Brunavarnir Skagafjarðar

Brunavarnir Skagafjarðar Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Brunavarnir Skagafjarðar, Government Organization, Sæmundargata, Sauðárkrókur.

Brunavarnir Skagafjarðar eru með höfuðstöðvar á Sauðárkróki, einnig eru útstöðvar í Varmahlíð og á Hofsósi. 4 starfsmenn eru í fullu starfi og 27 manns í hlutastarfi.

Björnis í heimsókn og Magnús kvaddur.Slökkviliðsbangsinn Björnis kom í heimsókn til okkar í síðustu viku við góðar undir...
26/06/2026

Björnis í heimsókn og Magnús kvaddur.

Slökkviliðsbangsinn Björnis kom í heimsókn til okkar í síðustu viku við góðar undirtektir yngri kynslóðarinnar. Á föstudeginum kom hann við á slökkvistöðinni á Sauðárkróki og brá sér svo á bæjarhátíðina Hofsós heim daginn eftir. Mætingin var góð og var gaman að sjá hvernig andlit barnanna ljómaði þegar Björnis mætti á svæðið.

Tækifærið var einnig nýtt til þess að þakka Magnúsi Sigurbjörnssyni, varðstjóra á Hofsósi fyrir sitt framlag til slökkviliðsins, en Magnús byrjaði í slökkviliðinu árið 1970, þá 16 ára gamall og hætti síðla árs 2025. Það gerir 55 ára starfsaldur! Takk fyrir þitt framlag Magnús. Stefán Grímur Snæbjörnsson hefur tekið við sem varðstjóri á Hofsósi í stað Magnúsar og óskum við Stefáni til hamingju.

Í dag ætlum við að kveðja Magnús á viðeigandi hátt, en hann byrjaði í slökkviliðinu árið 1970 og hætti síðla árs 2025. T...
20/06/2026

Í dag ætlum við að kveðja Magnús á viðeigandi hátt, en hann byrjaði í slökkviliðinu árið 1970 og hætti síðla árs 2025. Takk fyrir okkur Magnús og geri aðrir betur 🚒

Á morgun kl. 12:45, í húsnæði björgunarsveitarinnar Grettis, ætla Brunavarnir Skagafjarðar að kveðja og þakka Magnúsi Sigurbjörnssyni fyrir vel unnin störf undanfarna áratugi. Magnús hefur sinnt þessu starfi af áhuga og röggsemi og er kominn tími til að þorpsbúar sýni þakklæti í verki og klappi hressilega fyrir okkar eina sanna Magga. Viljið þið láta þetta berast til allra þeirra sem gætu viljað vita af því🥰

12/06/2026
Gleðilegt sumar og gulur bíll!Meðfylgjandi eru myndir frá æfingum slökkviliðsins í apríl, en þema mánaðarins var vatnsöf...
28/04/2026

Gleðilegt sumar og gulur bíll!

Meðfylgjandi eru myndir frá æfingum slökkviliðsins í apríl, en þema mánaðarins var vatnsöflun og reykköfun. Á síðustu reykköfunaræfingu vetrarins var farið í svokallaðan „reykköfunarfótbolta“ þar sem tveir og tveir reykkafarar voru festir saman með límmbandi. Að taka reykköfun á þennan hátt reynir á samskipti og samhæfingu reykköfunarparsins.

Slökkviliðið sinnir líka sjúkraflutningum í Skagafirði og fengum við nýlega nýjan sjúkrabíl og erum við því með tvo „gula“. Hér fyrir neðan má sjá þá félaga saman.

Vekjum athygli á neðangreindu.
31/12/2025

Vekjum athygli á neðangreindu.

Tilkynning vegna sinuhættu! ⚠⚠

Slökkviliðsstjórar á öllu Norðurlandi biðla til fólks að fara afar varlega með skotelda og opinn eld í dag, Gamlársdag. Afar þurrt er í veðri, gróður á svæðinu er mjög þurr og því hætta á að ef eldur kemst í sinu getur að breiðst hratt út.

Fólk er beðið um að kveikja ekki eld nærri sinu, kjarri og háu grasi og ekki vera með flugelda þar sem hætta er á að glóð úr þeim geti komið af stað sinubruna.

Address

Sæmundargata
Sauðárkrókur
550

Telephone

+3544535425

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brunavarnir Skagafjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Brunavarnir Skagafjarðar:

Shortcuts

Share