Selfoss
804

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when E-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share