Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn Velkomin á síðu Sjálfstæðisflokksins. Viltu ekki auglýsingar frá Sjálfstæðisflokknum? Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929.

Leiðb: https://xd.is/auglysingar-fra-sjalfstaedisflokknum/
Opinn vettvangur áhugasamra um flokkinn og landsmál.
Ómálefnalegum og dónalegum skrifum verður eytt sem og grafískum áróðri. Ekki er um að ræða lista yfir félagsbundið Sjálfstæðisfólk. Öllum er frjálst að líka við síðuna, og hafa margir áhugasamir um þjóðmál, samfélagsmál og flokk gert það. Sjálfstæðisflokkurinn kann að beina auglýsingum sérstaklega í þennan hóp. Þeir sem ekki vilja sjá auglýsingar flokksins geta fylgt hlekk hér að ofan. Grundvallarstefnumál og hugsjónir Sjálfstæðisflokksins koma fram í sjálfstæðisstefnunni sem flokkurinn hefur fylgt frá upphafi. Sjálfstæðisstefnan er hvorki langorð né flókin heldur veitir hún leiðbeiningar um nokkur mikilvæg atriði sem er nauðsynlegt að taka mið af, vilji menn tryggja frelsi og framþróun í þjóðfélaginu. Hún gefur sig ekki út fyrir að vera nákvæm forskrift að fullkomnu ríki enda lifa slík fyrirmyndarríki sjaldnast sjálfstæðu lífi utan kennisetninga og fræðikerfa.

Þegar Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn sameinuðust árið 1929 undir merkjum nýs flokks, Sjálfstæðisflokksins, var kveðið á um tvö meginatriði sem flokkurinn skildi hafa að leiðarljósi. Annars vegar var því lýst yfir að undanbragðalaust yrði að vinna að því að landið yrði sjálfstætt þegar skilyrði væru til þess samkvæmt sambandslögunum. Hins vegar sagði að flokkurinn ætlaði: „Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“

Þessi kjarnyrta stefnuyfirlýsing hefur fylgt flokknum allar götur síðan og verið hans leiðarljós. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er stefna flokksins í einstökum málaflokkum mótuð, eins og sjá má á öðrum stað á síðunni auk þess sem samþykkt er sérstök stjórnmálaályktun á hverjum landsfundi. Landsfundi flokksins sitja landsfundarfulltrúar, sem valdir eru af aðildarfélögum flokksins um land allt og hafa allir fulltrúar atkvæðisrétt á landsfundi varðandi stefnumótun og kjör í embætti flokksins. Undanfarin 18 ár hafa orðið miklar breytingar í íslensku samfélagi, sem er nú orðið opnara og frjálsara en áður. Kjör almennings í landinu hafa batnað mikið á þessu tímabili, kaupmáttur aukist verulega og atvinnuleysi verið með því minnsta sem þekkist í heiminum. Þrátt fyrir að miklir erfiðleikar hafi fylgt falli bankakerfisins á Íslandi í október 2008, er sá árangur sem náðst hefur ekki til einskis.

Á næstu misserum verður atvinnulífið byggt upp á nýjan leik og íslenska þjóðin mun koma sterkari út eftir á. Þrátt fyrir að ríkisvaldið hafi tímabundið þurft að stíga inn í rekstur veigamikilla fyrirtækja er skýrt að mati Sjálfstæðisflokksins að slíkt sé ekki heillavænlegt til langframa og verður losað um eignarhald ríkisins aftur um leið og færi gefst. Forysta Sjálfstæðisflokksins:

Formaður Sjálfstæðisflokksins: Bjarni Benediktsson
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Ritari Sjálfstæðisflokksins: Vilhjálmur Árnason
Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Þórður Þórarinsson
Formaður Sveitarstjórnarráðs: Ragnar Sigurðsson
Formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna: Nanna Kristín Tryggvadóttir
Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Kristinn Karl Brynjarsson
Formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna: Halldór Blöndal
Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Viktor Pétur Finnsson

12/09/2026

Skattpíning ríkisstjórnarinnar og alvarleg staða á fjölmiðlamarkaði.
Rósa Guðbjartsdóttir fer yfir þingveturinn framundan.

Stefnuræða forsætisráðherra var flutt í vikunni og umræður um hana fóru fram. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er klár í...
12/09/2026

Stefnuræða forsætisráðherra var flutt í vikunni og umræður um hana fóru fram. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er klár í slaginn.

Hér fylgja nokkrar svipmyndir frá deginum.

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Verðbólga er meiri en vonast var til, meðal annars vegna aðgerða, og aðgerðaleysi...
12/09/2026

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Verðbólga er meiri en vonast var til, meðal annars vegna aðgerða, og aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Svar ríkisstjórnarinnar er að skella 5,2% hækkun á heimilin – og meira til.“

Þú getur lesið alla grein Bryndísar í fyrstu athugasemd.

11/09/2026

Fyrsta vikan á nýju þingi að baki✅
Óli Adolfs þingflokksformaður fer yfir málin og hvetur ríkisstjórnina til að finna aðrar leiðir en skattahækkanir á almenning til tekjuöflunar.

„Þar sem enginn virðist vera óhultur fyrir skattasleggju ríkisstjórnarinnar, sérstaklega ekki ferðaþjónustan. Stærsta ei...
11/09/2026

„Þar sem enginn virðist vera óhultur fyrir skattasleggju ríkisstjórnarinnar, sérstaklega ekki ferðaþjónustan. Stærsta einstaka útflutningsatvinnugrein þjóðarbúsins sem á nú að bera hitann og þungann af fyrirhuguðum skattahækkunum stjórnarinnar.“

Þú getur lesið alla grein Njáls í fyrstu athugasemd.

34 milljarða króna skattahækkanir!Ríkisstjórnin sem lofaði að hækka ekki skatta á venjulegt fólk og fyrirtæki sendir nú ...
10/09/2026

34 milljarða króna skattahækkanir!
Ríkisstjórnin sem lofaði að hækka ekki skatta á venjulegt fólk og fyrirtæki sendir nú reikninginn lóðbeint á fólkið í landinu.

„Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og há verðbólga og vaxtastig kemur auðvitað illa við þá sem hafa börn á sínu ...
10/09/2026

„Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og há verðbólga og vaxtastig kemur auðvitað illa við þá sem hafa börn á sínu framfæri. Við ættum að ráðast í að lækka skatta og opinberar álögur á barnafjölskyldur og létta þeim frekar róðurinn en hitt. Tillögur okkar sjálfstæðismanna tryggja stuðning við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti.“

Þú getur lesið alla grein Diljár í fyrstu athugasemd.

Kátir ræðumenn í lok kvölds!
09/09/2026

Kátir ræðumenn í lok kvölds!

09/09/2026

Loforðin hafa verið svikin!
Nú á að hækka skatta og gjöld um 34 milljarða til viðbótar við þá 30 sem voru lagðir á þjóðina fyrir tæpu ári síðan.

09/09/2026

Það er engin þörf á að laga Ísland.

Það sem þarf að laga er efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar og létta byrðarnar á fólkinu sem vill sækja fram.

Address

Háaleitisbraut 1
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545151700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjálfstæðisflokkurinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sjálfstæðisflokkurinn:

Shortcuts

Share