19/05/2026
Við í Framsókn í Mosfellsbæ þökkum kærlega fyrir allan þann stuðning sem okkur var veittur í liðinni kosningabaráttu og í kjörklefanum. 💚
Við erum afar stolt af öllum þeim árangri sem hefur unnist á síðastliðnu kjörtímabili og munum við halda áfram að vinna fyrir bæjarbúa af heilindum og ábyrgð.
Sérstakar þakkir fá þau sem lögðu hönd á plóg með einum eða öðrum hætti í kosningabaráttunni - við erum einstaklega heppin með okkar góða fólk.
Hlökkum til að eiga áframhaldandi samtal við íbúa Mosfellsbæjar á komandi kjörtímabili. 💚