Framsókn Garðabæ

Framsókn Garðabæ Framsóknarfélag Garðabæjar

Í dag fengum við þá sorgarfregn að fallinn er frá mikill og góður félagi okkar Framsóknarmanna. Úlfar Ármannsson skipaði...
08/06/2026

Í dag fengum við þá sorgarfregn að fallinn er frá mikill og góður félagi okkar Framsóknarmanna. Úlfar Ármannsson skipaði heiðurssæti listans okkar í Garðabæ í nýafstöðnum sveitastjórnarkosningum og var ánægður með hópinn. Hann var mikill viskubrunnur og gott að leita til hans þegar kom að málefnum flokksins, lögum, hefðum, venjum og sögu. Úlfar var mikill Álftnesingur og unni nesinu og studdi áframhaldandi uppbyggingu þess. Hann vann mikið alla sína tíð og var virkur í atvinnulífinu allt fram á sinn hinsta dag. Við sendum fjölskyldu og vinum okkar hugheilar samúðarkveðjur vegna fráfalls elsku Úlfars. Blessuð sé minning hans 🕊️

F.h. stjórnar og annarra félaga Framsóknar í Garðabæ,
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir

Kæru Garðbæingar Framsókn í Garðabæ þakkar kjósendum innilega fyrir traustið og stuðninginn. Saman höfum við tryggt Hlyn...
17/05/2026

Kæru Garðbæingar

Framsókn í Garðabæ þakkar kjósendum innilega fyrir traustið og stuðninginn. Saman höfum við tryggt Hlyni Bærings, oddvita Framsóknar í Garðabæ, sæti í bæjarstjórn til ársins 2030.

Við erum stolt af þeim áfanga. Fram undan er áframhaldandi vinna af ábyrgð, samvinnu og metnaði. Í minnihluta munum við leggja áherslu á ábyrgan rekstur, skipulagsmál, barnafjölskyldur, bætta lýðheilsu og skemmtilegri Garðabæ.

Þetta snýst um Garðabæ.

Takk fyrir okkur.
💚

Gleðilegan kjördag - Setjum X við B
16/05/2026

Gleðilegan kjördag - Setjum X við B

"Ég er tilbúinn í samtal við bæjarbúa og tilbúinn að vinna fyrir Garðabæ. Ég bið um ykkar stuðning á laugardaginn“ X við...
15/05/2026

"Ég er tilbúinn í samtal við bæjarbúa og tilbúinn að vinna fyrir Garðabæ. Ég bið um ykkar stuðning á laugardaginn“ X við B ✅. Hlynur Baeringsson

Á laugardaginn 16. maí er hátíðisdagur, þá göngum við til kosninga. Þó við séum ekki skuldlaus eins og Bjartur í Sumarhúsum taldi forsendu frelsisins, þá erum við frjáls skoðana okkar og tjáningar og það frelsi er ekki sjálfgefið eins og mannkynssagan sýnir. Ég býð mig f...

It's all about Garðabær. 💚Tomorrow we have the chance to put families first, get the town's finances back on track, and ...
15/05/2026

It's all about Garðabær. 💚

Tomorrow we have the chance to put families first, get the town's finances back on track, and build a community where everyone thrives, at every age.

XB — Framsókn in Garðabær.

Blússandi símasamband í ÁsgarðiFramsókn í Garðabæ vill vekja athygli á því að í leikjum Stjörnunnar í úrslitakeppninni í...
14/05/2026

Blússandi símasamband í Ásgarði

Framsókn í Garðabæ vill vekja athygli á því að í leikjum Stjörnunnar í úrslitakeppninni í körfubolta auglýsti Framsókn eftir símasambandi í Ásgarði, heimavelli Stjörnunnar. Netsamband og farsímasamband í húsinu hefur nánast ekki verið til staðar síðastliðin tíu ár og margir gestir Ásgarðs hafa fundið fyrir því. Í kjölfarið á auglýsingunum brugðust fjarskiptafyrirtækin við og nú er komið blússandi símasamband í Ásgarð frá öllum fjarskiptafyrirtækjunum og bjóðum við því Sýn, Símann og Nova velkomin í Ásgarð.

Hlynur Bæringsson
„Okkur fannst góð hugmynd að slá tvær flugur í einu höggi. Auglýsa framboðið en gera á sama tíma gagn fyrir Garðbæinga sem margir hverjir hafa verið langþreyttir á lélegu símasambandi í Ásgarði. Þetta er kannski ekki stærsta kosningaloforð sem sögur fara af, en þetta er gott dæmi um hvernig hægt er að hlusta á fólk, benda á praktísk vandamál í nærumhverfinu og ganga í verkin“.

Ef við gerum ekkert, er hætt við að Garðabær verði í auknum mæli bær þar sem margir eiga rætur, en færri raunhæfan mögul...
14/05/2026

Ef við gerum ekkert, er hætt við að Garðabær verði í auknum mæli bær þar sem margir eiga rætur, en færri raunhæfan möguleika á að byggja sína framtíð. Kjósum X við B ✅

Þegar ungt fólk sem elst upp í Garðabæ fer að huga að eigin heimili, stofna fjölskyldu eða stækka við sig, blasir oft við erfið staða: bærinn er einfaldlega ekki alltaf raunhæfur kostur. Ekki vegna skorts á vilja, heldur vegna þess að húsnæðisverð og takmarkað framboð á fj....

Léttum undir með barnafjölskyldum Garðabæjar - Settu X við B
14/05/2026

Léttum undir með barnafjölskyldum Garðabæjar - Settu X við B

Address

Garðabær
210/225

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Framsókn Garðabæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Framsókn Garðabæ:

Shortcuts

Share