Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar rekur menningarstofnanir, sundlaugar og íþróttamannvirki.

Sviðið styður við listir, íþróttir og barnamenningu og stendur að fjölbreyttum viðburðum og hátíðum. Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt með rekstri menningarstofnana og íþróttamannvirkja, ásamt því að styðja við grasrótina í listalífinu, íþróttum og barnamenningu. Sviðið skipuleggur hátíðir í borginni og styður við fjölmarga viðburði og hátíðir sem lífga upp á lífið í borginni allt árið um kring.

📝✨ Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur ✨📖📍 Staður: Borgarbókasafn Grófinni📅 Dagsetningar:           ...
15/09/2026

📝✨ Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur ✨📖

📍 Staður: Borgarbókasafn Grófinni

📅 Dagsetningar:
• Miðvikudagur 16. september
• Miðvikudagur 23. september
• Miðvikudagur 30. september

✍️ Í september leiðir Karólína Rós Ólafsdóttir ritsmiðjur þar sem við skoðum aðferðir við að skrifa ljóð og texta út frá orðum sem við elskum, orðum sem við finnum og orðum sem okkur langar að skilja betur eða nota meira. 💭🖋️

🌍 Allur aldur og öll íslenskukunnátta velkomin! 🤗 Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.

🤝🎶 Þetta verkefni er hluti af Samljóða, ritsmiðjuseríunni, og Samvera verkefninu. Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.

🔗 Meira um ritsmiðjuna hér: https://borgarbokasafn.is/events/1a566d81-24bb-440d-a12b-1560357aa6dc,20260909

ℹ️ Nánari upplýsingar veitir: Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
📧 [email protected]

//

✨📝 Patchwork Poetics – Writing Workshops with Karólína Rós Ólafsdóttir 📚💛

📍 Location: Reykjavík City Library, Grófin

📅 Dates:
• Wednesday, September 16
• Wednesday, September 23
• Wednesday, September 30

During September, Karólína Rós Ólafsdóttir will lead a series of writing workshops where we explore ways of creating poetry and texts from words we love, words we find, and words we would like to understand better or use more often. ✍️🌟

🌍 All ages and all levels of Icelandic are welcome!
Participation is free, no registration required, just show up. 😊

🎶 This project is part of the Samljóða writing workshop series and the Samvera project. Samvera is supported by the Immigrants Development Fund.

🔗 Read more about the workshop here:
https://borgarbokasafn.is/events/1a566d81-24bb-440d-a12b-1560357aa6dc,20260909

ℹ️ For further information, please contact:
Martyna Karolina Daniel
Project Manager – Accessibility and Community Engagement
📧 [email protected]

🧡Við óskum Evu Rún og Blævi til hamingju með verðlaunin!
11/09/2026

🧡Við óskum Evu Rún og Blævi til hamingju með verðlaunin!

🌟Handritið Bestu vinir, eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur og Blævi Guðmundsdóttur, hlaut í dag Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur.

🏵️Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn Höfða í dag.

🧡Bestu vinir fjallar um dreng og stúlku sem kynnast þegar stúlkan flytur í næsta hús við drenginn. Honum líkar ekki við hana í fyrstu en það breytist þegar hún verður sessunautur hans í skólanum. Saman takast þau á við dularfulla ráðgátu um atburði í skólanum og með ævintýrum þeirra þróast óvænt vinátta.

Bókin kemur í bókabúðir á næstu dögum. Útgefandi er Bókabeitan.

🧡Við óskum Evu Rún og Blævi til hamingju með verðlaunin!

Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO

*English below* 💡🌍🤝 Marie og Vladimíra heimsóttu Borgarbókasafnið í leit að innblæstri og nýjum hugmyndum  📚 Marie Štynd...
11/09/2026

*English below* 💡🌍🤝 Marie og Vladimíra heimsóttu Borgarbókasafnið í leit að innblæstri og nýjum hugmyndum

📚 Marie Štyndlová og Vladimíra Buchtová, sem báðar starfa á The Research Library í Hradec Králové í Tékklandi, sóttu Borgarbókasafnið heim í lok maí 2026. Þær dvöldu í eina viku og fengu kynningar á ýmis konar þjónustu og verkefnum í Grófinni, Gerðubergi, Kringlunni, Spönginni og Úlfarsárdal.

✨ Í sömu viku var tekið á móti fimm öðrum hópum víðs vegar að úr Evrópu sem voru í sömu erindagjörðum; í leit að innblæstri og nýjum hugmyndum. Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir þessa góðu gesti og verða svörin birt á heimasíðu Borgarbókasafnið.

🎙 Hér má lesa viðtalið við Marie og Vladimíra: https://borgarbokasafn.is/i-leit-ad-innblaestri-og-nyjum-hugmyndum-vidtal-vid-marie-styndlova-og-vladimira-buchtova

//

💡🌍🤝 Marie and Vladimíra visited the Reykjavik City Library seeking inspiration and new ideas

📚 Marie Štyndlová and Vladimíra Buchtová, who both work at The Research Library in Hradec Králové, Czechia, visited Reykjavík City Library at the end of May 2026. They stayed for one week and were introduced to a wide range of services and projects at Grófin, Gerðuberg, Kringlan, Spöngin, and Úlfarsárdalur libraries.

✨ During the same week, five other groups came from across Europe who were visiting for similar purposes: to seek inspiration and discover new ideas. The guests answered a number of questions, and their responses will be published on our website and shared on social media channels.

🎙 Here you can read the interview: https://borgarbokasafn.is/en/seek-inspiration-and-new-ideas-interview-marie-styndlova-og-vladimira-buchtova

Góða helgi! ☀️
11/09/2026

Góða helgi! ☀️

Um helgina, 12. og 13. september, verður opið í fallturni og lest frá kl. 12:00 til 16:30.

Leiksvæðið verður opið og dýrin taka á móti gestum allan opnunartímann, frá kl. 10:00 til 17:00.

Opið verður hjá vinum okkar hjá Bæjarins Beztu og veðurspáin lítur vel út.

Við hlökkum til að sjá ykkur, ef ekki núna um helgina þá allavega seinna því garðurinn er opinn alla daga!

Góða helgi! ☀️

*English below* 💛 📚🌼 Gulur september á Borgarbókasafninu Borgarbókasafnið tekur þátt í gulum september og stillir fram g...
08/09/2026

*English below* 💛 📚🌼 Gulur september á Borgarbókasafninu

Borgarbókasafnið tekur þátt í gulum september og stillir fram gulum bókum í söfnunum. 📖💛 Í gulum september er lögð áhersla á vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.

10. september er guli dagurinn, Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna, og er guli liturinn einkennislitur sjálfsvígsforvarna. 💛🕯️

Hægt er að fræðast frekar um gulan september á heimasíðunni https://gulurseptember.is/

///

💛📚 🌼Yellow September at Reykjavík City Library

Reykjavík City Library is taking part in Yellow September by showcasing yellow books across its libraries. 💛📖 Yellow September focuses on raising awareness about the importance of mental health and su***de prevention, guided by love, care and concern.

10 September is Yellow Day, the International Su***de Prevention Day, and the colour yellow is the symbol of su***de prevention. 🌼💛

You can learn more about Yellow September on the website: https://gulurseptember.is/en

*English below* 📝✨ Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur ✨📖📍 Staður: Borgarbókasafn Grófinni📅 Dagsetni...
08/09/2026

*English below* 📝✨ Bútasaumsljóð - ritsmiðjur með Karólínu Rós Ólafsdóttur ✨📖

📍 Staður: Borgarbókasafn Grófinni

📅 Dagsetningar:
• Miðvikudagur 9. september
• Miðvikudagur 16. september
• Miðvikudagur 23. september
• Miðvikudagur 30. september

✍️ Í september leiðir Karólína Rós Ólafsdóttir ritsmiðjur þar sem við skoðum aðferðir við að skrifa ljóð og texta út frá orðum sem við elskum, orðum sem við finnum og orðum sem okkur langar að skilja betur eða nota meira. 💭🖋️

🌍 Allur aldur og öll íslenskukunnátta velkomin! 🤗 Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta.

🤝🎶 Þetta verkefni er hluti af Samljóða, ritsmiðjuseríunni, og Samvera verkefninu. Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.

🔗 Meira um ritsmiðjuna hér: https://borgarbokasafn.is/events/1a566d81-24bb-440d-a12b-1560357aa6dc,20260909

ℹ️ Nánari upplýsingar veitir: Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
📧 [email protected]

//

✨📝 Patchwork Poetics – Writing Workshops with Karólína Rós Ólafsdóttir 📚💛

📍 Location: Reykjavík City Library, Grófin

📅 Dates:
• Wednesday, September 9
• Wednesday, September 16
• Wednesday, September 23
• Wednesday, September 30

During September, Karólína Rós Ólafsdóttir will lead a series of writing workshops where we explore ways of creating poetry and texts from words we love, words we find, and words we would like to understand better or use more often. ✍️🌟

🌍 All ages and all levels of Icelandic are welcome!
Participation is free, no registration required, just show up. 😊

🎶 This project is part of the Samljóða writing workshop series and the Samvera project. Samvera is supported by the Immigrants Development Fund.

🔗 Read more about the workshop here:
https://borgarbokasafn.is/en/events/1a566d81-24bb-440d-a12b-1560357aa6dc,20260909

ℹ️ For further information, please contact:
Martyna Karolina Daniel
Project Manager – Accessibility and Community Engagement
📧 [email protected]

*English below* ✨✉️✂️ Fallegt handgert umslag er sannarlega punkurinn yfir i-ið!  Kíktu við í föndursmiðju á Borgarbókas...
08/09/2026

*English below* ✨✉️✂️ Fallegt handgert umslag er sannarlega punkurinn yfir i-ið!

Kíktu við í föndursmiðju á Borgarbókasafninu Árbæ, þriðjudaginn 8. september frá kl. 15:30 – 17:30.
Pappír og stimplar í boði fyrir þau sem vilja skreyta umslögin sín á staðnum en einnig er velkomið að koma með eigið efni og áhöld.

Tilbúningur er viðburðaröð sem fram fer í Árbæ, Spönginni og Úlfarsárdal. Notalegar og skapandi samverustundir fyrir fullorðna og eldri börn. Á meðfylgjandi myndum má sjá hversu fjölbreytt viðfangsefnin hafa verið á undanförnum misserum.

🎟️ Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.

👉 Nánar: https://borgarbokasafn.is/events/712545

//

✨✉️✂️ A handmade envelope is truly the perfect finishing touch!

Join us for a craft workshop at Árbær City Library on Tuesday, September 8, from 3:30 PM to 5:30 PM. Paper and stamps will be available for those who would like to decorate their envelopes on site, and participants are also welcome to bring their own materials and tools.

Fabrication is a series of events taking place in Árbær, Spöngin, and Úlfarsárdalur. These are cozy and creative gatherings for adults and older children. The accompanying photos show the wide variety of activities and themes that participants have explored over the past several seasons.

🎟️ Free admission and no registration required.

👉 More: https://borgarbokasafn.is/en/events/712545

*English below* 📚 🎧 🏠 Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir ...
08/09/2026

*English below* 📚 🎧 🏠 Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafni Reykjavíkur sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í Hreiðrinu eru hljóðsögur þar sem fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra.

Innsetningin er opin út september í Grófinni (2. hæð). Einnig er hægt að hlusta á sögurnar hér: https://borgarbokasafn.is/hreidrid-sogur-um-ad-tilheyra-0

//

📚 🎧 🏠 The Nest is a cosy corner of Reykjavik City Library that hosts a collection of texts and media curated by users of the library. It includes audio stories in which people share books, songs, poetry, films and theatre works that give them a sense of belonging.

The installation is open until the end of September on the second floor of Grófin. You can also listen to the stories here: https://borgarbokasafn.is/en/nest-stories-belonging-0

08/09/2026

Myndband frá Upprásinni þar sem Gargan, Venus Volcanism og J. Bear and the Cubs komu fram í Kaldalóni, frábært kvöld!

Upprásin er mánaðarleg tónleikaröð tileinkuð grasrót íslensks tónlistarlífs, á vegum Hörpu, Tónlistarborgarinnar Reykjavík og Rásar 2.

Góð aðsókn í sumar og fjölbreytt dagskrá framundan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum💚
03/09/2026

Góð aðsókn í sumar og fjölbreytt dagskrá framundan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum💚

Góð aðsókn í sumar og fjölbreytt dagskrá framundan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn var mjög góð í sumar og bendir allt til þess að gestir hafi kunnað vel að meta bæði fjölbreytta dagskrá og lækkað verð á árskortum. Í júní, júlí og ágúst heimsóttu tæplega 99 þúsund gestir garðinn, samanborið við tæplega 79 þúsund gesti á sama tímabili í fyrra. Þá hefur sala árskorta aukist verulega í kjölfar verðlækkunar á kortunum og hafa viðtökur gesta verið afar jákvæðar.

Líf og fjör einkenndu sumarið í garðinum. Tívolí Tónleikar voru haldnir annað árið í röð og skapaðist frábær stemning þegar þaulreynt tónlistarfólk og efnileg ungmenni úr röðum Skólahljómsveita Reykjavíkur stigu á svið. Brúðubíllinn heimsótti garðinn nokkrum sinnum yfir sumarið og vakti mikla lukku meðal gesta á öllum aldri. Á frídegi verslunarmanna var gestum boðið á skemmtilega sýningu með Leikhópnum Lottu og heimsókn félaga úr Fornbílaklúbbi Íslands vakti einnig mikla athygli.

Í sumar bauð Vinnuskóli Reykjavíkur í fyrsta sinn ungu tónlistar- og leiklistarfólki að vinna við list sína. Þátttakendur úr Skólahljómsveitum Reykjavíkur og ungir leikarar æfðu og komu fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem og á öðrum vettvangi. Að mati starfsfólks garðsins heppnaðist verkefnið einstaklega vel og framkoma unga fólksins var til fyrirmyndar. Hæfileikarnir létu ekki á sér standa og vonir eru bundnar við að verkefnið fái framhald á næstu árum.

Þótt annasömu og viðburðaríku sumri sé lokið er ýmislegt framundan í garðinum. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er vinsæll útivistarstaður allt árið um kring og á degi íslenskrar náttúru, 16. september, verður gestum boðið í spennandi sýndarveruleikaferðalag um lundabjarg.

Sunnudaginn 27. september verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Gestir verða hvattir til hreyfingar með ýmis konar afþreyingu, meðal annars jógatímum og hobbíhestabraut fyrir áhugasama. Hobbíhestaiðkun á rætur að rekja til Finnlands og hefur notið vaxandi vinsælda víða um heim á undanförnum árum. Í greininni reynir á bæði þol, jafnvægi og samhæfingu þegar þátttakendur hlaupa og stökkva yfir hindranir með prikhesta sem líkja eftir hefðbundnum hindrunarstökkum.
Jafnframt er undirbúningur þegar hafinn fyrir vinsæla viðburði haustsins og vetrarins.

Hrekkjavökugleði og jóladagskrá Fjölskyldu- og húsdýragarðsins eru í undirbúningi og geta gestir því hlakkað til áframhaldandi lífs og fjörs í garðinum á komandi mánuðum.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga frá kl. 10 til 17 og opið verður í völdum leiktækjum um helgar fram eftir hausti en þau lokuð virka daga. Dýrin taka á móti gestum allan opnunartímann og leiksvæði Fjölskyldugarðsins er opið.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur:

Shortcuts

Share