Skútustaðahreppur

Skútustaðahreppur Velkomin á facebook síðu Skútustaðahrepps í Mývatnssveit.

06/09/2022

Kæru íbúar og aðrir fylgjendur.
Framvegis munum við notast við fésbókarsíðu Þingeyjarsveitar, þar munum við setja inn tilkynningar, fréttir og hægt verður að fylgjast með sveitarstjórnarfundum í beinu streymi. Vinsamlegast fylgið okkur hér https://www.facebook.com/thingeyjarsveit

Opnunartímar skrifstofu Þingeyjarsveitar
er mán - fös kl. 9:00 - 12:00 og 12:30 - 15:00

Þriðjudaginn 13. september milli kl. 10:00 og 15:00 verða Vaðlaheiðargöng lokuð fyrir almenna umferð vegna reykköfunar æ...
06/09/2022

Þriðjudaginn 13. september milli kl. 10:00 og 15:00 verða Vaðlaheiðargöng lokuð fyrir almenna umferð vegna reykköfunar æfingu slökkviliðs. Slökkvilið Akureyrar Brunavarnir Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar Vegagerðin

Skrifstofur Þingeyjarsveitar lokaðar eftir hádegi 8. septemberSkrifstofur Þingeyjarsveitar bæði í Reykjahlíð og í Kjarna...
06/09/2022

Skrifstofur Þingeyjarsveitar lokaðar eftir hádegi 8. september
Skrifstofur Þingeyjarsveitar bæði í Reykjahlíð og í Kjarna verða lokaðar eftir hádegi fimmtudaginn 8. september vegna sameiginlegs starfsmannafundar

Kynningarfundur VaxtarrýmisNorðanátt býður upp á öflugt Vaxtarrými í annað sinn í haust þar sem þátttakendur fá tækifæri...
31/08/2022

Kynningarfundur Vaxtarrýmis
Norðanátt býður upp á öflugt Vaxtarrými í annað sinn í haust þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakinu.

Norðanátt leitar að þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa og efla sig og sín verkefni.

Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku og er sérhannaður með þarfir þátttakendanna í huga. Teymin sem verða valin í viðskiptahraðalinn hafa því áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Vaxtarrými fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Rafrænn kynningarfundur fer fram mánudaginn 12. september nk. frá kl. 11:30 – 12:00 þar sem farið verður yfir öll helstu atriði Vaxtarrýmis ásamt því að fólki gefst kostur á að spyrja spurninga.

Hlekkur á zoom: https://us02web.zoom.us/j/83553405875

Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. Nóvember. Umsóknarfrestur er til og með 19. September.

Smelltu hér til að opna umsóknarform á íslensku: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdanJODRai1a1amosBSQFVjedLlIyopBgnZtN6rxLqwo52Fbg/viewform

Click here for english application form: https://docs.google.com/forms/d/1bwpkiH_XraLr1XX1w0SZq8EH55fNGM07UYOsH1tNTgc/viewform?edit_requested=true

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma Eimur, SSNV, SSNE, RATA.

Kynningarfundur í Breiðumýri kl 15 - 16 á morgun fimmtudag vegna skipulagsgerðar að Laugum, Reykjadal
31/08/2022

Kynningarfundur í Breiðumýri kl 15 - 16 á morgun fimmtudag vegna skipulagsgerðar að Laugum, Reykjadal

Fimmtudaginn 1. september verður haldinn kynningarfundur að Breiðumýri frá kl 15 – 16 vegna skipulagsgerðar í þéttbýlinu Laugum. Hægt verður að koma og kynna sér fyrirhugaða vinnu, ræða um áformin og koma með tillögur.

Leikskólinn Ylur, MývatnssveitLeikskólinn Ylur auglýsir eftir 60-100 % stöðu leikskólakennara/leikskólastarfsmanni.Við l...
25/08/2022

Leikskólinn Ylur, Mývatnssveit
Leikskólinn Ylur auglýsir eftir 60-100 % stöðu leikskólakennara/leikskólastarfsmanni.

Við leitum af starfsmanni sem

Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
Hefur brennandi áhuga á að starfa með börnum
Er lausnamiðaður og vill taka þátt i samstarfi og teymisvinnu
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskipum, stundvísi og hreint sakarvottorð.

Ylur er eins deilda leikskóli í Mývatnssveit. Í haust er gert ráð fyrir að um 25 börn verði í leikskólanum á aldrinum 1-6 ára en börn eru tekin inn í leikskólann frá 10 mánaða aldri. Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á leik og útikennslu, unnið er eftir agastefnunni jákvæðum aga.

Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 9. september 2022.

Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir, [email protected] og í síma 464-4375.

Nánari upplýsingar um leikskólann er hægt að finna á https://ylur.leikskolinn.is/

Við frisbígolf (folf) völlinn í Reykjahlíð hefur verið sett upp kort af vellinum og karfa sett á vegginn með þremur disk...
12/08/2022

Við frisbígolf (folf) völlinn í Reykjahlíð hefur verið sett upp kort af vellinum og karfa sett á vegginn með þremur diskum sem ætlaðir eru til láns. Vinsamlegast gangið frá diskunum á sinn stað eftir notkun!

Nýr starfsmaðurAðalbjörn Jóhannsson hefur verið ráðinn í starf tómstunda- og æskulýðsfulltrúa Þingeyjarsveitar.Aðalbjörn...
09/08/2022

Nýr starfsmaður

Aðalbjörn Jóhannsson hefur verið ráðinn í starf tómstunda- og æskulýðsfulltrúa Þingeyjarsveitar.

Aðalbjörn starfaði áður sem stuðnings- og félagsmálafulltrúi hjá Þingeyjarskóla og um árabil sem verkefnastjóri á tómstunda- og æskulýðssviði Norðurþings. Hann hefur í gegnum störf sín öðlast víðtæka reynslu af skipulagi og framkvæmd tómstunda- og æskulýðsmála auk þess að hafa sótt sér menntun og þekkingu á því sviði.

Starfið er nýtt innan sveitarfélagsins og er því ætlað að hafa yfirumsjón með þróun og framkvæmd þjónustu sem snýr að ungmennum hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða verkefni sem tengjast leikskólum, grunnskólum, frístundastarfi, forvörnum og lýðheilsu ásamt mörgum öðrum fjölbreyttum verkefnum. Aðalbjörn hefur unnið mjög gott starf síðustu ár fyrir ungmenni Þingeyjarsveitar og mun nú taka að sér stærra hlutverk í sameinuðu sveitarfélagi með nýtt starfsheiti.

Aðalbjörn er uppalinn Öxfirðingur en hefur búið undanfarin ár í Reykjahverfi þar sem hann er að tryggja rætur með eiginmanni og hundinum Freyju.

Við bjóðum Aðalbjörn velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Tímabundin afleysing- félagsleg heimaþjónusta í MývatnssveitSveitarfélagið leitar að aðila til að sinna félagslegri heim...
09/08/2022

Tímabundin afleysing- félagsleg heimaþjónusta í Mývatnssveit

Sveitarfélagið leitar að aðila til að sinna félagslegri heimaþjónustu á s*x heimilum í Mývatnssveit á tímabilinu lok ágúst til miðjan október.

Vinnutíminn er samkomulag og er gott vald á íslensku skilyrð.

Laun greidd skv. samningum Framsýnar og Launanefndar sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Alma í síma 823-9297 eða á [email protected].

Þingeyjarsveit auglýsir eftir sviðsstjóra stjórnsýslusviðsAuglýst hefur verið eftir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs sameina...
05/08/2022

Þingeyjarsveit auglýsir eftir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs
Auglýst hefur verið eftir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs sameinaðs sveitarfélags Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir framsækni, krafti og metnaði til að stýra starfsemi sveitarfélagsins, leiða áframhaldandi uppbyggingu innan þess og innleiðingu breytinga í kjölfar sameiningar Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar. Um er að ræða stöðu æðsta stjórnanda sveitarfélagsins.

Starfssvið:

Sviðsstjóri er æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins og skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og stefnu sveitarstjórnar
Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með rekstri sveitarfélagsins og ber ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar.
Fer með prókúru sveitarfélagsins og fyrirsvar þess
Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og nefnda
Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
Gæta hagsmuna sveitarfélagsins út á við, vinna að framfaramálum þess og vera talsmaður sveitarstjórnar
Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar fyrir sveitarfélagið og starfsemi þess.
Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á svæðinu
Menntunar- og hæfniskröfur:

Háskólamenntun sem nýtist í starfi, menntun á sviði stjórnsýslufræða eða lögfræði er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg
Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Áhugi og reynsla á uppbyggingu og eflingu atvinnulífs
Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Æskilegt er að sviðsstjóri sé búsettur í sveitarfélaginu
Þingeyjarsveit er sameinað sveitarfélag úr nokkrum hreppum í Suður-Þingeyjarsýslu, Hálshreppi, Ljósavatnshreppi, Bárðdælahreppi, Reykdælahreppi, Aðaldælahreppi og nú síðast Skútustaðahreppi.

Hið nýja sveitarfélag er landmesta sveitarfélag landsins með um 12% af flatarmáli landsins og um 1.400 íbúa. Stór hluti sveitarfélagsins er í óbyggðum en byggð takmarkast við Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Kaldakinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit.

Þingeyjarsveit státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Margar af eftirsóttustu náttúruperlum Íslands eru í sveitarfélaginu s.s. Mývatn, Laxá í Aðaldal, Goðafoss, Aldeyjarfoss, Vaglaskógur, Askja og fjalladrottningin Herðubreið.

Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu.

Sveitarfélagið rekur þrjá grunnskóla og fjóra leikskóla, á Stórutjörnum, Hafralæk, Laugum og í Reykjahlíð.

Skrifstofur sveitarfélagsins eru á Laugum og í Reykjahlíð og á báðum stöðum er að finna alla nauðsynlega þjónustu. Í sveitarfélaginu starfar fólk frá ýmsum stofnunum og er aðstaða fyrir störf án staðsetningar í boði ásamt umfangsmiklu samstarfi sveitarfélagsins við ýmsar opinberar stofnanir s.s. Vatnajökulsþjóðgarð og Umhverfisstofnun. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi.

Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2022. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, [email protected] Hlynur Atli Magnússon, [email protected].

Sótt er um starfið á heimasíðu Hagvangs.
https://jobs.50skills.com/hagvangur/is/14635

Address

Hlíðavegur 6
Reykjahlíð
660

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3544646660

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skútustaðahreppur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Skútustaðahreppur:

Share