Vísindasiðanefnd

Vísindasiðanefnd Vísindasiðanefnd (VSN) metur vísindarannsóknir á heilbrigðissviði í þeim tilgangi að tryggja að þær samrýmist vísindalegum og siðfræðilegum sjónarmiðum.

Hlekkur á viðburðinn - https://fb.me/e/1yOBsGnZQMálþing vísindasiðanefndar um upplýst samþykki í vísindarannsóknum á hei...
21/03/2022

Hlekkur á viðburðinn - https://fb.me/e/1yOBsGnZQ

Málþing vísindasiðanefndar um upplýst samþykki í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði

Vísindasiðanefnd boðar til málþings í Veröld, húsi Vigdísar þann 1. apríl kl. 12:30 – 15:30. Áætlað er að streymt verði beint frá viðburðinum.

Markmið fundarins er að vekja upp umræðu um upplýst samþykki í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mun opna málþingið með ávarpi. Þá koma Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir, Henry Alexander Henrysson heimspekingur, Flóki Ásgeirsson lögmaður, Ingileif Jónsdóttir prófessor og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu ehf. og Salvör Nordal, umboðsmaður barna til með að flytja erindi á fundinum.

Vísindasiðanefnd hvetur alla til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðunni!

Dagskrá málþingsins má sjá hér að neðan.

Ávarp heilbrigðisráðherra, Willum Þórs Þórssonar.

Upplýst samþykki í sögulegu samhengi. Sigurður Guðmundsson, nefndarmaður í vísindasiðanefnd og fyrrum landlæknir.

Hvað er upplýst samþykki og hvað þýðir að veita samþykki fyrir þátttöku í vísindarannsókn á heilbrigðissviði? Hvenær er rétt að beita afmörkuðu samþykki og hvenær víðtæku samþykki? Henry Alexander Henrysson, heimspekingur og nefndarmaður í vísindasiðanefnd.

Upplýst samþykki og lög nr. 44/2014, um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Flóki Ásgeirsson, lögmaður og nefndarmaður í vísindasiðanefnd.

Víðtækt samþykki í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði, lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga. Ingileif Jónsdóttir, prófessor og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu ehf.

Börn og upplýst samþykki. Salvör Nordal, heimspekingur og umboðsmaður barna.

Hlé.

Pallborðsumræður með frummælendum, fundarstjóra og Þórði Sveinssyni, yfirlögfræðingi Persónuverndar.

Málþingið slitið.

Pallborðsumræður
13/01/2021

Pallborðsumræður

Frá málþingi 13.janúar
13/01/2021

Frá málþingi 13.janúar

13/01/2021

Vísindarannsóknir á tímum heimsfaraldurs

13. janúar 2021, kl 13:00-16:00

Dagskrá

13.05 Ávarp, Sunna Snædal, læknir og formaður vísindasiðanefndar

13.15 Alma D. Möller, landlæknir

13.30 Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

13.45 Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar

14.00 Karl Andersen, hjartalæknir og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands

14.15 Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor við miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild Háskóla Íslands

14.30 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

14.45 Henry A. Henrysson, heimspekingur og varaformaður vísindasiðanefndar bregst við framsöguerindum og stjórnar pallborði

15.00-16.00 Pallborðsumræða

Málþing VSN um rannsóknir á tímum COVID-19Minnt er á málþing Vísindasiðanefndar miðvikudaginn 13. janúar 2021, kl 13-16....
13/01/2021

Málþing VSN um rannsóknir á tímum COVID-19
Minnt er á málþing Vísindasiðanefndar miðvikudaginn 13. janúar 2021, kl 13-16. Málþinginu verður streymt á slóðinni https://youtu.be/RoRm1PMlKyE

Fyrirlesarar verða Alma Möller landlæknir, Vilmundur Guðnason, Helga Þórisdóttir, Karl Andersen, Unnur Valdimarsdóttir og Kári Stefánsson.

Address

Borgartún 21, 4 Hæð
Reykjavík
105

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vísindasiðanefnd posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share