03/07/2026
VIÐ ERUM AÐ KJÓSA Í NÝTT UNGMENNARÁÐ
Hugsar þú „Ég er örugglega ekki rétta týpan fyrir ungmennaráð...“?
Það er eðlilegt að halda að ungmennaráð sé bara fyrir þau sem eru alltaf með svarið, elska að tala fyrir framan fólk eða vita allt um samfélagsmál.
En þannig er það ekki.
Við erum ekki að leita að „fullkomna“ einstaklingnum. Við erum að leita að alvöru ungu fólki, með ólíka reynslu, ólík áhugamál og ólíkar skoðanir.
Kannski ertu manneskjan sem sér oft hvernig mætti gera hlutina betur. Kannski hefurðu fullt af hugmyndum en segir þær ekki alltaf upphátt. Kannski finnst þér bara vanta að einhver hlusti meira á ungt fólk.
Þá eigum við erindi við þig.
Í ungmennaráði færðu tækifæri til að:
- hafa raunveruleg áhrif á það sem skiptir ungt fólk máli,
- vinna að hugmyndum sem geta orðið að veruleika,
- halda utan um ungmennahússopnanir,
- kynnast nýju fólki og prófa eitthvað nýtt,
- öðlast reynslu sem nýtist langt út fyrir ungmennaráðið.
Þú þarft ekki reynslu. Þú þarft ekki að vera hávær. Þú þarft ekki að vera „rétta týpan“.
Það eina sem við viljum er að hópurinn endurspegli öll ungmenni – ekki bara þau sem eru vön að stíga fram.
Sæktu um. Röddin þín gæti verið nákvæmlega sú sem vantar.
Eingöngu fyrir 16 - 20 ára ungmenni sem hafa lokið grunnnskólagöngu. Tímalengd tímabils er tvö ár
https://forms.gle/GBn47Hkqf2mHxY4S9