Félagið Grasrót – Skapandi samfélag hefur það hlutverk að vera vettvangur fyrir áhugasamt fólk sem vill fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar með litlum kostnaði. Miðstöðin er vettvangur fyrir alla í líflegu umhverfi þar sem fólk getur komið saman og unnið að skapandi verkefnum á sviði iðnaðar, þjónustu og menningar. Áhersla er lögð á endurnýtingu og gjörnýtingu.
Í Grasrót á fólk þess kost á
að leigja ódýra aðstöðu sem er nægjanlega stór og góð til að þróa hugmyndir á byrjunarstigi. Hár aðstöðukostnaður getur verið mikill þröskuldur á þróunarstarfi en hér er öllum kostnaði haldið í lágmarki.
Það að geta gengið inn í skapandi samfélag og orðið hluti af því er mikilvægt fyrir þá sem eru að þróa og byggja upp sína eigin framleiðslu. Reynslan, þekkingin og hugmyndirnar sem safnast saman á svona stað er ómetanlegur fjársjóður sem margfaldast þegar honum er deilt og verður sjálfkrafa mikilvægur stuðningur við frumkvöðla.